DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Wreath

Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli, áferðamynstri, gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-34
DROPS Design: Mynstur sk-172
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 02, perlugrár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta stuðul) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (þær koma ekki í stað fyrstu fastalykkju) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Byrjið strax á eftir prjónamerki, heklið 1 stuðul, heklið 2 næstu stuðla saman þannig:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (1 lykkja færri), heklið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 næstu stuðla saman og endið með 1 stuðul í síðustu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað í hring hvert fyrir sig.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 84-86-90-92-96-100 loftlykkjur með heklunál 4,5 með DROPS Sky og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og LOFTLYKKJA! Heklið 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 12 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Heklið mynstur A.1 yfir allar lykkjur.
Í 2. umferð í A.1 er aukið út um 32-38-38-40-40-44 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 116-124-128-132-136-144 lykkjur.
Heklið A.2 yfir allar lykkjur.
Í 3. umferð í A.2 er aukið út um 28-36-36-36-36-40 stuðla jafnt yfir = 144-160-164-168-172-184 lykkjur.
Í 4. umferð í A.2 er aukið út um 26-25-31-32-38-41 stuðla jafnt yfir = 170-185-195-200-210-225 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið A.3 yfir allar lykkjur.
Í 4. umferð í A.3 er aukið út um 25-25-35-35-40-40 stuðla jafnt yfir = 195-210-230-235-250-265 lykkjur.
Í 9. umferð í A.3 er aukið út um 16-17-16-29-31-34 stuðla jafnt yfir = 211-227-246-264-281-299 lykkjur.
Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 13-17-14-28-27-33 stuðla jafnt yfir = 224-244-260-292-308-332 lykkjur.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 34-38-40-44-48-52 lykkjum (hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 44-46-50-58-58-62 lykkjur fyrir ermi og heklið 8-8-10-10-12-12 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 68-76-80-88-96-104 lykkjum (framstykki), hoppið yfir næstu 44-46-50-58-58-62 lykkjur fyrir ermi og heklið 8-8-10-10-12-12 loftlykkjur undir ermi og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 34-38-40-44-48-52 lykkjur (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-168-180-196-216-232 lykkjur. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju undir ermi.
Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-22-22 cm frá skiptingu, heklið A.4 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 5 cm frá fyrstu umferð í A.4.
Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Nú er heklað áfram yfir lykkjur sem hoppað var yfir í annarri hlið á stykki þannig:
Heklið 1 keðjulykkju í 4.-4.-5.-5.-6.-6. loftlykkju undir ermi, 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af 3-3-4-4-5-5 loftlykkjum, 1 stuðull í hverja af 44-46-50-58-58-62 lykkjum sem hoppað var yfir, 1 stuðull í hverja af síðustu 4-4-5-5-6-6 loftlykkjum sem heklað var undir ermi = 52-54-60-68-70-74 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-12 loftlykkjur undir ermi. Umferðin byrjar hér.
Heklið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju.
Þegar ermin mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 5-4-3½-2-2-2 cm millibili alls 6-6-8-12-12-13 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur.
Þegar ermin mælist 35-33-33-31-31-29 cm frá skiptingu, heklið A.4 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 5 cm frá fyrstu umferð í A.4. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið hálsmálið niður að röngu á peysu þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli og saumið e.t.v. nokkur spor í hvorri hlið til að það haldist niðri.

Mynstur

symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í/í kringum lykkjurnar að neðan
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðull í kringum lykkjuna fyrir neðan (ekki er heklað í lykkjubogana, en í kringum sjálfan stuðulinn) þannig: Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í kringum næsta stuðul að aftan, þ.e.a.s. efsti liðurinn frá fyrri stuðlaumferð leggst að réttu og heklið stuðulinn til loka
symbols = útaukningsumferð – sjá útskýringu í mynstri
symbols = Kúla: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna fyrir neðan, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, dragið í báða uppslættina þannig að þeir verði langir (til að koma í veg fyrir að kúlurnar verði of smáar og saman pakkaðar þá er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er þar til hann stoppar, þ.e.a.s. 1 stuðull á hæð) *, heklið frá *-* alls 7 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 15 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 1 fastalykkja í kringum lykkjuna fyrir neðan (ekki er heklað í lykkjubogana, en í kringum sjálfan stuðulinni) þannig: Stingið heklunálinni utan um næsta stuðul að aftan, þ.e.a.s. efsti liðurinn á fyrri stuðlaumferð leggst að réttu og heklið fastalykkjuna til loka

symbols = 1 stuðull um loftlykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 loftlykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Linda wrote:

Hello, no answer in CZ so far...? I have a question: a 10 cm test sample should have 16 DS. I'm crocheting a stand, size XL - 92 starting DCs. In the size drawing of the sweater, the stand should be 21 cm (i.e. 42 cm in total) = according to the test sample, it comes out to 67.2 DS, not 92...? The result is that I have a stand about 27 cm wide (total circumference 54 cm) instead of the stated 21 cm (or 42 cm). Can you clarify this for me? Thank you. 02/07/2024 - 08:54

18.03.2024 - 21:52

DROPS Design answered:

Dear Linda, the 21 cm in the chart are for the width of neck, when jumper lies flat, the 92 sts will measure approx 58 cm circomference but these also include the shoulders (4 cm shoulders). So that you get: 58 - 16 cm shoulder / 2 = 21 cm. Happy crocheting!

