DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

August Sunset

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 240-32
DROPS Design: Mynstur as-179
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL- XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-225-250-275-300-325 g litur 07, rauður

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 07, rúbínrauður
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-125-125-150-150-175 g litur 07, rauður

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjóna-númeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig:
Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri).

Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan / á eftir prjónamerki þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMFERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn í næstu umferð prjónaður á undan / á eftir prjónamerki þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-72-76-76-80-80 lykkjur með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir) yfir stuttan hring-prjón 6 og stuttan hringprjón 8 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 8 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 6 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður þar sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá upp-fitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.

Teljið 10-10-11-11-12-12 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-22-24-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 10-10-11-11-12-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerkinu (hálft bakstykki).

HÁLSMÁL:
Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 8. Byrjið mitt að aftan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan.

Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 104-104-108-108-112-112 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 5-5-5-6-7-9 sinnum hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (meðtalin útaukning í stuttum umferðum) = 112-112-116-124-136-152 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 8-10-10-12-12-12 sinnum á fram- og bak-stykki (4-5-5-6-6-6 sinnum á ermum).
Nú eru 160-172-176-196-208-224 lykkjur í umferð. Í stærð S og M – farðu beint áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukninu fyrir ermar er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 1-1-2-3 sinnum = 180-200-216-236 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú hefur verið aukið út alls 13-15-16-19-21-24 sinnum á fram- og bakstykki og 9-10-10-12-13-15 sinnum á ermum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum í hálsmáli).

Á eftir síðustu útaukningu eru 160-172-180-200-216-236 lykkjur í umferð. Prjónið slétt-prjón án útaukningar þar til stykkið mælist ca 20-22-23-26-28-30 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffið í hálsmáli.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 24-26-28-31-34-37 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 32-34-34-38-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 48-52-56-62-68-74 lykkjur (framstykki), setjið næstu 32-34-34-38-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp nýjar 6-6-8-8-8-8 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 24-26-28-31-34-37 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 108-116-128-140-152-164 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota prjónamerkin þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 16-16-17-16-16-16 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við prjónamerkin. Setjið 54-58-64-70-76-82 lykkjur frá bakstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan yfir lykkjur á framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
= 54-58-64-70-76-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-16-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 70-74-82-90-98-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff frá röngu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Setjið 54-58-64-70-76-82 lykkjur af þræði / hjálparprjóni á hringprjón 6 og prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Setjið 32-34-34-38-40-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-40-42-46-48-52 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-5½-4-3-2½-2 cm millibili alls 4-4-5-6-7-8 sinnum = 30-32-32-34-34-36 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 28-27-26-24-23-22 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-8-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.07.2023
ERMI: Setjið 32-34-34-38-40-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Laura wrote:

Debe haber un error en las 5 HILERAS de las hileras cortas / short rows (tras unir el cuello doble): Hilera 1 (lado derecho) se hacen 4 lazadas. Por eso en la Hilera 2 (lado revés) no se pueden volver a hacer aumentos con lazadas nuevas en esos mismos marcadores, sino que se tienen que tejer las lazadas retorcidas. Talla S: se hacen lazadas en Hilera 1, 3 y 5 (2 veces completas)? Y luego 3 veces más tejiendo en círculo?

06.04.2024 - 07:04

DROPS Design answered:

Hola Laura, cuando tejes de ida y vuelta, en la fila de revés aumentarás puntos a la vez que trabajas las hebras retorcidas para que no queden agujeros. Puedes ver la explicación de esto en RAGLÁN. Trabajas la hebra retorcida tal y como se explica para antes y después y antes o después haces 1 hebra nueva en la fila de revés (justo al lado del marcapuntos). De esta forma, tienes los 32 aumentos en las 5 filas.

08.04.2024 - 00:05

country flag Laura wrote:

¿Qué significa aumentar en el cuerpo cada 2 vueltas y en las mangas cada 4 vueltas? Hay que aumentar a ambos lados de 2 marcadores cada 2 vueltas? Cuáles? O se trata de aumentar en todos los marcadores pero no a ambos lados del raglán? Gracias!

04.04.2024 - 02:40

DROPS Design answered:

Hola Laura, los marcapuntos están en las transiciones entre las mangas y el cuerpo; cuando aumentas a cada lado de cada marcapuntos aumentas tanto en el cuerpo como en las mangas. Para aumentar solo en el cuerpo, aumentas en el lado de cada marcapuntos donde están el resto de puntos de las secciones del cuerpo, es decir, antes del marcapuntos 1, después del marcapuntos 2, antes del marcapuntos 3 y después del marcapuntos 4. Por lo tanto, alternarás entre 2 vueltas de aumentos diferentes. Trabajas 1 vuelta sin aumentos, después una vuelta de 4 aumentos (solo en el cuerpo, como se acaba de indicar), 1 vuelta sin aumentos y 1 vuelta con 8 aumentos (a cada lado de cada marcapuntos).

