DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Candy Harvest

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 237-39
DROPS Design: Mynstur fa-508
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-450 g litur 920, fantasíuland

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu í hverri umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum fyrir lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-136-140-152-164-168 lykkjur með DROPS Fabel yfir hringprjón 3 og hringprjón 3,5 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 3,5 og haldið lykkjunum eftir á hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).

Þegar stroffið mælist 12 cm, er það brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt frá réttu JAFNFRAMT er önnur hver lykkja prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5.

Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð snúið.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkið er notað þegar auka á út fyrir laskalínu.

Teljið 20-24-24-27-30-31 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-18-20-20-20-20 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 40-48-48-54-60-62 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-18-20-20-20-20 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 20-24-24-27-30-31 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan.

Byrjið frá réttu, 3 lykkjum fyrir 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 11 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 11 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 26-28-32-36-42-48 sinnum (meðtalin útaukning í stuttu umferðunum) = 328-360-396-440-500-552 lykkjur.
Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm mælt mitt að framan (mælt eftir kanti í hálsmáli). Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:

Prjónið fyrstu 47-53-57-64-73-80 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 70-74-84-92-104-116 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 94-106-114-128-146-160 lykkjur (framstykki), setjið næstu 70-74-84-92-104-116 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 47-53-57-64-73-80 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki).

Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-226-242-270-306-334 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem aukið er út um 18-22-22-26-30-34 lykkjur jafnt yfir = 220-248-264-296-336-368 lykkjur.
Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 3 cm í öllum stærðum.
Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 70-74-84-92-104-116 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-81-91-99-111-123 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-2½-2-1½-1 cm millibili alls 9-9-13-16-21-24 sinnum = 59-63-65-67-69-75 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-34-33-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 5-5-7-5-7-9 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-72-76-84 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm í öllum stærðum.
Fellið af. Ermin mælist ca 43-42-41-40-39-37 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Ghislaine Hendriks wrote:

Hola otra vez, Lo siento, ya lo he visto. Son las 7 puntos que montas debajo de la manga a los dos lados. Perdoname! Gracias!

10.04.2024 - 11:05

country flag Ghislaine Hendriks wrote:

Hola, No entiendo muy bien como suman los puntos. Tienes que parar aumentar con 396 puntos. Pero despues separan las mangas con 84 puntos cada uno y el cuerpo con 242 puntos. Suman 410 puntos. Mientras en la explicacion de separar las mangas del cuerpo, dicen que hay 114 y dos veces 57 puntos para el cuerpo, que suman 228. Hablo de la talla M. No entiendo donde esta la diferencia de los puntos. Muchas gracias

10.04.2024 - 10:48

country flag Susanne wrote:

Er det rigtigt at der skal strikkes 25 cm før der deles til ærmer, for og bag ? Synes det er langt.

21.02.2024 - 14:24

DROPS Design answered:

Hej Susanne, du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften (mål gerne en bluse som du synes om at have på og vælg den størrelse i måleskitsen med de mål som passer dig)

22.02.2024 - 11:47

country flag Tina Albertsen wrote:

Jeg er igang med denne opskrift, men forstår ikke udtagningen til raglan helt. Hvorfor tages der kun ud på forkortede pinde FORAN på arbejdet, altså fra mærke 3 til mærke 2? Som jeg forstår opskriften bliver der en forskel på for og bag på arbejdet. Og så vil jeg høre om det skal forstås som at der begyndes 3 masker EFTER mærke 3 (altså mærkemaske plus 3 masker) eller 3. maske efter mærkemaske (altså mærkemaske plus 2 masker)?

