-------------------------------------------------------
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
-------------------------------------------------------
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 27, 34 og 41 cm.
M: 27, 35 og 43 cm.
L: 29, 37 og 45 cm.
XL: 30, 38 og 47 cm.
XXL: 32, 40 og 49 cm.
XXXL: 33, 42 og 51 cm.
ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
-------------------------------------------------------
BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:
-------------------------------------------------------
PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi.
Framstykkin og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan áður en stykkinu er aftur skipt fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur aftan í hnakka.
BAKSTYKKI:
Fitjið upp 30-32-34-36-36-38 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka.
JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 26-28-28-30-32-36 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 82-88-90-96-100-110 lykkjur í umferð.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan.
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn (kantur að framan), prjónið upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki) = 33-35-35-37-39-43 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 lykkjur garðaprjón við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 7 lykkjur garðaprjón + 2 lykkjur sléttprjón – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð, alls 10-11-12-13-13-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 3 sinnum og í 6. hverri umferð 2 sinnum = 48-51-52-55-57-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón eftir að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Klippið þráðinn. Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan.
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hægri öxl á bakstykki, fitjið síðan upp 7 nýjar lykkjur í lok umferðar (kantur að framan) = 33-35-35-37-39-43 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 lykkjur garðaprjón við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar umferð frá réttu, aukið er út á undan 2 lykkjur sléttprjón + 7 lykkjur garðaprjón – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð, alls 10-11-12-13-13-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 3 sinnum og í 6. hverri umferð 2 sinnum = 48-51-52-55-57-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm prjónið þannig – frá röngu: Prjónið yfir 48-51-52-55-57-62 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 6-8-12-14-20-20 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið frá röngu yfir 82-88-90-96-100-110 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 6-8-12-14-20-20 nýjar lykkjur, prjónið yfir 48-51-52-55-57-62 lykkjur frá vinstra framstykki.
FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 190-206-218-234-254-274 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, mælt frá þar sem 7 lykkjur voru fitjaðar upp fyrir kant að framan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 62-62-70-74-82-90 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 252-268-288-308-336-364 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 7 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af.
VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 5, prjónið upp frá réttu 40-42-45-45-49-51 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 24-26-27-29-29-31 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 64-68-72-74-78-82 lykkjur meðfram handvegi.
Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur.
Umferð 1 (ranga): Prjónið 16 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 2 (rétta): Prjónið 16 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 3 (ranga): Prjónið 20 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 4 (rétta): Prjónið 20 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 5 (rétta): Prjónið 24 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 6 (rétta): Prjónið 24 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 5-5-7-7-9-9 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) .
Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 7-7-9-9-11-11 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5½-4½ -3½-3½ -2½-2 cm millibili alls 6-7-8-8-9-10 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-38-37-37-35 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Það eru eftir ca 10 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-16-18-20-18 lykkjur jafnt yfir = 68-72-72-76-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm.
Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-47-48-47-47-45 cm.
HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt við fyrri ermi, þ.e.a.s. prjónið upp 24-26-27-29-29-31 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 40-42-45-45-49-51 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.
KANTUR AFTAN Í HÁLSMÁLI / Í HNAKKA:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjum í garðaprjóni efst á hægra framstykki, prjónið garðaprjón fram og til baka, þar til kanturinn að framan mælist ca 8-9-9-10-10-10 cm, passið uppá að kanturinn að framan mætist ca mitt að aftan þegar togað er létt í hann. Fellið af. Prjónið alveg eins í kantlykkjur að framan efst á vinstra framstykki. Saumið báða kantana að framan saman mitt að aftan og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka.
FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.
Mynstur
|
= botn á handvegi: Saumið b við B |
|
= lykkjur á vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e) eru prjónaðar meðfram hægri öxl að aftan (E) |
|
= prjónstefna |


Hej! Jag får inte ihop beskrivningen för ärm och armhåla. Jag plockar upp 68 maskor (m), stickar fram och tillbaka i 2 cm och sedan stickar jag runt. Det blir ju ingen skillnad på om jag hade stickat runt direkt. Jag hade förstått bättre om jag skulle ha stickat slätstickning t ex 60 maskor i 2 cm och sedan börjat sticka runt med de 8 som är mitt under armen. ?? Eller ??? Tacksam för hjälp!
16.09.2023 - 15:19DROPS Design answered:
Hei Therese. Husk at du skal strikke frem og tilbake med forkortede pinner over ermetoppen. Dette gjøres for at ermet skal få en bedre passform. Se forklaringen til varv 1 - 7. mvh DROPS Design
26.09.2023 kl. 11:40Skal det være én, to eller ingen masker masker mellom økningene på ryggen?
