Bernice Nicholl wrote:
In the finishing of the left front and back piece, it says change to 4mm needles and knit one row from the right side and knit one row from the wrong side. Are these rows knitted in pattern or should they be knitted in garter stitch?
22.07.2022 - 18:59DROPS Design answered:
Hi Bernice, you should work this part in garter stitch. Happy knitting!
22.07.2022 - 21:31Patricia Nelson wrote:
Are there written instructions for this pattern I do not like working form charts but I love the design
22.05.2021 - 19:18DROPS Design answered:
Dear Patricia, we do not have the written out version not only because out patterns are available in many languages, but also because we believe that with charts you can not only see the very next step, but also the bigger picture, as in how stitches and rows relate to each other. However we do have a lesson about how to read our charts HERE, and you can always ask for help (either in person or ver the phone) in the store where you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!
23.05.2021 - 02:10Johanna Reisinger wrote:
Bitte um Hilfe, wenn ich das Muster A5 ansehe, haben die ersten 13 Maschen1 Reihe mehr im Rapport. Wie stricke ich dann die restlichen Maschen?
23.02.2021 - 17:07DROPS Design answered:
Liebe Frau Reisinger, ja genau, die ersten 13 Maschen werden über 2 Reihen mehr in der Höhe als die restlichen Maschen wiederholt. Wenn Sie die ersten 8-10 Reihen (siehe Größe) gestrickt haben, sind noch 2 Reihen übrig über nur die ersten Maschen, bei der nächsten Reihe stricken Sie die nächste Reihe über die 13 Maschen und die restlichen Maschen beginnen Sie vom Anfang an wieder. Viel Spaß beim stricken!
24.02.2021 - 07:09Paula wrote:
Wenn ich das Muster lese und bei A1 - A2A - A2B und A3 angekommen bin, stricke ich die Rückrunde dann wie? Wieder bei A1 anfangen oder von A3 zu A1 spiegelverkehrt zurück? Danke für eine Einstiegshilfe...
05.12.2020 - 19:27DROPS Design answered:
Liebe Paula, wenn Sie bei den Hinreihen so stricken: A.1, A.2A wiederholen, A.2B und A.3 (die Diagramme werden rechts nach links gelesen bzw gestrickt); bei den Rückreihen stricken Sie: A.3, A.2B, A.2A wiederholen, A.1 (die Diagramme werden jetzt links nach rechts gelesen bzw gestrickt). Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
07.12.2020 - 08:00Lene Bang wrote:
Jeg er nået til der hvor A1 - A4 - A5 - A3 skal strikkes på det første for/bagstykke .. når jeg har strikket A4 som afsluttes med 4 vrang fra retten, så starter A5 med 4 vrang fra retten. Er det meningen da det er det eneste sted hvor der dermed kommer 8 vrang fra retten på en gang ? Jeg strikker str XXL
20.08.2020 - 10:07DROPS Design answered:
Hej Lene, A.5 XXL starter med 3ret og så hulmønster (det er det nederste diagram i opskriften. God fornøjelse!
27.08.2020 - 13:33Matilda wrote:
Hej, Jag förstår inte hur jag ska sticka mönster A.5 varv 9 och 10. Ska de tretton maskorna på varven upprepas eller ska man sticka resterande maskor från varv 1?
14.08.2020 - 21:35DROPS Design answered:
Hej Matilda, ja de 13 maskorna skall upprepas i höjden efter de första 10 varven, de resterende maskor skall upprepas i højden efter 8 varv i højden. Lycka till :)
20.08.2020 - 14:17Marit Bakken Lindseth wrote:
PÅ for-og bakstykke mønster A4 ogA5. Hvordan skal man strikke omgang 9 og 10 på mønster A5? jeg skjønner det ikke da mønsteret skal gjentas tre ganger på hver omgang. mønsteret skal jo også strikkes til arbeidet måler47cm.
08.05.2020 - 11:16DROPS Design answered:
Hej Marit, mønsteret som går over de yderste 13 masker i siden, skal gentages ifølge diagrammet efter 10.pind. De andre masker i diagrammet, gentages efter 8.pind. God fornøjelse!
