DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Incoming Tide Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, laskalínu, pífu, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-21
DROPS Design: Mynstur z-925
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-400-450-500 g litur 100, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5: Fyrir pífukant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 3,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður pífukantur sem er heklaður/saumaður að berustykki og ermum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-124-128-134-138-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-36-36-38-38-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 156-160-164-172-176-184 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Nú er mynstrið prjónað þannig:
Prjónið A.1 hringinn í umferð (= 39-40-41-43-44-46 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Jafnframt í umferð með ör er aukið út jafnt yfir þannig:
Ör-1: Aukið út 28-28-28-32-36-36 lykkjur = 184-188-192-204-212-220 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 50-52-54-54-64-62 lykkjur = 234-240-246-258-276-282 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með A.2 (= 39-40-41-43-46-47 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í 3. umferð í A.2 færist byrjun á umferð um 1 lykkju til hægri, þannig að það verði hægt að prjóna fyrsta tákn í mynsturteikningu.

Haldið svona áfram þar til mynsturteikningin hefur verið prjónuð 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, síðan eru prjónaðar fyrstu 6 umferðir í mynsturteikningu
Prjónið nú A.3 yfir hverja einingu með A.2.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 13-13-13-15-15-15 cm.
Í næstu umferð eru auknar út 34-44-54-66-64-70 lykkjur jafnt yfir = 268-284-300-324-340-352 lykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig:
Fyrsta prjónamerkið: Teljið 42-45-47-51-55-58 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi).
Annað prjónamerkið: Teljið 50-52-56-60-60-60 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis).
Þriðja prjónamerkið: Teljið 84-90-94-102-110-116 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi).
Fjórða prjónamerkið: Teljið 50-52-56-60-60-60 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis).
Nú eru 42-45-47-51-55-58 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-11-14-15-18-19 sinnum = 348-372-412-444-484-504 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 52-56-61-66-73-77 lykkjurnar (= ½ bakstykki), setjið næstu 70-74-84-90-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 104-112-122-132-146-154 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 70-74-84-90-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 52-56-61-66-73-77 lykkjur (= ½ bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 220-240-260-284-312-332 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-48-52-58-64-68 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 264-288-312-342-376-400 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 70-74-84-90-96-98 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur.
Byrjið umferð mitt í 6-8-8-10-10-12 lykkjum undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 17-15-14-12-11-9 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-18-24-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 62-64-68-70-72-74 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 23-21-20-18-17-15 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

PÍFUKANTUR Á BERUSTYKKI:
Heklið 277-284-291-305-326-333 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 og Alpaca. Snúið og heklið þannig:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * 2 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina.
Skiptið pífukantinum frá réttu á stykki þannig að hann liggi jafnt yfir meðfram neðri kanti á gatamynstri, þ.e.a.s. þar sem A.3 var prjónað.
Festið e.t.v. pífukantinn til bráðabyrgða við flíkina.
Pífukantinn á að festa með loftlykkjum inn að réttu á flíkinni og er hægt að festa við berustykkið annað hvort með því að sauma hann niður eða að hekla hann fastan:

FRÁGANGUR MEÐ SAUM:
Saumið frá röngu þannig: Festið þráðinn í úrtöku (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.3) mitt aftan á peysu og saumið eitt spor á milli 2 ystu kanta framan á pífukanti.
Þræðið til baka þráðinn að röngu á stykki, * þræðið meðfram neðri kanti á gatamynstri (ekki er saumað í pífukantinn) að næstu úrtöku í mynstri (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í næstu einingu af A.3), færið nálina hringinn í þessa úrtöku og á milli 6. og 7. stuðuls eftir síðasta skipti sem pífukanturinn er festur við stykkið, þræðið þráðinn til baka frá röngu á stykki *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn – það er mikilvægt til að saumurinn verði ekki stífur, svo flíkin missi ekki teygjanlekan. Festið þráðinn.

FRÁGANGUR MEÐ HEKLI:
Heklið frá röngu með heklunál 3,5 þannig: Festið þráðinn með fastalykkju um úrtöku (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.3) mitt aftan á peysu, færið heklunálina í gegnum stykkið (frá röngu að réttu – þráðurinn verðu áfram frá röngu), færið síðan heklunálina á milli 2 ystu stuðla á pífukanti og til baka frá röngu á stykki, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni þannig að pífukanturinn verður fastur við berustykkið *, heklið 8 loftlykkjur (frá röngu á stykki), hoppið að næstu úrtöku á berustykki (þ.e.a.s. þríhyrningstákn í A.3), færið heklunálina í gegnum stykkið frá röngu að réttu (þráðurinn verður áfram frá röngu), færið heklunálina á milli 6. og 7. stuðuls eftir síðasta skipti sem pífukanturinn er festur við berustykkið og til baka frá röngu, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni þannig að pífukanturinn verði fastur við berustykkið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn – það er mikilvægt að saumurinn verði ekki stífur, svo flíkin missi ekki teygjanleikan. Festið þráðinn.

