DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12496.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Salted Caramel

Prjónuð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-7
DROPS Design: Mynstur pu-060
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 17, nougat
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 42, mandla

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12496.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður þar til útaukning fyrir axlarsæti er lokið. Síðan eru lykkjur fyrir öxl settar á þráð og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til berustykkið og fram- og bakstykki hefur verið prjónað til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 66-72-72-78-78-90 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 14 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 64-72-72-80-80-88 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Setjið 1. prjónamerki eftir 8-12-12-12-12-16 lykkjur (ca hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (öxl), setjið 2. prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 18-22-22-22-22-26 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (öxl), setjið 4. prjónamerki hér, nú eru 10-10-10-10-10-10 lykkjur eftir í umferð (ca hálft bakstykki).

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og aukið út um 4 lykkjur í umferð þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls 20-20-24-28-32-32 sinnum = 144-152-168-192-208-216 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 11-11-13-15-17-17 cm mælt eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir öxl, framstykki og bakstykki þannig:
Prjónið fyrstu 30-34-38-42-46-50 lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið næstu 62-66-74-82-90-94 lykkjur (= framstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið síðustu 32-32-36-40-44-44 lykkjur (= ca hálft bakstykki). Klippið þráðinn og setjið lykkjur fyrir bakstykki á þráð. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 62-66-74-82-90-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki ca mitt í umferð, stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni eins og áður og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju í lok fyrstu 2 umferða (= 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 13-14-15-15-16-17 cm frá prjónamerki, fitjið upp 4-5-5-5-5-6 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 72-78-86-94-102-108 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni.
Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 14-20-18-22-20-20 lykkjur jafnt yfir = 86-98-104-116-122-128 lykkjur.
Prjónið stroff frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið áfram með stroff með því að prjóna sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón í 3 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI.
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður frá axlalykkjum.
Setjið eitt prjónamerki mitt í axlalykkjurnar. Ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Byrjið með 1 þræði í hvorri tegund og hringprjón 6 og prjónið upp lykkjur fyrir handveg frá réttu innan við 1 kantlykkju garðaprjón þannig: Byrjið neðst og innst í horni við handveg og prjónið upp 23-23-23-23-27-27 lykkjur upp við axlalykkjurnar, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur eins og áður, prjónið upp 23-23-23-23-27-27 lykkjur niður meðfram hinni hliðinni og niður að horni innst við handveg = 56-56-56-60-68-68 lykkjur.
Nú er prjónað sléttprjón og stuttar umferðir fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið sléttprjón upp að axlalykkjum, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur, prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Snúið, herðið á þræði svo ekki myndist gat.
UMFERÐ 2: Prjónið yfir fyrstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 16-16-16-20-20-20 lykkjur, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið yfir fyrstu 18-18-18-22-22-22 lykkjur, snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið 2 lykkjur fleiri í hverri umferð sem prjónuð er. Þegar 1 lykkja er eftir í hvorri hlið eru stuttum umferðum lokið. Ermakúpan mælist ca 12-12-12-12-14-14 cm. Takið prjónamerkið úr og setjið mitt á ermi. Héðan er nú stykkið mælt. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 7-7-7-7-7-8 cm frá þar sem stuttu umferðum lauk, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-4-2-2 cm millibili alls 6-6-6-7-10-10 sinnum = 44-44-44-46-48-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-37-36-35-32-32 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 6-6-6-4-8-8 lykkjur jafnt yfir = 50-50-50-50-56-56 lykkjur.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff með því að prjóna sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón í 3 cm. Fellið af þegar stykkið mælist 40-40-39-38-35-35 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermi innan við 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið neðan frá og upp og saumið efstu 3-3-3-3-3-4 cm undir ermi að 4-5-5-5-5-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir handveg í hlið á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma. Endurtakið í hinni hliðinni.

Mynstur

symbols = útaukning fyrir axlarsæti
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Dawn wrote:

After increasing to 168 stitches, I am confused. Initially 14 stitches are for each shoulder., which then gives 70 stitches each for front and back. But when dividing for back and front it says to work 10stitches and put on a thread giving 74 each for front and back. Is this a typo? Size L.

21.03.2023 - 22:02

DROPS Design answered:

Dear Dawn, the first 2 stitches and the last 2 stitches on each shoulder will be worked to back/front piece, so that from the first 14 sts (first shoulder) at the beginning of the round will be divided as follows: first 2 sts belong to back piece, next 10 sts belong to shoulder and are slipped on a thread, last 2 sts belong to front piece; work the 70 sts front piece and repeat: next 2 sts (first sts 2nd shoulder) belong to the front piece, slip next 10 sts for 2nd shoulder, work next 2 sts to back piece. You have now 74 sts for front piece. Happy knitting!

22.03.2023 - 08:48

country flag Beleke Bagchus wrote:

Ik begrijp niet zo goed hoe ik garens kan vergelijken als ik met 2 draden moet werken. Kunt u mij doorgeven wat een goed vervanging zou zijn? Ik zou graag Drops Air gebruiken en dan 1 draad. Is dat een optie? Alvast hartelijk dank voor uw antwoord.

16.10.2022 - 15:22

DROPS Design answered:

Dag Beleke,

In dit patroon wordt een garen uit garengroep A en een garen uit garengroep B samen gebruikt, dit resulteert in een dikte iets dikker dan garengroep C. DROPS Air valt in garengroep C. Je zou er ook voor kunnen kiezen om dan iets dikkere naalden te gebruiken zodat je op dezelfde stekenverhouding uitkomt. Via deze link kun je meer informatie vinden over het vervangen van garens.

16.10.2022 - 16:10

country flag Ellie wrote:

Is it possible to knit the body in the round, instead of dividing the front and back pieces?

22.09.2022 - 11:11

DROPS Design answered:

Hej Ellie, nej ikke i denne konstruktion, men du kan sætte forstykke og bagstykke sammen fra under ærmerne og ned :)

22.09.2022 - 14:51

country flag Eva wrote:

Equestrian

04.08.2022 - 14:46