Incoming Tide |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, laskalínu, pífu, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 131 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 3,4. Í þessu dæmi er lykkjum aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-5-5-6 næstu hnappagötum með ca 9-8-8½-9-9½-8 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður pífukantur – pífukanturinn er heklaður/saumaður að berustykki og ermum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 131-135-139-145-149-155 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-36-36-38-38-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 167-171-175-183-187-195 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 156-160-164-172-176-184 lykkjur (= 39-40-41-43-44-46 mynstureiningar með 4 lykkjum), A.2 yfir næstu lykkju, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Jafnframt í umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir þannig: Ör-1: Aukið út 28-28-28-32-36-36 lykkjur = 195-199-203-215-223-231 lykkjur. Ör-2: Aukið út 52-54-56-56-66-64 lykkjur = 247-253-259-271-289-295 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.3A yfir næstu 3 lykkjur, A.3B yfir næstu 228-234-240-252-270-276 lykkjur (= 38-39-40-42-45-46 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3C yfir næstu 4 lykkjur, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.3A til A.3C hefur verið prjónað 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, prjónið síðan fyrstu 6 umferðir í mynsturteikningu. Prjónið nú þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.4A yfir næstu 3 lykkjur, A.4B yfir næstu 228-234-240-252-270-276 lykkjur (= 38-39-40-42-45-46 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.4C yfir næstu 4 lykkjur, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.4A til A.4B hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 13-13-13-15-15-15 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð (rétta) aukið út um 31-41-51-63-61-67 lykkjur jafnt yfir = 278-294-310-334-350-362 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Fyrsta prjónamerkið: Teljið 47-50-52-56-60-63 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykki og vinstri ermi). Annað prjónamerki: Teljið 50-52-56-60-60-60 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis). Þriðja prjónamerki: Teljið 84-90-94-102-110-116 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi). Fjórða prjónamerki: Teljið 50-52-56-60-60-60 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og hægra framstykkis). Nú eru 47-50-52-56-60-63 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-11-14-15-18-19 sinnum = 358-382-422-454-494-514 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þanni: Prjónið fyrstu 57-61-66-71-78-82 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 70-74-84-90-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 104-112-122-132-146-154 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 70-74-84-90-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 57-61-66-71-78-82 lykkjur. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 230-250-270-294-322-342 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22 cm frá skiptingu er aukið út um 45-49-53-59-65-69 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 275-299-323-353-387-411 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið * , prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-74-84-90-96-98 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 6-8-8-10-10-12 lykkjum undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 17-15-14-12-11-9 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-18-24-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 62-64-68-70-72-74 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 23-21-20-18-17-15 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. PÍFUKANTUR Á BERUSTYKKI: Heklið 284-291-298-312-333-340 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 og Baby Alpaca Silk. Snúið og heklið þannig: Heklið 1 stuðul í 6. loftlykkju frá heklunálinni, * 2 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina. Skiptið pífukantinum frá réttu á stykki þannig að hann liggi jafnt yfir meðfram neðri kanti á gatamynstri, þ.e.a.s. þar sem A.4A til A.4C var prjónað. Festið e.t.v. pífukantinn til bráðabyrgða við flíkina. Pífukantinn á að festa með loftlykkjum inn að réttu á flíkinni og er hægt að festa við berustykkið annað hvort með því að sauma hann niður eða að hekla hann fastan: Frágangur með saum: Saumið frá röngu þannig: Festið þráðinn í ystu úrtöku við kant að framan (þ.e.a.s. A.4A) og saumið eitt spor á milli 2 ystu kanta að framan á pífukanti, * þræðið meðfram neðri kanti á gatamynstri (ekki er saumað í pífukantinn) að næstu úrtöku í mynstri (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.4B), saumið eitt spor hringinn í þessari úrtöku og á milli 6. og 7. stuðul á eftir síðasta skipti sem pífukanturinn er festur við stykkið *, endurtakið frá *-* fram að kanti að framan í hinni hliðinni, en endið með að sauma eitt spor í síðustu úrtöku á undan kanti að framan (= A.4C) - það er mikilvægt til að saumurinn verði ekki stífur, svo flíkin missi ekki teygjanlekan. Festið þráðinn. Frágangur með hekli: Heklið frá röngu með heklunál 3,5 þannig: Festið þráðinn með fastalykkju um ystu úrtöku við kant að framan (þ.e.a.s. A.4A), færið heklunálina í gegnum stykkið (frá röngu að réttu – þráðurinn verðu áfram frá röngu), færið síðan heklunálina á milli 2 ystu stuðla á pífukanti og til baka frá röngu á stykki, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni þannig að pífukanturinn verður fastur við berustykkið *, heklið 8 loftlykkjur (frá röngu á stykki), hoppið að næstu úrtöku á berustykki (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.4B), færið heklunálina í gegnum stykkið frá röngu að réttu (þráðurinn verður áfram frá röngu), færið heklunálina á milli 6. og 7. stuðuls eftir síðasta skipti sem pífukanturinn er festur við berustykkið og til baka frá röngu, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni þannig að pífukanturinn verði fastur við berustykkið *, endurtakið frá *-* fram að kanti að framan í hinni hliðinni, en endið með að festa þráðinn í síðustu úrtöku á undan kanti að framan (= A.4C) – það er mikilvægt að saumurinn verði ekki stífur, svo flíkin missi ekki teygjanleikan. PÍFUKANTUR Á ERMUM: Heklið 67-67-74-74-81-81 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 og Baby Alpaca Silk. Snúið og heklið þannig: Heklið 1 stuðul í 6. loftlykkju frá heklunálinni, * 2 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina. Hægt er að festa pífukantinn við ermar annað hvort með því að sauma hann niður eða hekla hann fastan. Festið pífukantinn við efstu umferð í stroffi á ermi. Saumið eða heklið alveg eins og á berustykki og hoppið yfir 7 stuðla á pífukanti og ca 7 lykkjur á milli skipta sem þráðurinn er festur á ermi. Festið þráðinn um lykkju í stað um úrtöku eins og á berustykki. Passið uppá að þráðurinn verði ekki stífur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Mee Q skrifaði:
The ruffle on the top just adds a uniqueness that I can envision this flattering any pair of jeans....love it!
07.01.2021 - 17:46