Gunilla Perthar skrifaði:
En liten klassiker om tyckt av de flesta
19.12.2019 - 09:33
Karine skrifaði:
Super jolie, ou peut ont trouve le patron gratuit
18.12.2019 - 23:24
Cécile skrifaði:
Un modèle intemporel, chic en toute circonstance , un must have ! Merci de le publier.
14.12.2019 - 20:23
Monika skrifaði:
Sehr schöner Pullover! Schlicht, aber klassisch elegant. Ich freue mich schon darauf ihn zu stricken.
14.12.2019 - 10:16
Clare skrifaði:
My favourite of the SS20 collection - a timeless classic, suitable for weather the seasons throw at us. A flattering style for all body shapes too 💕
11.12.2019 - 15:19
Bruna skrifaði:
Bello, semplice, fine e elegante. Non vedo l'ora di realizzarlo!
11.12.2019 - 13:13
Marlemio skrifaði:
Wow! Sehr schön schlicht. Den werde ich sicherlich nachstricken... Die Wolle wartet schon....
11.12.2019 - 07:30
Smell the Rain#smelltherainsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-37 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ÚRTAKA (á við um ermar): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 128-128-140-140-152-152 lykkjur á hringprjón 2 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 6 lykkjur) yfir fyrstu 18-18-18-18-24-24 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir næstu 5 lykkjur (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 36-36-42-42-48-48 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir síðustu 18-18-24-24-24-24 lykkjur. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð 29-29-35-41-41-47 sinnum = 360-360-420-468-480-528 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 51-51-57-66-72-78 lykkjur í mynstri eins og áður (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 81-81-93-99-99-111 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 9-15-15-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 99-99-117-135-141-153 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 81-81-93-99-99-111 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 9-15-15-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 48-48-60-69-69-75 lykkjur í mynstri eins og áður (= ca hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 216-228-264-300-312-336 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður. Mynstrið á að ganga jafnt upp alla leið hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 20 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 81-81-93-99-99-111 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 9-15-15-15-15-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 90-96-108-114-114-126 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Haldið áfram hringinn með áferðamynstri eins og áður og prjónið sléttprjón yfir nýjar lykkjur undir ermi. Í 2. umferð byrjar úrtaka undir ermi – sjá AFFELLING. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-3-3-5-7 sinnum, fækkið síðan lykkjum með ca 3-2-1-1-1-1 cm millibili 7-9-13-13-8-10 sinnum = 72-74-76-82-88-92 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 22-21-19-18-16-15 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 24-23-21-20-18-17 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #smelltherainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.