Cessateur skrifaði:
Bonjour, je voulais commencer le petit gilet. Je ne comprend pas les explications pour le col. J'ai deux questions, la première les mailles pour le col l'empiècement et le dos/devant sont bien tricotés en aller retour ? Et les manches seulement en rond? Pour la 2eme question, concernant le motif A1, pour la taille 6/9, j'ai monté 82 mailles, fini le motif A1 ( 4 augmentations), puis il faut augmenter 19m, je me retrouve avec 105m au lieu de 101 comment cela se fait?
28.03.2023 - 20:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cessateur, effectivement, le col et l'empiècement se tricotent en allers et retours, on divise ensuite pour les manches (qui se tricoteront en rond) et on termine le bas du gilet en allers et retours. On ne doit pas augmenter dans A.1, le 3ème rang de A.1 se tricote ainsi (1 jeté, 2 m ens à l'end) entre les mailles de bordure devant (rang ajouré); donc vous avez toujours bien 82 m après A.1 + 19 = 101 m. Bon tricot!
29.03.2023 - 10:11
Elena skrifaði:
Salve, devo lavorare il sesto giro del diagramma A2 per la taglia 2 anni ma all inizio del giro il diagramma mi da 2 m. (rov dal diritto del lav., diritto dal rov. del lavoro) ma per seguire il disegno io devo lavorare 3 maglie come scritto nelle parentesi e poi mi trovo con il diagramma. Ho sbagliato io qualcosa? Grazie
16.02.2023 - 20:31DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, la maglia in più è data dall'aumento nel ferro precedente. Buon lavoro!
09.03.2023 - 23:00
Elena skrifaði:
Salve, vorrei fare questo modello taglia 2 anni con il filato Safran. Ho visto che appartengono entrambi al gruppo A e volevo sapere se posso seguire le vostre spiegazioni per la taglia 2 anni senza modificare niente. Grazie
13.02.2023 - 19:43DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, se il suo campione con Safran corrisponde a quello indicato, può lavorare con le stesse indicazioni. Buon lavoro!
13.02.2023 - 20:58
Lene skrifaði:
Hvor meget garn skal jeg bruge til jakken str 6/9 mdr
07.02.2023 - 12:36
Sharon Bobbins skrifaði:
Hi-Can you please confirm that the pattern for this Jacket uses and begins with chart A2 (not A1 as is printed on Ravelry)? I think this is why I am having such a difficult time . Thanks and Happy Holidays!
23.12.2022 - 17:35DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, A.1 is used for the neck edge and A.2 is used for the yoke of the jacket. The Ravelry page should redirect you to this page, the official version. Happy knitting!
25.12.2022 - 20:10
Sharon Bobbins skrifaði:
While I appreciate your response to my question, I’m still unclear. For the jacket, I am casting on 82 st and immediately beginning pattern A1 (10 are worked in garter for the band). Row 1- 72 stitches are purled. Row2- knit 72 stitches (become 144 with yarn overs ). Row 3-144 st. Row 4-216…. Row 5- 216…. Do I have the wrong A1 pattern?
21.12.2022 - 00:25DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bobbins, work A.1 as follows on first row (K6 x 15 repeats), on 2nd row (K3, P1, K3) and repeat from (to) a total of 15 times and so on. You will start to increase only on 5th row (from RS: *K3, YO, K1, YO, K2*, work from *-* a total of 15 times., this means you will here increase 2 sts x 15 = 30 sts. Read more about diagrams here. Happy knitting!
21.12.2022 - 08:16
Sharon Bobbins skrifaði:
Please help! I’m an experienced knitter but struggling with starting this sweater. After casting on , I started pattern A1, but the stitch count became so high that my 24” needles aren’t long enough! For examples, the Cast on 82 stitches (-10 for neck edge) quickly becomes 154 and then continues to increase. What am I doing wrong?
19.12.2022 - 16:31DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bobbins, when working A.1 size 6/9 months, you will first repeat A.1 over 6 sts then increase in each A.1 until there are 15 sts in each A.1 for the leaf pattern then you will start decreasing again (from 21st row) until there are 12 sts in each A.1, so that there will be 5+(12stsx15 repeats)+1+5=191 sts then increase 3 sts to get 194 sts and start then to increase for raglan. Happy knitting!
20.12.2022 - 07:47
Claire skrifaði:
I'm working the pants part of the tights but the increasing keeps going to 115sts instead of 116 when I get to Row 15 to increase. The pattern looks right the increasing are correct but not the number of sts, I'm baffled!
