Suzanne Tynelius wrote:
Jag vill sticka i storlek 4 månader, hur gör jag?
01.03.2024 - 20:02DROPS Design answered:
Hei Suzanne. Den minste skrevne størrelsen på denne er 6/9 mnd. Design avd. har ikke mulighet til å skrive mindre størresler på denne. mvh DROPS Design
04.03.2024 - 13:45Johan wrote:
Hej!\r\nNär jag stickar ärmen, ska ökningarna börja när arbetet mäter 6 från där resåren slutar eller med resåren medräknad?
11.02.2024 - 19:13DROPS Design answered:
Hej Johan. Resåren är medräknad. Mvh DROPS Design
15.02.2024 - 13:48Idun Dalby Andersen wrote:
Hei! Har noe karisma garn jeg skulle ha brukt opp. Kan jeg bytte ut Lima garnet med det i denne oppskriften? :)
26.01.2024 - 20:40DROPS Design answered:
Hej Idun, ja det kan du :)
02.02.2024 - 12:27Viveka Karlsson wrote:
Hej! Jag vill gärna sticka tröjan till 6-åring. Hur räknar jag om mönstret, eller finns det ett mönster för större storlekar?
06.05.2023 - 17:00DROPS Design answered:
Hei Viveka Ta en titt på oppskrift 37-9, Favourite Catch. Der finner du lignende genser i oppskrift 5-14 år. mvh DROPS Design
08.05.2023 - 13:21Susanne Nørgaard wrote:
Hej. Garnmængden til str. 2-3 /4 år er 550g i naturfarvet. Det er samme mængde som til voksen str. XXL-XXXL. Jeg går ud fra, at det er her fejlen er? Vh Susanne Nørgaard
16.10.2022 - 18:17DROPS Design answered:
Hei Susanne. Ja, her var det en tastefeil på den danske siden. I str. 3/4 år skal det være 250 gram farge 100, natur. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design
24.10.2022 - 13:35Neuloja wrote:
Miten hihaa neuloessa saa neuleen kuvion jatkumaan samanlaisena ja samassa kohti silmukoiden lisäysten jälkeen?
28.08.2022 - 14:45DROPS Design answered:
Kun teet hihojen lisäykset, neulo aina lisätyllä silmukalla mallineuletta piirroksen mukaisesti siten, että kuvio jatkuu keskellä hihan alla olevien 2 silmukan kummallakin puolella rikkoutumatta.
04.10.2022 - 16:53Lena wrote:
Ohjeen mukaan raglan kavennuksia on 15 kertaa, jolloin 15 x4 =60 vähenee silmukat jää 72 silmukkaa. Eikö tässä ole virhe???? Mulla on vielä 132 silmukkaa!!
14.02.2022 - 23:37DROPS Design answered:
Raglankavennusten kavennuskerroksella kavennetaan aina 8 silmukkaa (= yhteensä 120 silmukkaa). Eli työhön jää 72 silmukkaa.
04.05.2022 - 17:10Connie Stausgaard wrote:
Kommentar til garnmængden: Jeg strikker str. 12/18 måneder, og skal bruge 150 g. natur og 100 g. grå. Jeg holder alle mål og masketal. Trøjen er bare rigtig flot😍.
09.02.2022 - 17:07Anne Lise Norderhaug Svensen wrote:
Hei, finnes det mønster i str 8 år?
27.11.2021 - 14:29DROPS Design answered:
Hei Anne Lise, Mønster me-061-bn er samme genser i barnestørrelsene. God fornøyelse!
29.11.2021 - 07:09
Reykjavik Kids |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu mynstri og laskalínu. Stærð 6 mánaða – 4 ára.
