DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Belle yarn
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3410.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Swing by Spring Top

Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, blaðamynstri og stuttum blöðruermum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 222-32

#swingbyspringtop

DROPS Design: Mynstur vs-078
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3410.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-100-104-108-112-120 lykkjur á hringprjón 3 með Belle.
Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-3-3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 umferðina hringinn (= 25-25-26-27-28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.1 er lokið, eru 200-200-208-216-280-300 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 4-4-4-4-6-6 cm frá prjónamerki.
Prjónið síðan A.2 umferðina hringinn (= 25-25-26-27-28-30 mynstureiningar með 8-8-8-8-10-10 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 er lokið, eru 275-300-312-351-392-420 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-14-14-17-19-19 cm frá prjónamerki (þ.e.a.s. alls 16-16-17-20-22-22 cm frá uppfitjunarkanti).
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 38-42-44-50-58-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 75-84-88-99-116-126 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 62-66-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-42-44-50-58-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 167-184-200-223-256-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-12-12-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 83-92-100-111-128-138 lykkjur á framstykki og 84-92-100-112-128-138 lykkjur á bakstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 151-168-184-207-236-256 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 15-15-16-16-16-16 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir 2 cm að loka máli).
Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 23-26-28-31-36-38 lykkjur jafnt yfir = 174-194-212-238-272-294 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 39-41-43-45-47-49 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 62-66-68-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 70-74-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 12-11-10-8-7-5 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 54-58-66-74-78-82 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Ermin mælist ca 17-16-15-13-12-10 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2021
Leiðrétting í mynsturteikningu A.2.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
prjónið 7-7-7-9-9-9 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni = prjónið 7-7-7-9-9-9 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
Diagram for DROPS 222-32
Diagram for DROPS 222-32
Diagram for DROPS 222-32
Diagram for DROPS 222-32

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (105)

country flag Tove skrifaði:

Jeg er ferdig med genser i strl L. Det er feil i oppskriften, i hvit stjerne skal det strikkes totalt 7 masker og ikke 9.

11.05.2021 - 23:14

country flag Eva skrifaði:

Hej, hvad er pointen at gøre, når der ikke er nogen firkanter mellem de tre vrangmasker og den sidste lige masken?

09.05.2021 - 09:03

DROPS Design svaraði:

Hej Eva, Du hopper bare videret til næste maske i diagrammet. Det er fordi maskerne først findes når du er kommet op til stjernen, hvor du skal tage nye masker ud, først da er de tegnet med i diagrammet.

10.05.2021 - 08:57

country flag Karin skrifaði:

Diagramforklaringen på omslag passer vist kun til A.1 - ikke til A.2. Der står at omslaget skal strikkes drejet på næste pind så der IKKE bliver hul. Det er korrekt hvad angår A.1. Men omslagene på A.2 danner en smukt række huller - på billederne ...

08.05.2021 - 23:08

country flag Sabrina skrifaði:

Buongiorno, come si legge il diagramma A2., intendo le parti vuote che connettono 2 parti del diagramma? Grazie molte

07.05.2021 - 23:46

DROPS Design svaraði:

Buonasera Sabrina, deve semplicemente procedere con la lavorazione delle maglie successive. Buon lavoro!

17.05.2021 - 22:22

country flag Sonjavanderzouwen skrifaði:

Waarom worden er zoveel patronen van boven naar beneden gebreid, is het ook mogelijk om ze om te draaien.?????

07.05.2021 - 13:07

DROPS Design svaraði:

Dag Sonja,

De reden om van boven naar beneden breit is dat je dan makkelijker het kledingstuk kunt passen tijdens het breien en vervolgens op maat kunt maken. In deze les vind je meer informatie over van boven naar beneden breien.

08.05.2021 - 19:04

country flag Senja skrifaði:

Hej, fråga om diagram A.2... När det inte är någon rutor mellan maskor, menar man att det skall stickas ihop alla de maskor eller menas det att man bara skall hoppa över dem? Tacksam för så snabbt svar som möjligt.

06.05.2021 - 17:42

DROPS Design svaraði:

Hej, då det inte finns rutor mellan maskorna hoppar du bara över dessa tomma fält och fortsätter vid nästa ruta.

10.05.2021 - 18:05

country flag May Lill Malek skrifaði:

Vi er flere som ikke får dette mønstert til å stemme. Det må være noe galt med A 2. Kanskje Drops bør gå igjennom dette mønsteret?

05.05.2021 - 08:27

DROPS Design svaraði:

Hej May, Vi skall gå igennem dette mønster! Hold øje her på siden, så kommer der snart en rettelse.

06.05.2021 - 15:01

country flag Anna Poulsen skrifaði:

Under forklaring til diagram A2 er jeg ret forvirret. Der står at stjernen betyder, at man skal strikke 3 masker i én, men på diagrammet læser jeg at der skal strikkes 7 masker i én? Det passer slet ikke med mønsteret at der kun skal strikkes 3 masker, så vil bare høre om det er rigtig spottet, at fejlen ligger der?

04.05.2021 - 15:36

DROPS Design svaraði:

Hej Anna. Den hvid stjärnan betyder att det ska sticka 7 masker i en och den sort stjärnan betyder att du ska sticka 3 masker i en. Mvh DROPS Design

05.05.2021 - 11:47

country flag Tove Gundersen skrifaði:

Det må være en feil i oppskriften på A2. Det står man skal strikke 9 masker men i diagrammet er det kun 7 masker.

03.05.2021 - 17:06

DROPS Design svaraði:

Hei Tove, A.2 er forskjellig avhengig av hvilken størrelse du strikker. Det er 7 + 1 for de mindre størrelser og 9 + 1 for de større (litt lengre ned). God fornøyelse!

04.05.2021 - 07:46

country flag Inger-Lise Kristiansen skrifaði:

Jeg holder på ¨strikke den, men får ikke mønsteret til å stemme. På str L skal jeg strikke i en maske til man får ni masker, men på mønsteret A2 er det bare 7 masker. Kan ikke skjønne, e det flere enn meg som plages. Nydelig topp.

30.04.2021 - 10:18