PÍFUKANTUR Á ERMUM:
Heklið 67-67-74-74-81-81 loftlykkjur (meðtaldar 5 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 og Alpaca. Snúið og heklið þannig:
Heklið 1 stuðul í 6. loftlykkju frá heklunálinni, * 2 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina.
Hægt er að festa pífukantinn við ermar annað hvort með því að sauma hann niður eða hekla hann fastan. Festið pífukantinn við efstu umferð í stroffi á ermi.
Saumið eða heklið alveg eins og á berustykki og hoppið yfir 7 stuðla á pífukanti í stað einnar úrtöku eins og á berustykki.
Passið uppá að þráðurinn verði ekki stífur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = útaukningsumferð – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Incoming Tide Sweater

Paolina, Belgium

Incoming Tide Sweate

Aleksandra, Poland

Incoming Tide Sweater

Margaret, France

Timi.mate

Incoming Tide Sweater, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Arline wrote:

In chart A.2, when you slip the stitch marker one stitch to the right in Round 3, is that a one time event or do you repeat that move on the two subsequent repetitions of the chart? Thank you.

01.06.2022 - 23:10

DROPS Design answered:

Dear Arline, on 3rd round in A.2 you start this round with the last stitch of previous round, but then rounds start again as before, do not move the beginning of the round, it should still be there. Happy knitting!

02.06.2022 - 08:55

country flag Lisa wrote:

I think I know the answer to this, but need confirmation before going forward. When it says that on Round 3 of chart A.2 you move the BOR marker 1 st to the right, is that where you begin the Round or do you just move the marker but start the Round at the original st? Thanks!

26.05.2022 - 23:08

DROPS Design answered:

Dear Lisa, start the 3rd row in A.2 with the last stitch of 2nd round, slip this stitch as if to K, knit the first 2 sts of next round (first repeat A.2 on the round) together, pass the slipped stitch over the knitted stitches, and continue diagram, ie the last stitch each A.2 will be worked together with the first 2 stitches next repeat. At the end of the round, continue as before, the beginning of the rounds should be as before. Happy knitting!

27.05.2022 - 09:07

country flag Susana wrote:

Bonjour, Je voudrais faire ce modèle mais les diagrammes manquent Merci de votre aide Cdt

27.12.2021 - 09:28

DROPS Design answered:

Bonjour Susana, probablement un bug passager, ils s'affichent désormais, actualisez et si besoin videz le cache de votre navigateur. Bon tricot!

03.01.2022 - 14:36

country flag Trp wrote:

What a beautiful pattern

19.03.2021 - 09:14

country flag Trp wrote:

What a beautiful pattern

19.03.2021 - 09:13

country flag Margarita wrote:

El diagrama A2 pienso que tiene un fallo, tejiendo siguiendo las instrucciones no queda igual a la foto. He rectificado tejiendo las pasadas retorcidas en las vueltas 3 y 7 y así si queda igual al no formarse el agujero. No se si queda bien expuesto.

16.03.2021 - 15:23

DROPS Design answered:

Hola Margarita, mandaremos tu sugerencia al departamento de diseño para ver si se trata de algún fallo.

21.03.2021 - 19:58

country flag Edith wrote:

Je ne comprends pas ce passage Continuer jusqu'à ce que le diagramme ait été tricoté 2-2-2-3-3-3 fois en hauteur, tricoter ensuite les 6 premiers tours dans le diagramme. Les 6 premiers tours est de reprendre le A1 ou A2

10.03.2021 - 18:48

DROPS Design answered:

Bonjour Edith, vous répétez 2 à 3 fois A.2 (cf taille) puis tricotez juste les les 6 premiers rangs de A.2. Bon tricot!

11.03.2021 - 08:05

country flag Stamou Panagiota wrote:

Hallo Brauche Ihre Hilfe muss ich bei A2 Diagramm die umschlägt so wie sie kommen stricken mit Löcher oder rechts verschränkt im Foto sehe ich am muster löcher wenn ich rechts verschränkt stricke gibt es keine löcher bitte für Anfänger die Anleitungen ausführlich erklären

07.03.2021 - 13:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Panagiota, die Umschläge in A.2 (sowie in A.1 und A.3) werden bei der nächsten Runde rechts gestrickt damit Löcher entstehen. Viel Spaß beim stricken!

08.03.2021 - 09:09

country flag Janka wrote:

Chciałabym zrobić ten sweter z długimi rękawami, czy wystarczy 350 g włóczki i czy zamknąć tyle samo oczek jak w przypadki rękawów 3/4?

26.02.2021 - 13:40

DROPS Design answered:

Witaj Janko, ja dla bezpieczeństwa dodałabym 1 motek włóczki. Na rękawy zamykasz oczka tam samo, tylko wykonujesz je dłuższe. Pozdrawiamy!

26.02.2021 - 16:21

country flag Mimi wrote:

J'ai hâte d'avoir l'explication, il est magnifique

05.02.2021 - 10:50