DROPS Children 34-30 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (á við neðan frá og upp/ofan frá og niður): Þetta stykki er prjónað neðan frá og upp. Ef þú vilt prjóna stykkið ofan frá og niður þá getur þú gert það, en þú verður að aðlaga uppskriftina sjálf/ur. Þetta gerir þú með því að byrja neðst niðri í uppskrift með því að fitja upp lykkjur fyrir kant í hálsi. Síðan verða úrtökurnar í uppskriftinni gerðar að útaukningum og útaukningar eru gerða að úrtökum. Með því að prjóna flíkina ofan frá og niður, er hægt að stilla af lengd á fram- og bakstykki og ermum auðveldlega að réttu máli. STROFF-1 (á við um neðst niðri á fram- og bakstykki og ermar): Stroffið er prjónað í 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið þannig: 3 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur. STROFF-2 (á við um kant í hálsi): Stroffið er prjónað í 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið þannig: 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár, 2 umferðir natur, 2 umferðir dökk grár. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 118 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 11,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur með A.1 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin sem sett voru í hverja skiptingu á milli framstykkist/bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með natur, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með natur (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í úrtöku umferð). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn verðu áfram stífur er hægt að slá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (þessi uppsláttur er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og haldið er áfram í hring á hringprjón/sokkaprjóna til loka – sjá LEIÐBEININGAR! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 118-132 (146-158) lykkjur á hringprjón 3 með dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt með natur þar sem fækkað er um 10-12 (14-14) lykkjur jafnt yfir – sjá AFFELLING/ÚTAUKNING = 108-120 (132-144) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 54-60 (66-72) lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 18-20 (22-24) mynsturteikningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í mynsturteikningu, þannig að það sé lykkja með dökk grár frá A.1 mitt í hvorri hlið á fram- og bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18 (20-23) cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið í byrjun á umferð, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 48-54 (60-66) lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 48-54 (60-66) lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki) og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 32-34 (36-36) lykkjur á sokkaprjón 3 með dökk grár. Prjónið STROFF-1 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroff er prjónuð 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 4-2 (6-6) lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 36-36 (42-42) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 6-6 (7-7) mynstureiningar með 6 lykkjum, byrjið með fyrstu lykkju í mynsturteikningu, þannig að það sé lykkja með dökk grár frá A.1 mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-6 (7-7) cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½-2 (2½-3) cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 48-48 (54-54) lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 16-18 (22-26) cm, en stillið af að endað sé í sömu umferð í mynstri og á fram- og bakstykki áður en lykkjur eru felldar af fyrir handveg – þetta er mikilvægt til að mynstrið passi þegar fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 42-42 (48-48) lykkjur mynstur eins og áður og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina alveg eins. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 180-192 (216-228) lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Byrjið umferð á bakstykki í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis og haldið áfram með A.1 hringinn eins og áður, en 1 lykkjan hvoru megin við 4 prjónamerkin er alltaf prjónuð með natur. Þegar prjónaðar hafa verið 2-4 (2-4) umferðir eftir að fram- og bakstykki og ermar var sett saman, fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 14-15 (17-18) sinnum á hæðina. Eftir síðustu úrtöku eru 68-72 (80-84) lykkjur eftir í umferð (20-24 (26-30) lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki/bakstykki og 14-12 (14-12) lykkjur á milli prjónamerkja á ermum). Stykkið mælist ca 11-12 (13-14) cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Prjónið síðan kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSI: Prjónið 1 umferð slétt með natur og fækkið um 2-2 (6-6) lykkjur jafnt yfir = 66-70 (74-78) lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 eða stuttan hringprjón 3. Prjónið STROFF-2 hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, fellið af með dökk grár, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur/brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 30-33 (36-40) cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Ruth Gunnvor Molvær wrote:
Jeg strikket i str.12/18 mnd, og felte av etter vrangborden 12 m slik mønsteret sier. Etter å ha strikket et godt stykke på bolen, målte jeg bredden. Den skulle være 29, men var 26cm. Min strikkefasthet er normal. Gikk til butikken hvor garnet ble kjøpt med strikketøyet. Hun målte, så på min strikkefasthet, og sa at her burde jeg enten bytte til pinne 4 1/2 eller la vær å felle etter vrangborden for å få rette mål. Jeg valgte det siste. Håper dere kan rette opp dette.
25.07.2022 - 16:25