Solveig Andersson skrifaði:
Hej, jag har lagt upp 89 m, sedan står det vid minskningstips att man ska minska 23 m tills man får 66 m, är det inklusive kantmaskorna. Hälsning Solveig
10.03.2025 - 11:48DROPS Design svaraði:
Hei Solveig. Ja, det er det. mvh DROPS Design
11.03.2025 - 09:13
Joan Laursen skrifaði:
Jeg undrer mig over atbredden på for og bagstykke, inden ribslidsen strikkes, kun er 49 cm? Jeg er ellers slank, men den vil sidde stramt. Vh Joan
03.11.2024 - 17:55DROPS Design svaraði:
Hei Joan. Husk målskissen viser bare den ene siden, altså vil omkretsen være i str. M 49+49= 98 cm. Strikket plagg er ganske elastisk/romslig. Selv om du bruker str. M til vanlig er det bedre å ta mål av en genser som passer deg og sammenlign med målene i målskissen for å finne beste str. og passform. mvh DROPS Design
04.11.2024 - 13:11
Alina skrifaði:
Witam .Na jakich drutach ma być zrobiona próba , bo są dwa rodzaje drutów ? Dziękuję
26.01.2024 - 22:19DROPS Design svaraði:
Witaj Alibi, próbka jest wykonana na drutach nr 7, tych na których jest wykonana główna część swetra. Pozdrawiamy
27.01.2024 - 08:46
Rita Domoney skrifaði:
Hi, I have a question about the neck edge ribbing. There is a decrease at middle front for the one side but not the other side of the middle stich. Is this correct? Thank you so much.
01.04.2022 - 16:40DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Domoney, you should decrease 1 stitch on each side of the middle stitch at the bottom of the neckline. Work until 1 stitch remains before the stitch on mid front, slip 2 sts as if you knit (the stitch before the middle stitch + the middle stitch), knit 1 (= the stitch after the middle stitch) and pass over the 2 slipped stitches over the knitted stitch (= you have decreased also the stitch before the middle stitch). Happy knitting!
04.04.2022 - 08:02
Randi Birkeland skrifaði:
Jeg blir litt forvirret når halskanten skal strikkes. Står at man må passe på at det blir en rett maske midt foran. Skal denne masken tas løst av og felles av? Hvilken maske vil da etterpp bli den midterste?
06.12.2021 - 16:54
Franca skrifaði:
Stimmt es, dass ich bei den Ärmel alle 17 cm zunehmen muss? Ich wäre dann doch schon nach zwei mal zunehmen über 46 cm?
05.11.2021 - 16:25DROPS Design svaraði:
Liebe Franca, die ersten Zunahmen bei den Ärmen entstehen nach 12 cm, die 2. nach 29 cm (17 cm weiter) und die 3. nach 46 cm, dann stricken Sie bis die Arbeit entweder 50 oder 48 cm misst (siehe Größe). Viel Spaß beim stricken!
08.11.2021 - 07:17
Annemiek Duim skrifaði:
Goedendag, ik heb eerder een trui gebreid in Drops melody. Een prima model maar na even dragen ‘ krimpt’ deze wol. Hij trekt als het ware op. Ik hoop dat u begrijpt wat ik bedoel en of hier iets tegen te doen is. Ik heb nog veel wol over en zou deze trui graag breien. Hartelijk dank.
22.09.2021 - 17:12
Sand Blizzard#sandblizzardsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með stroffi og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-49 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 21) = 3,8. Í þessu dæmi er prjónuð ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki er prjónað neðan frá og upp í stykkjum. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp í kanti í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 81-89-95-103-113-125 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 14 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 21-23-25-27-29-33 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 60-66-70-76-84-92 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 56-62-66-72-80-88 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-22-23-26-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 81-89-95-103-113-125 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 14 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 21-23-25-27-29-33 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 60-66-70-76-84-92 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 56-62-66-72-80-88 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð, það eiga að vera 28-31-33-36-40-44 lykkjur hvoru megin við prjónamerki. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið síðustu lykkjurnar á þráð án þess að prjóna þær. Héðan eru axlir prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Vinstri öxl er núna prjónuð héðan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). VINSTRI ÖXL (framstykki): Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum í öðrum hverjum cm 8-8-9-9-10-10 sinnum til viðbótar (alls 9-9-10-10-11-11 úrtökur, fækkið lykkjur með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman, fyrsta úrtakan er gerð þegar framstykkið skiptist) = 19-22-23-26-29-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (framstykki): Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum í öðrum hverjum cm (fækkið lykkjum með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð) alls 9-9-10-10-11-11 sinnum = 19-22-23-26-29-33 lykkjur eftir á öxl. ATH! Fyrsta úrtakan er gerð í fyrstu umferð sem var prjónuð). Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Fitjið upp 60-62-64-70-72-76 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 10 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-52-54-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 17-17-16-16-15-14 cm millibili alls 3 sinnum = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Þegar ermin mælist 50-48-48-47-44-42 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 52-50-50-49-46-44 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant í aftari lykkjubogana, þannig að það myndist ekki þykkur saumur. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi í botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir neðstu 14 cm = klauf. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt að aftan með stuttan hringprjón 5,5 og Melody og prjónið upp ca 78 til 98 lykkjur í kringum hálsinn – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en passið uppá að það komi 1 lykkja slétt nákvæmlega mitt að framan. JAFNFRAMT í hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttri lykkju mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmálið til með að leggjast fallega við hálsinn og slétta lykkjan kemur til með að fylgja eins og bein lína mitt að framan. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð þar til kanturinn í hálsi mælist 4 cm. Fellið laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandblizzardsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.