12.05.2020 - 14:45Cindy wrote:
Trying to knit first row and repeating A1,A2 till 10 stitches left but it does not work out can you tell me what is wrong. Starting with 157 stitches leaves 14 stitches 10 stitches I can account for. Is there an error in pattern
17.04.2020 - 23:46DROPS Design answered:
Dear Cindy, work the 157 stitches as follows: A.1 (= 9 stitches), then repeaet A.2A until 10 stitches remain (= 69 times in total over the next 138 sts), work now A.2B (= 1 stitch) and finish with A.3 (= 9 stitches), you have now: 9 + 138 + 1 + 9 = 157 sts. Happy knitting!
20.04.2020 - 08:43Teri wrote:
I really love this piece, but would need to size it down as the person I want to make it for is very petite. Is it possible for you to add the numbers for size XXS? She is 5ft1, and 105 lbs. Thank you.
17.04.2020 - 03:09DROPS Design answered:
Dear Terri, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, please contact your DROPS store or any knitting forum for any further individual assistance. Thanks for your comprehension. Happy knitting!
17.04.2020 - 09:17
River Ripples |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað frá hlið í gatamynstri með saum mitt að aftan og ¾ langar ermar. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-33 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4 og A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju og þessi uppsláttur er felldur af eins og venjuleg lykkja. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan að miðju að aftan í tveimur hlutum, sem saumaðir eru saman mitt að aftan. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Fyrst er ermakúpan prjónuð fram og til baka á stuttan hringprjón, síðan er afgangur af ermum prjónaður í hring á sokkaprjóna / stutta hringprjóna, ofan frá og niður. Að lokum eru ermar saumaðar í. VINSTRA FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 157-157-173-173-187-187 lykkjur á hringprjón 4,5 með Cotton Merino. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið A.2A þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með A.3 (= 9 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður, prjónið A.4 (= 25-25-29-29-31-31 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 114-114-126-126-138-138 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 38-38-42-42-46-46 lykkjur) og haldið áfram með A.3 yfir síðustu lykkjur eins og áður. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona þar til stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm. Í næst síðustu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 81-79-93-91-103-101 lykkjur, fellið af næstu 36-38-40-42-44-46 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu 40 lykkjur. Í næstu umferð (ranga), fitjið upp 36-38-40-42-44-46 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af fyrir handveg og mynstrið heldur áfram fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú op í garðaprjóni með stuttum umferðum þannig að kanturinn á peysunni liggi fallega aftan í hnakka. Byrjið frá röngu og prjónið þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 39 lykkjur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt til baka. Snúið stykkinu, prjónið slétt yfir fyrstu 36 lykkjur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt til baka. Haldið áfram að prjóna yfir 3 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaða hefur verið fram og til baka yfir síðustu 3 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Affellingarkantur = mitt að aftan. HÆGRA FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á vinstra fram- og bakstykki og fylgið útskýringu fyrir vinstra fram- og bakstykki, alveg þar til stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 40 lykkjur, fellið af næstu 36-38-40-42-44-46 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu 81-79-93-91-103-101 lykkjur. Í næstu umferð, fitjið upp 36-38-40-42-44-46 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af fyrir handveg og mynstrið heldur áfram fram og til baka eins og áður alveg eins og á vinstra fram- og bakstykki þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið nú op þannig: Byrjið frá réttu og prjónið slétt yfir fyrstu 39 lykkjur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt til baka. Snúið stykkinu, prjónið slétt yfir fyrstu 36 lykkjur, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt til baka. Haldið áfram að prjóna yfir 3 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaða hefur verið fram og til baka yfir síðustu 3 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Fyrst er prjónuð ermakúpa fram og til baka á stuttan hringprjón. Síðan er ermin prjónuð í hring á stuttan hringprjón, en skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fitjið upp 28-32-36-40-44-48 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið JAFNFRAMT upp 5 lykkjur í lok hverrar umferðar alls 4 sinnum í hvorri hlið = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 3 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá þar sem prjónamerki var sett inn, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-13-14-15 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38 cm frá prjónamerki í öllum stærðum (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið A.6 hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42 cm frá uppfitjunarkanti og niður í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman bæði stykkin mitt að aftan innan við affellingarkantinn – saumið með lykkjuspori. Saumið ermar í. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Lena Lindholm wrote:
Hej, har kommit till varv 9 och 10 hur skall jag stick dessa 2 varv?
13.05.2021 - 21:22