Karen Beard skrifaði:
I am an experienced knitter but this pattern ( and another Drops pattern I tried) are completely incomprehensible. I see it is translated into English from Norwegian. With respect, the translation has resulted in complete confusion on my part. Thank you for trying but I won’t be attempting any more of your patterns.
11.10.2022 - 21:22
Katarzyna skrifaði:
Super 🥰
06.08.2022 - 11:17
Bente skrifaði:
Flot sweet shirt
04.08.2022 - 18:15
Country Spice#countryspicesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-19 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmál er prjónaður í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Síðan er prjónuð upphækkun aftan í hnakka – upphækkunin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-86-90-94-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-18-18-22-24-20 lykkjur jafnt yfir = 104-104-108-116-120-120 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan og 1 prjónamerki eftir 52-52-54-58-60-60 lykkjur = mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þar sem prjónamerki var sett í við miðju að framan. Prjónamerkin eru einnig notuð til að telja út að hlið hvar mynstrið á að byrja. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 18-18-19-19-20-20 lykkjur (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur á eftir 1. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 36-36-38-38-40-40 lykkjur á eftir 2. prjónamerki (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur eftir 3. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 18-18-19-19-20-20 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið 4 prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. Nú er prjónuð upphækkun aftan í hnakka eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN: Öll upphækkunin er prjónuð í sléttprjóni. Byrjið mitt að aftan, prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 24-24-27-27-30-30 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 32-32-36-36-40-40 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 40-40-45-45-50-50 lykkjur slétt – að auki er aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-60-60 lykkjur brugðið – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. prjónamerki og 1 lykkju á UNDAN 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU (útauknar lykkjur koma sem viðbót við lykkjufjöldann í upphækkun), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka að miðju að aftan – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 4. prjónamerki, klippið þráðinn. Nú hefur verið aukið út um 2 lykkjur á undan 1. prjónamerki og 2 lykkjur á eftir 4. prjónamerki (séð frá réttu), þ.e.a.s. það eru 4 lykkjur fleiri á bakstykki en á framstykki. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir axlarsæti. JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir axlarsæti, prjónið mynstur á framstykki og bakstykki. Lestu kaflann um AXLARSÆTI og MYNSTUR eins og útskýrt er að neðan, áður en þú prjónar áfram! AXLARSÆTI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna – umferðin byrjar eftir 1. prjónamerki. Í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki og aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 16-18-18-18-20-20 sinnum. Síðan eru prjónaðar 2 umferðir þar sem einungis er aukið út í hvorri hlið á framstykki, þ.e.a.s. aukið út á EFTIR 2. prjónamerki og á UNDAN 3. prjónamerki = 176-184-188-196-208-208 lykkjur í umferð (16-16-16-20-20-20 lykkjur á hvorri öxl og 72-76-78-78-84-84 lykkjur á framstykki/bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-9-9-10-10 cm frá þar sem prjónamerkið var sett mitt að framan. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. MYNSTUR: Þegar aukið hefur verið út um 4 umferðir í sléttprjóni á eftir kanti í hálsmáli og upphækkun, byrjar mynstrið. A.1 er einungis prjónað á framstykki og bakstykki. Á ermum er prjónað sléttprjón. Þ.e.a.s. prjónið sléttprjón yfir axlalykkjur, á framstykki en byrjun á mynstri talið út frá prjónamerki mitt að framan – sjá tákn í A.1 sem merkir miðju að framan/miðju að aftan, teljið út frá hlið eins langt og hægt er að útaukningu fyrir axlarsæti og byrjið mynstrið. ATH: Það er fallegast ef hægt er að koma í veg fyrir að hafa «hnútamynstur» alveg við útaukningu fyrir axlarsæti, skiptið e.t.v. þessum lykkjum út og prjónið sléttprjón, prjónið A.1 eins langt og hægt er við útaukningu fyrir axlarsæti í hinni hliðinni og prjónið síðustu lykkjur í sléttprjóni þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir axlalykkjurnar og prjónið mynstur á bakstykki alveg eins og á framstykki. Haldið svona áfram. Útauknar lykkjur frá útaukningu á axlarsæti og síðari útaukningu eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, en stillið af að það komi ekki «hnútamynstur» alveg við útaukningu. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Þegar útaukning fyrir axlarsæti er lokið, aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar í næstu umferð þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU! Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-13-15-13-13-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-2-0-0-0-0 sinnum = 236-244-248-248-260-248 lykkjur (haldið áfram að telja út í umferð í A.1 þar sem lykkjum hefur ekki verið fækkað og þetta á síðan við um allan lykkjufjölda sem gefinn er upp eins langt og A.1 er prjónað). Stykkið mælist ca 20-22-23-21-22-19 cm frá þar sem prjónamerki var sett í framstykkið. Síðan er aukið út á berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu fyrir ermum, þannig að hvert og eitt þessara 4 prjónamerkja sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 72-76-78-78-84-84 lykkjur á framstykki/bakstykki meðtaldar lykkjur með prjónamerki í og 46-46-46-46-46-40 lykkjur á hvorri ermi. Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverju og einu af þessum 4 lykkjum með prjónamerki í. Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á framstykki/bakstykki og í sléttprjóni á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-0-1-3-5-12 sinnum og síðan í hverri umferð alls 1-2-3-5-3-0 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 244-260-280-312-324-344 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 21-23-25-26-28-30 cm frá þar sem prjónamerkin voru sett í framstykkið og ca 26-28-30-32-34-36 cm frá öxl. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (allar lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 74-80-86-94-100-108 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (allar lykkjur á milli 3. og 4. prjónamerkis), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 74-80-86-94-100-108 lykkjur (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-176-192-208-224-244 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón fram að prjónamerki – umferðin byrjar nú hér. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður. ATH. Þær 4-4-4-4-4-6 lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir hvorri ermi, prjónast í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 21 cm frá skiptingu í öllum stærðum – endið eftir 6. eða 12. umferð í A.1. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-50-54-62-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-12-14 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-2½-2½-2 cm millibili alls 4-5-7-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 33-32-31-30-29-27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 38-37-36-35-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countryspicesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.