Barn Dance#barndancedress |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, köðlum og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 211-2 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um formið á fram- og bakstykki): AUKIÐ ÚT Á EFTIR MERKI Í HLIÐ ÞANNIG: Prjónið 12-14-16-18-20-22 lykkjur sléttprjón á eftir merki í hlið, prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuliðinn sem liggur utan um fyrstu lykkju á vinstri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð) = 1 lykkja fleiri. AUKIÐ ÚT Á UNDAN MERKI Í HLIÐ ÞANNIG: Prjónið þar til 12-14-16-18-20-22 lykkjur eru eftir á undan merki í hlið, prjónið síðan 1 slétta lykkju í lykkjuna sem liggur utan um ystu lykkju á hægri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð) = 1 lykkja fleiri. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um formið á fram- og bakstykki): FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKI Í HLIÐ ÞANNIG: Prjónið 12-14-16-18-20-22 lykkjur sléttprjón á eftir merki í hlið, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 1 lykkja færri. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 14-16-18-20-22-24 lykkjur eru eftir á undan merki í hlið, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 1 lykkja færri. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um fyrir miðju undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-100-106-112-116-120 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-30-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 128-128-136-152-160-168 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu merki! Berustykkið er síðan prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn (= 16-16-17-19-20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð á undan umferð merktri með ör í A.1, aukið út 0-8-0-8-0-0 lykkjur jafnt yfir = 256-264-272-312-320-336 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykki ca 15-15-15-19-19-19 cm frá merki við háls. Setjið nú 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Merkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 37-39-40-46-49-53 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 54-54-56-64-62-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 74-78-80-92-98-106 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 54-54-56-64-62-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki á undan næstu lykkju. Nú eru 37-39-40-46-49-53 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta merki. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2-4-6-6-8-10 sinnum á hæðina = 272-296-320-360-384-416 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukninga þar til berustykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá merki við hálsmál. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 39-43-46-52-57-63 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 78-86-92-104-114-126 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-43-46-52-57-63 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá og takið frá öll prjónamerkin. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-200-224-248-272 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Byrjið umferð við annan merkiþráðinn í hlið á fram- og bakstykki og prjónið sléttprjón hringinn í 2 cm. Setjið 4 merki í stykkið þannig: Teljið 24-27-30-35-40-45 lykkjur, setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 36-38-40-42-44-46 lykkjur (= mitt að framan), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 48-54-60-70-80-90 lykkjur, setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 36-38-40-42-44-46 lykkjur (= mitt að aftan) og setjið 4. merki á undan næstu lykkju = 24-27-30-35-40-45 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki. Látið merkiþræðina og merkin fylgja með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki, merkin eru notuð síðar þegar prjónað á kaðla á fram- og bakstykki á kjólnum. Prjónið síðan aðsniðið jafnframt því sem kaðlarnir eru prjónaðir eins og útskýrt er að neðan – lesið bæði AÐSNIÐ og KAÐLAR áður en prjónað er áfram. AÐSNIÐ: Prjónið sléttprjón hringinn og fækkið um 1 lykkju þar sem flíkin dregst inn hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 152-168-184-208-232-256 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju í flíkinni þar sem hún dregst inn hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 24-24-24-26-26-26 sinnum á hæðina = 248-264-280-312-336-360 lykkjur. KAÐLAR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingunni í öllum stærðum, prjónið kaðla þannig: Prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan 1. merki, prjónið A.2 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón fram að 2. merki, prjónið A.3 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan 3. merki, prjónið A.2 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón fram að 4. merki, prjónið A.3 (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 yfir A.2 og A.5 yfir A.3. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.x yfir A.4 og A.y yfir A.5. Þegar A.x og A.y hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm frá skiptingunni (nú eru eftir ca 15 cm að loka máli, mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið síðan kant eins og útskýrt er að neðan. KANTUR MEÐ GATAMYNSTRI: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-0-8-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 252-264-288-312-336-360 lykkjur. Prjónið síðan A.6 hringinn (= 21-22-24-26-28-30 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, eru 294-308-336-364-392-420 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Kjólinn mælist ca 86-89-92-95-98-101 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-68-76-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur og látið merkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1-1-½-½ cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 54-58-66-74-78-82 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 13-12-10-8-7-5 cm frá skiptingunni (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Þegar ermin mælist ca 16-15-13-11-10-8 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #barndancedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.