Maria skrifaði:
Hola, estoy haciendo este modelo en talla S y no entiendo cómo luego de los aumentos llega a 366 ni cómo se distribuye entre mangas, frentes y espalda. Gracias!
06.12.2022 - 03:44DROPS Design svaraði:
Hola Maria, 366 es el número de puntos que deberías tener después de terminar todos los aumentos. Al inicio del raglán, te indicaban los puntos para cada parte, separados por A.1 (sobre el que después trabajas A.2). Se aumentan 40 puntos para cada manga (aumentas 2 puntos cada 2ª hilera 10 veces y después 2 puntos cada 4ª hilera 10 veces). = 80 puntos aumentados. En cada parte del cuerpo (delantero y espalda) aumentas 2 pts cada 2ª hilera 24 veces, después 2 pts cada 4ª hilera 7 veces. = 124 puntos aumentados. Por lo tanto, a partir de los 162 puntos iniciales, aumentando 80 puntos en las mangas y 124 en el cuerpo tienes 366 puntos.
06.12.2022 - 18:48
Rosa Maria skrifaði:
Mod Sage Twist : no ho capito come si lavora il gettato sul rovescio per avere inclinazione a dx o sx , mi potete mandare il video se c'è? Grazie saluti
01.11.2022 - 07:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Rosa Maria, deve seguire le indicazioni riportate nel paragrafo RAGLAN: in un caso deve lavorare la maglia a rovescio nel filo dietro della maglia invece di quello davanti, nell'altro caso deve prima "ritorcere" la maglia sul ferro e poi lavorare il gettato a rovescio normalmente. ecco un video che può aiutarla: Buon lavoro!
01.11.2022 - 16:52
Monika skrifaði:
Hallo, habe die Jacke bis zum Beginn des Abschnitt's Passe in Gr L gestrickt. Bei der beschriebenen Zunahme besteht eine Maschendifferenz. Es sollen 26 M zugenommen werden (170-144) beschrieben werden nur 18 M. Wenn man den Maschenbestand insgesamt addiert kommt man mit den beschriebenen Zunahmen nur auf 106 M statt genannten 170 M?? Lieben Gruß Monika
29.10.2022 - 06:15DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, so wird es zugenommen: 2 Maschen beim linken Vorderteil + 4 Maschen bei jeder Ärmel + 6 Maschen beim Rückenteil + 2 Maschen beim rechten Vorderteil + 2 Maschen in jedem von den 4 gestrickten A.1 = 2+8+6+2+8=26 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
31.10.2022 - 08:36
Sage Twist Cardigan#sagetwistcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, köðlum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-32 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við mynsturteikningu A.1/A.2. Aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð þannig: Á UNDAN A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Lykkjan snýr til hægri. Á EFTIR A.1/A.2: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Lykkjan snýr til vinstri. Aukið svona út hvoru megin við A.1/A.2, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroff. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 122-130-130-138-138-142 lykkjur með DROPS Baby Merino yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 2,5 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 3 og haldið eftir lykkjunum á stuttum hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, XL og XXL: Prjónið 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið. STÆRÐ M, L og XXXL: Prjónið 2 lykkjur slét, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt. Prjónið stroff fram og til baka svona í 4½ cm. Í næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 7 lykkjur í lok umferðar = 136-144-144-152-152-156 lykkjur. Prjónið áfram í stroffprjóni eins og áður, en með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist ca 9 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður, jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli, héðan er nú stykkið mælt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan halda áfram eins og áður). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú útaukningu frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og aukið út um 2-1-2-1-2-3 lykkjur jafnt yfir næstu 12-14-14-16-16-18 lykkjur (14-15-16-17-18-21 lykkjur fyrir framstykki), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur (14 lykkjur fyrir ermi), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út 6-4-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir næstu 22-26-26-30-30-34 lykkjur (28-30-32-34-36-42 lykkjur fyrir bakstykki), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur (14 lykkjur fyrir ermi), prjónið A.1 prjónið sléttprjón og aukið út um 2-1-2-1-2-3 lykkjur jafnt yfir næstu 12-14-14-16-16-18 lykkjur (14-15-16-17-18-21 lykkjur fyrir framstykki) og prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – ATH! Fyrsta HNAPPAGATIÐ er núna gert – sjá útskýringu að ofan = 162-166-170-174-178-190 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu eins og mynstrið sýnir. Lestu næsta kafla áður en þú prjónar áfram! Lestu LASKALÍNA í útskýringu að ofan og byrjið útaukningu í næstu umferð frá réttu. JAFNFRAMT þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina er mynsturteikning A.2 prjónuð yfir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Það er aukið út mismunandi á ermum og framstykki/bakstykki þannig: ERMAR: Aukið út í annarri hverri umferð 10-12-10-20-30-40 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 10-12-15-12-9-4 sinnum. FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umferð 24-27-31-40-49-54 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 7-8-7-3-0-0 sinnum. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 366-402-422-474-530-582 lykkjur í umferð. Á milli hverra A.2 eru 54-62-64-78-92-102 lykkjur fyrir hvorri ermi og 90-100-108-120-134-150 lykkjur fyrir bakstykki og 52-57-61-67-74-82 lykkjur fyrir hvort framstykki. Nú er prjónað sléttprjón, kantlykkjur að framan í garðaprjóni, mynstur án útaukninga og án þess að gera kaðla í A.2 (prjónið einungis slétt og brugðið eins og í mynsturteikningu) þar til stykkið mælist 25-27-28-30-32-34 cm frá eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 53-58-62-68-75-83 lykkjur (mitt í A.2), setjið næstu 70-78-80-94-108-118 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 12-12-14-14-16-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 106-116-124-136-150-166 lykkjur slétt (bakstykki), setjið næstu 70-78-80-94-108-118 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 12-12-14-14-16-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 53-58-62-68-75-83 lykkjur slétt og endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig og stykkið er nú mælt héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 250-270-290-314-346-378 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kantlykkjum að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 19-19-20-20-20-20 cm frá skiptingu eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 14-18-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 264-288-312-340-372-408 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff eftir stærðum þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu): STÆRÐ S, XL og XXL: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. STÆRÐ M, L og XXXL: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-78-80-94-108-118 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 12-12-14-14-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-90-94-108-124-134 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Sjá ÚRTAKA! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-2-2 cm fækkið lykkjum mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Fækkið lykkjum með 2½-2-1½-1-1-½ cm millibili alls 12-15-16-21-28 sinnum. STÆRÐ XXXL: Fækkið lykkjum til skiptis með ½ og 1 cm millibili alls 32 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: = 58-60-62-66-68-70 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-34-34-32-31-30 cm frá skiptingu eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir 4 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 10-8-10-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-72-76-80 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sagetwistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.