19.03.2024 - 11:11

country flag Dagmar wrote:

Again trying to get the Silver Wreath going smoothly...... Was there a reason you decided not to include "in written pattern of yoke" all changes in pattern such as bobbles and mesh? Yes you have it on diagram IF you can understand it. However the Written pattern (especially yoke) does "not" match the picture. How very disappointing.....

10.02.2024 - 02:33

country flag Dagmar wrote:

Whew! All morning I have struggled with Silver Wreath pattern. What in the heck does "dc around stitch below mean"?? Your verbal explanation is not clear. And I looked for a tutorial but you have none. This is extremely frustrating!!

08.02.2024 - 23:32

country flag Dagmar wrote:

In conclusion in would be "far" more efficient rather than all the written and short videos to do "One Complete Video Tutorial" for sweater pattern as so many other people do. Sectioned off with time stamps for "particular stitches". To visually see is by far more efficient. I've spent hours on end trying to figure your instructions.

08.02.2024 - 21:34

country flag Dagmar wrote:

Your English interpretation is not clear and too complicated to understand. I am struggling with your patterns. It doesn't translate if you are thinking in your language and translating to English. Best to have an English speaker who speaks your language to do the translating.

08.02.2024 - 21:08

country flag Linda wrote:

Dobrý den, mám dotaz: zkušební vzorek 10 cm má mít 16 DS. Háčkuji stojáček, vel. XL - 92 počátečních ŘO. V nákresu velikosti svetru má mít stojáček 21 cm (tzn. celý 42 cm) = podle zkušebního vzorku to vychází 67, 2 DS, nikoli 92...? Výsledkem je, že mám stojáček široký asi 27 cm (celý obvod 54 cm) místo uvedených 21 cm (resp. 42 cm). Můžete mi to vyjasnit? Děkuji.

07.02.2024 - 08:54

country flag Gillian wrote:

Hi, I have 195 stitches after row 1 of A3 which is correct for size L. I then work the two shell rounds (2 trebles/chain/2 trebles) over 5 stitches, followed by the third round of A3 (5 trebles across each shell inc chain) with increases, but end up with 380 stitches instead of 230.

17.01.2024 - 18:47

DROPS Design answered:

Dear Gillian, A.3 is worked over 5 sts, this means you will repeat A.3 a total of 39 times in width, work A.3 as follows on 2nd row:( skip 2 sts, (2 tr, 1 ch, 2 tr) in the next st, skip 2 sts), repeat from (to) to the end of the round, you will have a total of 39 tr groups (1 in each repeat). On 4th round in A.3, work 1 tr in each stitch (= still 5 sts in each A.3) but increase evenly 35 sts = 195+35=230 sts. Hope it can help. Happy crocheting!

18.01.2024 - 08:48

country flag Eimante wrote:

Hello, I chained 84 stitches and joined them in a ring, and since it is supposed to be a neck, how can it be enough? My head doesn't fit. How loose the foundation chain is supposed to be?

18.11.2023 - 18:43

DROPS Design answered:

Dear Eimante, make sure you get the correct tension; then make sure the foundation chain will not be too tight, use a larger crochet if needed making sure this is loose enough, if you increase the number of stitches, the neck edge will be then too large around your own neck. Happy crocheting!

20.11.2023 - 10:12

country flag Esperanz wrote:

El jersey queda perfecto hasta la última vuelta de A.3. Después he hecho 14 vueltas para acabar el canesú pero, al no haber más aumentos, los hombros quedan encajados, no hay movilidad para los brazos. Debería ir aumentando puntos en esas 14 vueltas??

12.10.2023 - 13:50

DROPS Design answered:

Hola Esperanza, comprueba que la tensión del tejido esté correcta. Si se mantiene la tensión del tejido indicada arriba, después de A.3, deberían quedarte alrededor de 3 vueltas para que el canesú llegue a la medida final, antes de dividir. Ten en cuenta que la tensión es : 8 filas = 10cm, así que si trabajaras 14 vueltas significa que estás trabajando aprox. 20cm más, cuando el canesú debe medir entre 21 y 29cm (dependiendo de la talla) en total.

15.10.2023 - 23:49

country flag Nienke wrote:

Moet ik aan het begin van de trui doorgaan met 1 stokje per steek tot een hoogte van 12 cm? En dan aan de pas beginnen?

13.09.2023 - 17:01

DROPS Design answered:

Dag Nienke,

Ja klopt, je haakt 12 cm in de hoogte voor de hals en dan begin je aan de pas.

13.09.2023 - 20:09