01.02.2024 - 14:47

DROPS Design answered:

Hei Tina. 1) Tråden er klippet og du starter fra 3 masker før masken med 3. merket i. Dvs i venstre side av halsen foran dersom du tenker at du har plagget på. Du starter 3 masker før masken med 3. merket, så strikker du over 3. merke, så over 4. merke, så over 1. merke og så 3 masker forbi 2. merke, snu arbeidet. Strikk tilbake fra vrangen, først over 2. merke, så 1. merke, så 4. merke og så 7 masker forbi 3. merke. Fortsett som forklart i oppskriften. 2) Du starter 3 masker etter masken med 3. merket i. mvh DROPS Design

12.02.2024 - 09:26

country flag Anita wrote:

Kan 237-39 candy harvest strikkes uden at man bruger vendepinde?

15.12.2023 - 16:14

DROPS Design answered:

Hei Anita. Ved å strikke vendingene vil du få en bedre passform, men du kan kutte ut vendigene og strikke for -og bakstykket likt. Du vil da kanskje føle at halsen kommer litt for mye opp i front. mvh DROPS Design

18.12.2023 - 07:24

country flag Daria wrote:

A quanto ammontano le maglie aumentate per il raglan nella parte lavorata a ferri accorciati?

27.11.2023 - 18:15

DROPS Design answered:

Buonasera Daria, deve aumentare per il raglan dove indicato, nei ferri accorciati. Buon lavoro!

30.11.2023 - 22:50

country flag Janne wrote:

Når 3. merke er "venstre side av halsen foran" og 2. merke er "høyre side av halsen foran" og man skal strikke forkortede rader fram og tilbake mellom disse to, blir ikke forhøyningen foran da?? Jeg er svært forvirret her og håper dere kan oppklare så jeg kommer videre.

20.10.2023 - 14:25

DROPS Design answered:

Hei Janne, Forkortede pinner er mellom disse merkene, men du strikker fra retten og begynner på venstre siden av halsen (3 masker før merke 3), rundt bakstykke til venstre siden av halsen (3 masker forbi merke 2). God fornøyelse!

23.10.2023 - 07:38

country flag Janne wrote:

Er det riktig at de forkortede radene strikkes foran slik at forstykket blir høyere enn bakstykket? Virker merkelig for meg. Kan det være riktig eller har jeg misforstått totalt?

20.10.2023 - 13:05

DROPS Design answered:

Hej Janne, hvis du følger opskriften får du de forkortede rader på bagstykket :)

24.10.2023 - 08:29

country flag Pia Majbrit Hjort wrote:

Drops 237-37 Tak for jeres mange super skønne :-) Dog må jeg bare sige at det ikke altid er nemt af læse dem. Tror ikke helt jeg forstår hvorfor I indsætter henvisninger til "raglan", "halsudskæring" og lign. og udelader det i opskriften. Hele tiden skal vi op at læse og "sætte ind". Personligt vil jeg meget hellere at det står løbende i opskriften hvad jeg skal. I lægger så mange gode videoer ind. så hvis man er i tvivl er det nemt at finde Venlig hilsen Pia

13.05.2023 - 11:45

country flag Helle Pedersen wrote:

Hej! Hvorfor skal der laves halsudskæring, når der er strikket dobbelt halskant? Hvordan skal man strikke halsudskæring? Hvordan kommer man videre fra den dobbelte halskant til halsudskæringen? Ny rundpind eller hvordan?

12.02.2023 - 22:13

DROPS Design answered:

Hei Helle. 1) Det strikkes en halsringning slik at det blir en forhøyning bak / passformen blir bedre. Man kan strikke en halsringning uansett om det er en enkel eller dobbelt halskant. 2) Du strikker frem og tilbake over det maskeantallet det står i oppskriften under HALSUDSKÆRING. 3) Når du har strikket halskanten og satt 4 merker i arbeidet klipper du tråden. Du starter et nytt sted med ny tråd slik det er beskrevet i oppskriften (Start fra retten, 3 masker før 3.merke). Ta gjerne en titt på hjelpevideoen: Hvordan tages der ud til raglan og strikkes forkortede pinde samtidigt mvh DROPS Design

13.02.2023 - 14:10