24.09.2022 - 18:44DROPS Design svaraði:
Dear Claire, could you indicate which size you are working? And which part of the pants is giving you trouble? We recommend checking if the previous increases are correct. Happy knitting!
25.09.2022 - 20:30
Lieselotte Höppe Persson skrifaði:
Hej!Jag har en fråga kring Pink Petals Hat. Jag ska lägga upp 7 maskor och sedan efter att ha stickat A.1 ska jag ha 77 maskor. Hur och när ska jag öka maskantalet? Det står inte. Glada hälsningar Lieselotte Tusen tack!
22.09.2022 - 10:17DROPS Design svaraði:
Hej Liselotte. Ökningarna är inritade i diagrammet, så om du följer diagrammet så kommer du sluta med rätt antal maskor. Mvh DROPS Design
23.09.2022 - 10:48
Maija skrifaði:
I'm knitting tights and run into a problem. The pattern says "Foot measures approx. (10) 11-12-13-14 (15) cm from marker on heel." In my case which is newborn baby size 0/1 that would be 11 cm for the foot. That can't be right. Could you please clarify the measurements?
20.09.2022 - 12:24DROPS Design svaraði:
Dear Maija, the measurements should be fine. We have similar measurements for the foot for socks for 0/1 month babies. Also, since they're tights, they are slightly looser than normal socks, so they are a bit bigger than socks for the same age. Happy knitting!
20.09.2022 - 23:21
Pink Petals#pinkpetalsjacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn og sokkabuxur úr DROPS BabyMerino. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með blaðamynstri, hringlaga berustykki og A- formi. Sokkabuxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 33-13 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð). Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki á peysu): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þegar flíkin er mátuð. 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir A.1. Fellið síðan af fyrir (4) 4-5-5-6 (6) næstu hnappagötum með ca 5 cm millibili. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um op mitt að framan og mitt að aftan á sokkabuxum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga að lokum upp aftur í mynstri. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um innan á skálm á sokkabuxum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HÆLÚRTAKA: Prjónið fram og til baka í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttra lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Takið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Takið fyrstu lykkjuna af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins þar til eftir eru (6) 7-8-8-7 (8) lykkjur mitt í umferð. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna. Haldið áfram með sléttprjón fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hvert skipti sem snúið er við. ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í snúningunum, lyftið þræðinum á undan lykkjunni sem prjónað er með og setjið snúinn á vinstri prjón. Prjónið snúnu lykkjuna saman við lykkjuna áður en stykkinu er snúið við. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á PEYSU HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp (68) 72-78-82-84 (86) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (15) 13-17-19-21 (21) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = (83) 83-95-101-107 (113) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= (12) 12-14-15-16 (17) mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með 1 lykkju garðaprjóni (til að mynstrið byrji og endi alveg eins við kanta að framan) og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör í A.2, jafnið lykkjufjöldann út til (150) 174-182-194-202 (214) lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett eftir fyrstu (26) 29-30-32-33 (35) lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerki er sett eftir næstu (28) 34-36-38-40 (42) lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett eftir næstu (42) 48-50-54-56 (60) lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett eftir næstu (28) 34-36-38-40 (42) lykkjur (= ermi). Nú eru (26) 29-30-32-33 (35) lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð (rétta) er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (3) 3-3-4-4 (4) sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru (174) 198-206-226-234 (246) lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (10) 12-13-14-15 (16) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið (29) 32-33-36-37 (39) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið (48) 54-56-62-64 (68) lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu (29) 32-33-36-37 (39) lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (114) 126-134-146-154 (162) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki (31) 34-36-39-41 (43) lykkjur inn frá hvorri hlið (= (52) 58-62-68-72 (76) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til eftir eru (5) 9-9-5-5 (5) lykkjur í umferð (= (13) 14-15-17-18 (19) mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3B yfir næstu (0) 4-4-0-0 (0) lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með (2) 2½-3-3½-4 (4½) cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = (134) 146-154-166-174 (182) lykkjur – ATH. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þannig að það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni á milli gata í hvorri hlið á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (10) 11-13-15-17 (19) cm prjónið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (12) 13-15-17-19 (21) cm frá skiptingu. Prjónið 8 umferð garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með picot eins og útskýrt er að neðan. AFFELLING MEÐ PICOT: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og fellið af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, (* stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjóni, þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, þannig að það verða 3 nýjar lykkjur á vinstri prjóni. (** Prjónið fyrstu lykkjuna á vinstri prjóni slétt, lyftið fyrstu lykkjunni á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð **), prjónið frá **-** alls 5 sinnum og endurtakið frá (-) meðfram öllum kantinum þar til 1 lykkja er eftir á vinstra prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. ERMI: Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (2) 2-1½-1½- 1½ (1½) cm millibili alls (2) 4-6-7-9 (9) sinnum = (34) 36-36-38-38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist (5) 8-11-13-15 (18) cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist (8) 11-14-16-18 (21) cm, fellið af með picot alveg eins og á fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kanti að framan. ------------------------------------------------------- SOKKABUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður þar til stykkið skiptist fyrir skálmar. Síðan er hvor skálm prjónuð í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka. FALDUR Á BUXUM. Fitjið upp (88) 96-104-120-128 (136) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið 2 cm sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT FRÁ UPPÁBROTI! Prjónið 2 cm sléttprjón. Til að flíkin passi betur er núna prjónuð upphækkun aftan á buxum eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN – ALLAR STÆRÐIR: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið 8 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. BUXUR: Prjónið A.4 hringinn yfir allar lykkjur (= (11) 12-13-15-16 (17) mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Í hverri umferð merktri með stjörnu í A.4 færist byrjunin á umferð um 1 lykkju til vinstri, þ.e.a.s. lyftið fyrstu lykkjunni á hægri prjón yfir prjóninn án þess að prjóna lykkjuna, prjónið A.4 hringinn. Lykkjan sem var lyft yfir á hægri prjón kemur nú til með að prjónast í síðustu endurtekningu með A.4. Næsta umferð byrjar eins og áður. Þegar stykkið mælist (9) 11-12-15-16 (17) cm frá uppábroti mitt að framan, setjið 1 prjónamerki mitt að framan þannig að það sitji 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan (= (44) 48-52-60-64 (68) lykkjur í hvorri hlið á milli prjónamerkja). Haldið áfram með A.4 hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = (120) 128-136-152-160 (168) lykkjur. Haldið áfram með A.4 hringinn þar til stykkið mælist (15) 18-18-21-22 (23) cm frá uppábroti mitt að framan. Fellið nú af 4 lykkjur mitt að framan og mitt að aftan. Hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið hægri skálm eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI SKÁLM: = (56) 60-64-72-76 (80) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Setjið 1 prjónamerki í innanverða skálm og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.4 hringinn – þar sem mynstureiningin gengur ekki jafnt upp, prjónið sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir hringinn, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki innan á skálm – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og að lokum í (5.) 9.-6.-6.-7. (7.) hverri umferð alls (4) 5-6-8-9 (10) sinnum = (28) 30-32-36-38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (13) 17-20-23-26 (31) cm frá skiptingu. Prjónið nú fót eins og útskýrt er að neðan. FÓTUR: = (28) 30-32-36-38 (40) lykkjur. Haldið eftir fyrstu (14) 15-16-18-19 (20) lykkjum á prjóni fyrir hæl (það er mikilvægt að skoða flíkina vel svo að hællinn lendi ekki mitt á fæti), setjið (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur sem eftir eru á þráð (= mitt á fæti). Prjónið HÆLÚRTAKA í sléttprjóni – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur settar af þræði mitt á fæti til baka á prjóninn = (28) 30-32-36-38 (40) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn aftur yfir allar lykkjurnar. Þegar fóturinn mælist (7) 9-10-10-11 (12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2,5 til 3 cm til loka), skiptið lykkjum þannig að það verða (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (4) 4-4-5-5 (5) sinnum = (12) 14-16-16-18 (20) lykkjur eftir í umferð. Klippið þráðinn frá þannig að það verði nægilega langur þráður til að sauma með. Leggið stykkið flatt og saumið (6) 7-8-8-9 (10) lykkjur á fæti við (6) 7-8-8-9 (10) lykkjum undir fæti með lykkjuspori. Fóturinn mælist ca (10) 11-12-13-14 (15) cm frá prjónamerki á hæl. Setjið til baka (56) 60-64-72-76 (80) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið skálm og fót alveg eins, en passið uppá að fóturinn snúi í rétta átt, svo að hællinn komi ekki mitt ofan á fæti (setjið fyrstu (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu (14) 15-16-18-19 (20) lykkjum á prjóni fyrir hæl). FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant fyrir saum yfir að röngu og saumið fallega niður, en skiljið eftir smá op til að þræða teygjuna í gegn. Þræðið teygjuna í gegn og saumið opið saman. Saumið saman 4 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkpetalsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.