09.09.2023 - 20:08DROPS Design answered:
Hei Nikoline LItt usikker på hva du mener. Du øker i hver side og det økes før/etter de 3 ytterste maskene. Mellom økningene er det et maskeantall (24-26-28-30-30-32) avhengig av hvilken str. du strikker etter. Ta gjerne titt på hjelpevideoene til Europeisk skulder, som du finner under målskissene. mvh DROPS Design
18.09.2023 kl. 10:13Entschuldigung. Autokorrektur. Die Frage bezieht sich auf die Hin- und Rückreihen.
06.09.2023 - 12:34Hallo, ich habe eine Frage. Bei den Vorderteilen soll in jeder 2. , jeder 4. bzw. jeder 6. Reihe zugenommen werden. Bezieht sich das jeweils auf die Hinreißen? Also soll in jeder 2., 4. bzw. 6. Hinreihe zugenommen werden? Oder werden die Rückseiten mitgezählt? Ich bedanke mich im Voraus für Ihre Mühe und Antwort.
06.09.2023 - 12:16DROPS Design answered:
Liebe Nicole, wenn man in jeder 2. Reihe / jeder 4. Reihe /jeder 6. Reihe zunimmt, wird man in jeder Hin-Reihe / in jeder 2. Hin-Reihe / in jeder 3. Hin-Reihe zunehmen. Viel Spaß beim stricken!
06.09.2023 kl. 15:56Hi me again. With the decrease tip It said to k2tog then ssk which makes the decreased stitches lean out ward. Shouldn’t the decreases be leaning inword towards the center of the bottom marker? Thanks
28.08.2023 - 04:08DROPS Design answered:
Dear Jiji, in this video we show how to decrease mid under sleeve, feel free to edit the decreases if you like them leaning another way. Happy knitting!
28.08.2023 kl. 16:28Hello I am currently knitting a XL size cardigan and I am having some trouble with starting the left arm. The pattern states that you have to pickup 45stitches along the front to shoulder and 29stitches along the shoulder to back, a total of 74 stitches i work these 74 stitches for 4cm then do I pick up 14 stitches along the bottom of the arm hole then join and knit in the round? If I do so how do I avoid a giant hole caused by the off-set of 4cm stockinette / under armhole stitches?
27.08.2023 - 11:36DROPS Design answered:
Dear Jiji, there will be a hole, which you will later sew with an underarm seam, as indicated in the last sentence of right sleeve (Sew the bottom of the armholes). Happy knitting!
28.08.2023 kl. 01:07Hi:) I don't understand how to knit sleeves. At the beginning of knitting sleeves are we knit up stitches without armhole stitches ? Then we work stockinette stitch back and forth for 2-2-4-4-6-6 cm. And after we pick up the loops from the armhole and connect them in a circle? Thank you:)
15.08.2023 - 13:45DROPS Design answered:
Dear Alona, you will pick up stitches along armhole (not in the stitches cast on mid under sleeve) and more stitches along front piece (because armhole is longer) then along back piece (which is shorter), then correct, you continue back and forth for 2,4 or 6 cm than continue in the round. Happy knitting!
15.08.2023 kl. 16:13Hello, I don't understand the instruction that says to insert a marker "inside" the three outermost stitches. What does it mean? To insert a marker after the first three stitches and one before the last three.
15.08.2023 - 00:18DROPS Design answered:
Hi Melisa, Yes, that is correct. The markers are inserted after the first 3 stitches on the row and before the last 3 stitches. Happy crafting!
15.08.2023 kl. 06:37The description of the left and right front part says 'When the piece measures 24-25-26-27-29-30 cm'. From where to measure this length? From the shoulder? That is, from the place where we cast on 7 stitches (band), knit up 26-28-28-30-32-36 stitches?
09.08.2023 - 16:48DROPS Design answered:
Dear Alona, measure on the side, along the armhole (from the picked up stitches). Happy knitting!
09.08.2023 kl. 17:05Me again. When I try to knit up the 68 stitches for the sleeves a problem happened : I have for an M size more than 42 and 25 stitches in both sides of the armholes. How can I get only 68 stitches if my armholes are bigger ? It is not very clear. Thank you.
21.06.2023 - 20:51DROPS Design answered:
Dear Faye, with a tension of 17 sts for 10 cm, you should pick up ca 42 sts along armhole on front piece (=25 cm armhole x 1,7 tension = approx. 42 sts) and 25 sts along back piece (= 15 cm armhole x 1,7 tension = approx 25 sts) - if you get the correct tension, try to pick up stitches less often and/or decrease on the first row from WS to get the correct number of stitches. Happy knitting!
22.06.2023 kl. 09:51