Kristi skrifaði:
Is the main part of body really made with no 3 and arms with no 4? Or should I change after neck from no 3 to no 4 needles?
17.09.2021 - 22:43DROPS Design svaraði:
Dear Kristi, thanks for noticing, pattern has been now edited, you switch to larger needles when starting yoke. Happy knitting!
23.09.2021 - 08:14
Diane L Schmelz skrifaði:
Can’t wait to make this!
17.08.2021 - 16:42
Bee Season Jumper#beeseasonjumper |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og með útaumuðum blómum og býflugu. Stærð 3-14 ára.
DROPS Children 40-1 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,75. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í umferð (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru saumuð út tvö blóm og blýfluga á framstykkið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-104-104-112-112-112 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan A.1 (13-13-13-14-14-14 mynstureiningar með 8 lykkjum) hringinn í umferð. Í síðustu umferð í A.1 eru auknar út 0-3-3-0-3-3 lykkjur jafnt yfir = 78-81-81-84-87-87 lykkjur. Prjónið nú mynstur A.2 hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það er lengst, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir í hringprjón 4.Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-15-15-16-17-17 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 92-96-96-100-104-104 lykkjur. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Teljið 17-18-18-19-20-20 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki hér (= á milli bakstykkis og ermi). Teljið 12 lykkjur og setjið 2. prjónamerki hér (= ermi). Teljið 34-36-36-38-40-40 lykkjur (= framstykki) og setið 3. prjónamerki hér. Teljið 12 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér. Nú eru 17-18-18-19-20-20 lykkjur (= hálft bakstykki) fram að byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-17-19-19-20-22 sinnum = 220-232-248-252-264-280 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið mitt að aftan og prjónið að 1. prjónamerki (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Prjónið næstu 66-70-74-76-80-84 lykkjur (= framstykki), setið næstu 44-46-50-50-52-56 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í hlið undir ermi og prjónið fram að byrjun á umferð (= 66-70-74-76-80-84 lykkjur á bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 19-22-25-28-30-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru lykkjur auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar er út 27-28-32-33-37-35 lykkjur jafnt yfir = 171-180-192-201-213-219 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.2 hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Peysan mælist ca 40-44-48-52-55-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-46-50-50-52-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-52-56-58-60-64 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-5-5-6-7-6½ cm millibili alls 4-4-5-5-5-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-29-33-37-41 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-10-8-9-10-8 lykkjur jafnt yfir = 51-54-54-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.2 hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 25-29-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. BLÓM OG BÝFLUGA: Saumið er út 1 býfluga og 2 blóm á framstykki – sjá mynd. Býflugan er saumuð út með einföldum þræði og flatsaumi í röndum og á toppinn eru staðsettir 2 vængir í keðjuspori. Saumuð eru út 2 mismunandi blóm. BÝFLUGA – KOKSGRÁR BÚKUR: Byrjið með 1 þræði með litnum koksgrár – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu. Byrjið á að sauma út ca 4-5 cm niður frá kanti í hálsmáli og ca 8-10 cm frá vinstri laskalínu á framstykki. Saumið út 2 spor með flatsaum á ská upp til hægri, þétt saman ca 0,5 að lengd. Hoppaðu upp til vinstri ca 0,5 cm, samhliða með fyrstu 2 sporunum og saumaðu 4 spor með flatsaum þétt saman sem eru ca 1 cm að lengd (= miðjan á býflugu), hoppaðu fram 0,5 cm samhliða með miðju spori og saumaðu 2 spor flatsaum þétt saman sem eru ca 0,5 cm löng. Nú á að sauma út fætur undir miðju á 4 miðju sporum, saumið 2 spor flatsaum fyrir fætur sem eru ca 0,5 langir. BÝFLUGA – SINNEPSGULUR BÚKUR: Skiptið yfir í 1 þráð með litinn sinnepsgulur. Saumið nú með flatsaumi í bilið á milli miðju á býflugu og framhlið á býflugu – saumið 4 spor með flatsaum jafn löng spor og koksgráa sporið sem er næst. Saumið síðan flatsaum í bilið á milli miðju á býflugu og bakhluta á býflugu – saumið 4 spor með flatsaumi jafn löng og koksgráa sporið sem er næst. BÝFLUGA – VÆNGIR: Notið 1 þráð og litinn hvítur, vængirnir samanstanda af 2 sporum keðjusaum sem báðir byrja frá sömu átt. Byrjið á að sauma út þannig: SPOR 1: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins aftur á bak að bakhluta á býflugu – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu. SPOR 2: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins fram að framhlið á býflugu. BLÓM-1 (7 krónublöð): Byrjið með að sauma út leggsaum með litnum bleikur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Hnúturinn er staðsettur ca 3 cm frá býflugu, á ská niður til hægri. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum hvítur - sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 7 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1,5 cm langt. Klippið þræðina og festið. BLÓM-2 (5 krónublöð): Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum bleikur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður út þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Hnúturinn er staðsettur ca 5 cm frá miðju á blómi-1, á hlið niður til vinstri. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum hvítur – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 5 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1 cm langt. Klippið þræðina og festið. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beeseasonjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.