07.04.2024 - 23:40

country flag Alva wrote:

Hej, när jag ska öka i raglan varannat varv för fram och bakstycke och vart fjärde varv för ärmarna, vilka markörer är det som avses? Markörerna (4 st) sitter på emellan framstycke, bakstycke och ärmarna så jag har svårt att veta vilka markörer som är ”ärm-markörerna” och därmed ska ökas vart fjärde varv och vilka som är ”fram och bakstycke-markörer” som ökas varannat varv. Tack!

24.03.2024 - 20:09

DROPS Design answered:

Hej Alva, jo hvis du lægger arbejdet ud foran dig, så kan du se at du har 2 markører i hver side, de masker som er imellem markøreren i hver side er ærmemaskerne :)

03.04.2024 - 15:35

country flag Marita wrote:

Hello, I am planning to knit this sweater in size S the Cast on for this size is 72 stitches. For the division after the neck edge it is asking to divide with markers at 10 st, 14 st, 20 st, 14st. 10 st. That is 68 stitches, but I have 72 stiches. Please explain. Thanks

15.01.2024 - 00:18

DROPS Design answered:

Hi Marita, You insert the markers in the next stitch (after counting 10 sts you insert the marker in the 11th), then count 14 sts and insert the marker in the 26th stitch and so on. This will then add up to 72 stitches. Happy knitting!

15.01.2024 - 06:40

country flag Agnes wrote:

Bonjour, J'ai tricoté un pull dans cette qualité avec cette grosseur d'aiguille et malheureusement depuis que ma fille a commencé à le porter, il s'est énormément détendu et a gagné 2 tailles... je suis un peu déçue et je ne sais pas quoi faire...

29.12.2023 - 12:50

DROPS Design answered:

Bonjour Agnès, aviez-vous bien la bonne tension? Cela paraît effectivement plutôt étrange, n'hésitez pas à consulter le magasin où vous avez acheté votre laine (même par mail ou téléphone), on devrait être capable de vous renseigner. Merci pour votre compréhension.

02.01.2024 - 10:23

country flag Magdalena wrote:

Hej! Próbka 10x10 ma być wykonana drutami numer 6 czy 8?

27.12.2023 - 17:13

DROPS Design answered:

Witaj Magdaleno, próbkę wykonujesz na drutach nr 8. Pozdrawiamy!

27.12.2023 - 18:33

country flag Julie wrote:

Bonjour, J'ai une question qui concerne les explications du modèle en taille S. L'empiècement commence avec 104 mailles. Il est écrit qu'il faut augmenter des 2 côtés du raglan 5 fois tous les 2 tours. Je devrais alors selon l'explication obtenir 112 mailles. Mais j'obtiens 144 mailles. (2 côtés X 4 marqueurs X 5 = 40 mailles) Qu'elle est mon erreur? Merci par avance pour votre réponse!

27.12.2023 - 11:43

DROPS Design answered:

Bonjour Julie, les 5 x comprennent les augmentations des rangs raccourcis, autrement dit, en taille S, vous avez déjà augmenté 4 fois, augmentez encore 1 fois de chaque côté de chacune des 4 mailes avec un marqueur (= 8 mailles), soit 104+8=112 mailles. Bon tricot!

02.01.2024 - 08:43

country flag Julie wrote:

Bonjour, Pour une taille S avec 2 fils alpaca silk, vous marquez 200g. C'est à dire qu'il faut 8 pelotes de laine? Merci par avance pour votre réponse

14.12.2023 - 00:29

DROPS Design answered:

Bonjour Julie, tout à fait, 200 g Brushed Alpaca Silk / 25 g la pelote = 8 pelotes. Bon tricot!

14.12.2023 - 08:33

country flag Anne Christine wrote:

Bonjour, je ne comprends pas les augmentations de l’empiècement. Taille M, 104m après encolure, 5 fois augmentations du raglan tous les 2 tours. Ce qui donne 144m après 10 tours. Selon l’explication, on devrait obtenir 112m, soit un tour d’augmentations. Combien de tours sont à tricoter avant la suite? Merci.

02.11.2023 - 13:09

DROPS Design answered:

Bonjour Anne Christine, après l'encolure, vous avez déjà augmenté 4 fois pour le raglan, tricotez 1 tour sans augmenter puis tricotez 1 tour en augmentant de chaque côté de chacun des 4 marqueurs = vous augmentez 8 mailles, vous aviez 104 mailles + 8 nouvelles augmentations = 112 mailles. Bon tricot!

02.11.2023 - 17:55

country flag Ragna wrote:

Vel problemet ligger etter jeg startet på bærestykket. Jeg strikketøy forkortede pinner og fikk 108 masker. Så skulle det økes 6 ganger på hver side av de fire maskene = 6*8=48, og 108+48=156. ender altså aldri opp med 124 masker

09.10.2023 - 11:41

DROPS Design answered:

Hei Ragna. Husk at du allerede har økt 4 ganger når du strikket de forkortete pinnenen og det skal økes til raglan totalt 6 ganger. Så når du starter på bærestykket skal du bare øke 2 ganger til. Altså du hadde 108 masker etter 4 økninger og så skal du øke 2 ganger til = 2x8 = 16 = 108+16= 124 masker når det er økt totalt 6 ganger. mvh DROPS Design

16.10.2023 - 14:45