Merja HS skrifaði:
Hei Takakappale. ”Kaikki mitat otetaan jatkossa tästä!” Seuraavaksi ohje sanoo ”Neulo tasona sileää kunnes kädentien ulkoreunaan pituus on 19 cm.” Mitataanko 19 cm ”tästä” vai työn aloitusreunasta? En hahmota kappaleen muodostumista, siitä pitäisi olla erillinen kaaviokuva.
11.10.2022 - 19:54DROPS Design svaraði:
Hei, mitta otetaan "tästä", mutta kädentien ulkoreunan kohdalta, jossa työ on kaikkein lyhyin.
13.10.2022 - 17:31
Marion skrifaði:
Gingerbread
05.08.2022 - 15:07
Marmalade#marmaladesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri öxl / skáhallandi öxl. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-23 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 30-30-34-36-38-40 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innanverðu við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð áfram. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 26-28-28-30-32-36 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 82-86-90-96-102-112 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið áfram sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 16-17-18-19-19-20 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið út á eftir 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-32-34-36-40 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið út á undan 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-32-34-36-40 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 30-32-32-34-36-40 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 22-22-26-28-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 30-32-32-34-36-40 lykkjur frá vinstra framstykki = 82-86-90-96-102-112 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 22-23-24-25-27-28 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 82-86-90-96-102-112 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-12-16-16 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 82-86-90-96-102-112 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-6-8-12-16-16 nýjar lykkjur í lok umferðar = 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 188-200-216-236-260-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur, endurtakið fyrstu 4 umferðir á hæðina. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið A.1 til loka, síðan eru 4 síðustu umferðir endurteknar þar til stroffið mælist alls 12 cm. Fellið af. Peysan mælist 54-56-58-60-62-64 cm, mælt efst á öxl inn að hálsmáli. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 5 og DROPS Brushed Alpaca Silk, prjónið upp frá réttu 37-39-41-43-46-48 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 27-29-31-31-32-34 lykkjur frá öxl og niður að botni á handveg í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 64-68-72-74-78-82 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-2-2-4-5-5 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-4-5-6-6 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-4-3-3-2½-2 cm millibili alls 6-8-9-9-10-11 sinnum = 52-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-36-36-35-34-32 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 12 cm að loknu máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur, endurtakið fyrstu 4 umferðir á hæðina. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið A.1 til loka, síðan eru endurteknar 4 síðustu umferðir þar til stroffið mælist alls 12 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 48-48-48-47-46-44 cm frá prjónamerki. HÆGRI ERMI: Prjónið alveg eins og vinstri ermi, en prjónuð upp lykkjur í gagnsæðri hlið, þ.e.a.s. prjónið upp 27-29-31-31-32-34 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 37-39-41-43-46-48 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 68 til 92 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur, endurtakið fyrstu 4 umferðirnar á hæðina. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið A.1 til loka, síðan eru 4 síðustu umferðir endurteknar þar til stroffið mælist alls 8 cm. Fellið af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marmaladesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.