Tigresse skrifaði:
Bonjour, Je fais ce modèle en 11/12 ans. Je vais bientôt arriver au moment où mettre les mailles des manches en attente. Ma question est: combien de maille tricoter avant de glisser les 52 mailles en attente pour les manches? Je ne comprends pas bien vos explications. Merci d'avance pour votre réponse.
28.05.2024 - 12:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Tigresse, vous tricotez à partir du début du tour jusqu'au 1er marqueur pour le demi-dos, autrement dit vous aviez placé votre marqueur à 20 mailles après le début du tour et vous avez augmenté 20 fois, vous allez donc tricoter 40 mailles jusqu'au 1er marqueur - vous avez 80 mailles pour le dos et le devant et 52 mailles pour les manches, à chaque fois entre les marqueurs. Bon tricot!
28.05.2024 - 13:25
Anne-Marie QUIRET skrifaði:
Bonjour Comment éviter les trous sous le bras quand on relève les mailles en circulaire.Merci
17.01.2024 - 16:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Quiret, vous pouvez relever 1 maille en plus avant la maille à relever en (par ex) relevant le fil entre 2 mailles, déposez le torse sur l'aiguille gauche et tricotez cette maille et la suivante ensemble à l'endroit. Bon tricot!
18.01.2024 - 08:29
Linzaroo skrifaði:
Hello, which needles should I use for the tension swatch? The big needles (4mm) or the small needles (3mm)? Thank you!
17.12.2023 - 05:14DROPS Design svaraði:
Dear Linzaroo, you use the needles with which you will work the stocking stitch in the pattern, so the 4mm needles. Happy knitting!
17.12.2023 - 19:26
Emilie skrifaði:
Er den i opskriften angivne strikkefasthed 21 m på pind 3 eller 4?
23.11.2023 - 10:45DROPS Design svaraði:
Hej Emilie, vi har 21 m på 10 cm på pind 4, men brug den pind som passer dig, så du får 21 m på 10 cm :)
24.11.2023 - 14:34
Toni Caldwell skrifaði:
Hello, first time knitting a jumper. my question is i just finished the yoke and separating the sleeves, i have started the body and my question is do i measure from under the arms for from the neck?
07.11.2023 - 13:17DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Caldwell, body is measured from new stitches cast on mid under sleeve, finished measurement is not taken from the neck but from the shoulder: lay pullover flat and measure from shoulder down. Happy knitting!
08.11.2023 - 07:44
Monique Riverin skrifaði:
Puis-je tricoter un motif autre que jacquard dans un top-down ? Mon petit-fils veut un motif (pixel) Super Mario Bros…
13.07.2023 - 19:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Monique, bien sur que vous pouvez le faire. Vous pouvez utiliser la technique appellee intarsia ou jacquard, cela depends de ce motif. Bon tricot!
15.07.2023 - 21:14
Marie skrifaði:
Bonjour, J'ai fais mes 16 tours d'augmentations ( tous les deux rangs). J'ai bien 220 mailles. Mais seulement 12cm ! Vous dites : tricoter jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 14 cm depuis le marqueur col. Ma question est la suivante: faut'il continuer de tricoter en faisant des augmentations ou juste tricoter toutes les mailles a l'endroit...? Dans l'attente de votre réponse Cordialement
28.04.2023 - 17:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, continuez maintenant en jersey, sans augmenter, pendant encore 2 cm pour avoir la longueur demandée? Bon tricot!
02.05.2023 - 07:48
Hege skrifaði:
Det er en feil i oppskriften i str 9/10 år på maskeantallet. Når jeg har økt til raglan 19 ganger, så skal det være 256 masker på pinnene, ikke 252. Det blir også feil antall masker til ermer, det skal være 52 masker til ermer, ikke 50 :)
05.03.2023 - 10:43
Pusemuckel skrifaði:
Hallo! Kann man eine Erhöhung im Nacken stricken?
18.10.2021 - 21:04DROPS Design svaraði:
Liebe Pusemuckel, ja wahrscheinlich, gerne können Sie sich von einem ähnlichen Modell mit Erhöhung inspirieren. Viel Spaß beim stricken!
19.10.2021 - 07:50
Tante M skrifaði:
Kan denne strikkes med garnet Drops Air?
10.09.2021 - 13:01DROPS Design svaraði:
Hej, Tante M, nej da bliver den for kompakt, du kan strikke den i feks DROPS Sky eller andre fra garngruppe B. God fornøjelse!
10.09.2021 - 15:19
Just in Tweed#justintweedsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð 3 – 14 ára.
DROPS Children 40-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,75. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerki í umferð þannig (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna / hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-80-84-88-88 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með DROPS Soft Tweed. Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) hringinn í umferð. Þegar stroffið mælist 5 cm, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 92-96-96-100-104-104 lykkjur. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Teljið 17-18-18-19-20-20 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki hér. Teljið 12 lykkjur og setjið 2. prjónamerki hér (= ermi). Teljið 34-36-36-38-40-40 lykkjur (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki hér. Teljið 12 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér. Nú eru 17-18-18-19-20-20 lykkjur (= hálft bakstykki) fram að byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-17-19-19-20-22 sinnum = 220-232-248-252-264-280 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, byrjið mitt að aftan og prjónið að 1. prjónamerki (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Prjónið næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi og prjónið fram að byrjun á umferð (= 66-70-74-76-80-84 lykkjur á bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrri sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 18-21-24-27-29-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar er út 28-28-32-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 172-180-192-200-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1 hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Peysan mælist ca 40-44-48-52-55-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-46-50-50-52-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-52-56-58-60-64 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-5½-5½-6-7-6½ cm millibili alls 4-4-5-5-5-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 19-23-27-31-35-39 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.1 hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 24-28-32-36-40-44 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #justintweedsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.