Marijke skrifaði:
Dank voor het antwoord. Ik vermoedde al dat het niet klopte en heb de boord inmiddels op 3,5 gebreid.
14.05.2025 - 10:43
Marijke skrifaði:
Klopt het wel dat de boord van het lijf op naald 4 moet worden gebreid? Bij de benodigdheden staat naald drie ‘voor de boorden’.
08.05.2025 - 18:02DROPS Design svaraði:
Dag Marijke,
Nee, dit klopt denk ik niet. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om te controleren en corrigeren.
14.05.2025 - 09:32
Marie Claire skrifaði:
Bonjour, Les diminutions sur le corps du pull se font elles à chaque rang ou un rang sur 2? Merci
03.04.2025 - 20:30Marie Claire svaraði:
Désolée... je viens de comprendre. 1000 excuses !
03.04.2025 - 20:41
Rosita skrifaði:
Vad är det för övervidd i cm i de olika storlekarna.
11.11.2024 - 09:19DROPS Design svaraði:
Hei Rosita. Du finner alle målene til denne gensren på målskissen. Målskissen finner du nederst på oppskriften. Tallene er oppgitt i cm. mvh DROPS Design
11.11.2024 - 13:32
Nad skrifaði:
I think the sizing is too oversized. I just finished knitting size M with Drops Belle and it is huge. I'm size S-M and after I washed the blouse it is too big even for size M. Please be careful when choosing your size
21.05.2024 - 17:39
Kinou skrifaði:
Bonjour, modèle superbe, j’ai pris beaucoup de plaisir à le faire. Merci :) Il faudrait juste apporter une petite correction : je fais la taille M et à la fin de empiècement lorsque le col débute, 106 mailles n’est pas un multiple de 4, nécessaire pour les cotes 2/2. Donc il manque ou il y’a 2 mailles en trop en moins :)) rien de grave. Bonne journée
30.03.2024 - 13:40
Inge skrifaði:
Som jeg skrev 12/6 måtte jeg strikke trøjen i Small og ikke large . Den er fin og færdig nu i small, som jeg forlængede både i ærme og selve trøjen. Det er altså ikke første gang jeg må gå 1 elle 2 størrelser ned. Som om I har problemer størrelsen . Skal tilføjes at strikkegastheden er overholdt
03.07.2022 - 17:04
Inge skrifaði:
Hvad mon jeg gør forkert. Havde strikket ribben og første indtagning. Strikkefastheden passede. Det blev kæmpestort. Så nu er det trævlet op og jeg starter med small i stedet for large
12.06.2022 - 13:39
Ms Lucia White skrifaði:
My previous question was about this sweater, so long as keep count will I be able to manage it. I have knitted socks in the round and hats and ordinary cardigans and jumpers.
11.06.2022 - 17:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs White, the sweater is worked the same way as the jacket, ie bottom up: you first work body in the round to the armhole and put aside, you then work both sleeves separately then finally will slip sleeves on the same needle as body - this video might help you understanding how it is done. Happy knitting!
13.06.2022 - 09:02
Gro skrifaði:
Takk for svar ang felling. Jeg har gjort slik dere skriver, men det betyr altså at det er feil i oppskriften, etter at man er ferdig med diagrammet: "Strikk 1 omgang rett der det felles 21-26-31-38-45-48 masker jevnt fordelt – les FELLETIPS-2" I FELLETIPS 2 står der at man skal felle ved å strikke vrang, ikke rett.
18.05.2022 - 19:58
Yellow Tulip#yellowtulipsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-4 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 248 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 48) = 5,2. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 4 lykkjur færri í umferð). ÚRTAKA-2 (á við um berustykki): Fækkið lykkjum jafnt yfir alveg eins og útskýrt er í ÚRTAKA/ÚTAUKNING, en nú er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp að handveg. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 248-268-288-312-344-376 lykkjur á hringprjón 3 með Belle eða Merino Exra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í umferð í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 48-52-56-56-64-72 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 200-216-232-256-280-304 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Teljið 50-54-58-64-70-76 lykkjur (= ½ bakstykki), setið 1 prjónamerki hér, teljið 100-108-116-128-140-152 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki hér, það eru 50-54-58-62-70-76 lykkjur eftir í umferð (= ½ bakstykki). Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 20 cm = 192-208-224-248-272-296 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26 cm er fellt af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 44-48-51-57-62-68 lykkjur, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir handveg (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 88-96-102-114-124-136 lykkjur, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir handveg (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið þær 44-48-51-57-62-68 lykkjur sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 60-64-68-68-72-76 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Belle eða Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-12-13-12-14-15 lykkjur jafnt yfir = 51-52-55-56-58-61 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið út mismunandi eftirstærðum þannig: Stærð S: Aukið út í 9. hverri umferð alls 8 sinnum. Stærð M: Aukið út í 5. hverri umferð alls 12 sinnum. Stærð L: Aukið út til skiptist í 4. og 3. hverri umferð alls 15 sinnum. Stærð XL: Aukið út í 3. hverri umferð alls 16 sinnum. Stærð XXL: Aukið út til skiptis í 3. og annarri hverri umferð alls 17 sinnum. Stærð XXXL: Aukið út í annarri hverri umferð alls 18 sinnum. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 67-76-85-88-92-97 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til ermin mælist 33-32-30-28-27-25 cm. Fellið nú af 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir handveg undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 59-68-75-78-80-85 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 294-328-354-384-408-442 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Þegar stykkið mælist 1-3-5 cm fækkið um 8-16-16 lykkjur jafnt yfir = 286-312-338 lykkjur. Stærð XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 3-4-5 cm fækkið um 10-9-13 lykkjur jafnt yfir. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 6-7-8 cm = 364-390-416 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-5-7-9-11-13 cm, prjónið mynstur A.1 hringinn í umferð (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar með 26 lykkjum). Haldið svona áfram hringinn þar til mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina = 121-132-143-154-165-176 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 21-28-31-38-45-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 104-106-112-116-120-128 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #yellowtulipsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.