Carina Richard skrifaði:
Hej Jag stickar st 9/10. Där är ökningen på ärmen från 42-66 maskor. då tycker jag att det blir svårt att få de snyggt i mönsterstickning. Carina
25.01.2021 - 11:14DROPS Design svaraði:
Hei Carina. De økte maskene strikkes fortløpende inn i A.1, så på noen omganger har du ikke nok masker til at mønstret går opp. Det vil gå opp når du har økt nok masker. mvh DROPS design
27.01.2021 - 16:20
Hanne Mertz skrifaði:
Kan det passe at der kun skal bruges 150 af mørk gra til alle str. 5/6 og helt op til 13/14
05.01.2021 - 17:36DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, ja det skal stemme, garnforbruget er blevet rettet i bundfarven til én størrelse, men vi har ikke hørt at mønsterfarven ikke skulle stemme. :)
08.01.2021 - 11:02
Ulrika Aurelius skrifaði:
Jag hittar inte mönstret A1 i beskrivningen.
03.01.2021 - 21:01DROPS Design svaraði:
Hej Ulrika. Du hittar diagram A.1 längst ner på mönstret, till höger om måttskissen. Mvh DROPS Design
04.01.2021 - 13:42
Monica Wallander skrifaði:
Hej Jag håller på att sticka denna modell i storlek 7/8 år. Jag köpte det antal nystan som är angivet i beskrivningen. Jag har kommit till oket och har stickat ca 16 varv från när jag satte ihop fram/bakstycke med ärmarna. Nu är bottenfärgen slut så uppenbarligen stämmer inte garnåtgången. Är detta något ni uppmärksammat? Mvh Monica
19.11.2020 - 12:29DROPS Design svaraði:
Hej Monica, tak for info! Det skal vi se på og få lagt en rettelse ud. Venlige hilsner DROPS Design!
19.11.2020 - 15:45
Selam skrifaði:
Thanks for the response. What is i choose to work lithe increases on theb1st or 4th rows of A1? Where all stitches are worked in 1 colour? Will that work?
08.10.2020 - 15:49DROPS Design svaraði:
Dear Selam, yes it might, remember to check your measurements (it should be 1,5 cm between each increase). Happy knitting!
08.10.2020 - 16:20
Selam skrifaði:
Hi, The increase for the sleeves on which row in A1 are they supposed to be made, 1 or 4 ? How do I keep my patter to shift every 1,5 cm? thanks.
08.10.2020 - 00:10DROPS Design svaraði:
Dear Selam, increases are done on every 1,5 cm (= on approx. every 4th row - measure on your garment to keep correct measurement) - work new sts at the beg of the round as a new repeat reading diagram from the left towards the right and work the new sts at the end of the round as a new repeat, reading diagram from the right towards the left; Happy knitting!
08.10.2020 - 10:51
Kirsten Jesen skrifaði:
Hvor er opskriften til denne bluse
08.09.2020 - 17:42DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten. Nu finns oppskriften på dansk. Mvh DROPS Design
09.09.2020 - 07:57
Favourite Catch#favouritecatchsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu mynstri og laskalínu. Stærð 5-14 ára.
DROPS Children 37-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (á við um neðan frá og upp/ofan frá og niður): Þetta stykki er prjónað neðan frá og upp. Ef þú vilt prjóna stykkið ofan frá og niður þá getur þú gert það, en þú verður að aðlaga uppskriftina sjálf/ur. Þetta gerir þú með því að byrja neðst niðri í uppskrift með því að fitja upp lykkjur fyrir kant í hálsmáli. Síðan er úrtaka í uppskriftinni gerð að útaukningu og útaukning gerð að úrtöku. Með því að prjóna flíkina ofan frá og niður, er hægt að stilla af lengd á fram- og bakstykki og ermum auðveldlega að réttu máli. STROFF-1 (á við um neðst niðri á fram- og bakstykki og ermar): Stroffið er prjónað annað hvort 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig: 3 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur. STROFF-2 (á við um einfaldan kant í hálsi): Stroffið er prjónað annað hvort í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig: 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár. STROFF-3 (á við um tvöfaldan kant í hálsi): Stroffið er prjónað annað hvort í 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (eftir eigin ósk) þannig: 2 umferðir milligrár/dökk grár, 4 umferðir natur, 2 umferðir milligrár/dökk grár, 12 umferðir natur. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 168 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 14. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 13. og 14. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur með A.1 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin sem sett voru í hverja skiptingu á milli framstykkist/bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum natur (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í úrtöku umferð). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn verðu áfram stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (þessi uppsláttur er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og haldið er áfram í hring á hringprjón/sokkaprjóna til loka. Allt stroffið er prjónað 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eða 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Kantur í hálsmáli er prjónaður annað hvort einfaldur eða tvöfaldur. Sjá LEIÐBEININGAR! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 168-172-176-184-200 lykkjur á hringprjón 3 með litnum milligrár/dökk grár DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt með litnum natur þar sem fækkað er um 12-16-8-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 156-156-168-168-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 78-78-84-84-90 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 26-26-28-28-30 mynsturteikningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í A.1 þannig að það sé lykkja með litnum milligrár/dökk grár «ferningur» frá A.1 mitt í hvorri hlið á fram- og bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-28-30-32-34 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Byrjið í byrjun á umferð, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 72-72-78-78-84 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 72-72-78-78-84 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki) og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 36-36-40-40-44 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum milligrár/dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroff er prjónuð 1 umferð slétt með litnum natur þar sem aukið er út um 0-0-2-2-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 36-36-42-42-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 6-6-7-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í A.1 þannig að það sé lykkja með litnum milligrár/dökk grár «ferningur» frá A.1 mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½-1½-1½-2-2 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum, síðan er aukið út með 2-2½-3-3-3½ cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 60-60-66-66-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 28-32-36-39-43 cm, en stillið af að endað sé í sömu umferð í mynstri og á fram- og bakstykki áður en lykkjur eru felldar af fyrir handveg – þetta er mikilvægt til að mynstrið passi þegar fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 54-54-60-60-66 lykkjur mynstur eins og áður og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 252-252-276-276-300 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Byrjið umferð á bakstykki í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis og haldið áfram með A.1 hringinn eins og áður, en 1 lykkjan hvoru megin við 4 prjónamerkin er alltaf prjónuð með litnum natur. Þegar prjónaðar hafa verið 2-4-4-6-2 umferðir eftir að fram- og bakstykki og ermar var sett saman, fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-20-22-22-25 sinnum á hæðina. Eftir síðustu úrtöku eru 92-92-100-100-100 lykkjur eftir í umferð (32-32-34-34-34 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki/bakstykki og 14-14-16-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja á ermum). Stykkið mælist ca 15-16-17-18-19 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Prjónið síðan kant í hálsmáli að eigin ósk eins og útskýrt er að neðan. Peysan mælist Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan ca 44-47-50-53-56 cm frá öxl og niður. EINFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur og fækkið um 12-8-16-12-12 lykkjur jafnt yfir = 80-84-84-88-88 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið STROFF-2 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með litnum milligrár/dökk grár, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur/brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur og fækkið um 4-0-8-4-4 lykkjur jafnt yfir = 88-92-92-96-96 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið STROFF-3 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með litnum natur, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur/brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING og fellið af með uppslætti svo að kanturinn verði ekki stífur! Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið fallega niður með smáu spori, en passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #favouritecatchsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.