Hoste skrifaði:
Alcapa en mohair kan ik niet tegen is er dan mogelijkheid om een andere soort wol te nemen voor dezelfde steekverhouding zo ja welk merk van wol die jullie verkopen moet ik dan nemen?
22.10.2019 - 21:17DROPS Design svaraði:
Dag Hoste,
Deze trui is gebreid met garen uit garengroep B, dus voor een vervangend garen met ongeveer dezelfde stekenverhouding kun je een garen uit die groep nemen. Hier vind je een overzicht van de verschillende categorieën. 23.10.2019 - 20:35
Kerstin Fryklund skrifaði:
Ska den verkligen inte vara längre än 24 cm under ärmhålet? Slutar strax under midjan då!
06.10.2019 - 22:02DROPS Design svaraði:
Hej. Måtten ska vara riktiga (24+3 totalt under ärmhålet), men du kan självklarat sticka den lite längre om du önskar det. Lycka till!
07.10.2019 - 13:18
Karla skrifaði:
Hola, disculpen, ¿el trabajo se teje en redondo?
26.09.2019 - 14:17DROPS Design svaraði:
Hola Karla! Este trabajo se teje en redondo con una aguja circular desde el centro de la espalda, trabajado de arriba abajo. Trabajar las mangas en redondo en agujas de doble punta/ una aguja circular corta. Buen trabajo!
08.10.2019 - 18:47
CO skrifaði:
Bonjour, est il possible de concevoir ce modèle avec des aiguilles droites ? Merci, et dans ce cas avec quelle taille ?
30.07.2019 - 09:53DROPS Design svaraði:
Bonjour! Regardez une de nos lecons sur ce sujet ICI. Bon tricot!
30.07.2019 - 14:53
23 skrifaði:
COMBIEN DE PELOTES FAUT IL POUR UNE TAILLE S
25.07.2019 - 10:27DROPS Design svaraði:
Bonjour. Pour la taille S vous avez besoin de 8 pelotes (= 400 g). Bon tricot!
25.07.2019 - 20:58
Alexandra skrifaði:
Elégant
13.07.2019 - 15:53
Victoria skrifaði:
Frisk er et fint navn til denne genseren
02.07.2019 - 23:59
Rose skrifaði:
Nydelig genser
23.06.2019 - 23:20
Cristina skrifaði:
Cozy winter
20.06.2019 - 15:49
Olya skrifaði:
Raindrops
09.06.2019 - 08:30
Strawberry Rain#strawberryrainsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2/A.3). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-102-105-108-114-123 lykkjur á hringprjón 3 með Puna. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 11-13-20-22-21-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 110-115-125-130-135-145 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú mynstur A.1 (= 5 lykkjur) 22-23-25-26-27-29 mynstureiningar hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 286-299-325-338-351-377 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M, L: Prjónið mynstur A.2 yfir hverja mynstureiningu A.1. Þegar prjónað hefur verið upp að ör í þinni stærð eru 286-322-350 lykkjur í umferð. Stærð XL: Prjónið * A.2, A.3 *, prjónið *-* hringinn í umferð alls 13 sinnum. Þegar prjónað hefur verið upp að ör í þinni stærð eru 377 lykkjur í umferð. Stærð XXL og XXXL: Prjónið mynstur A.3 yfir hverja mynstureiningu A.1. Þegar prjónað hefur verið upp að ör í þinni stærð eru 405-435 lykkjur í umferð. Allar stærðir: Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í síðustu umferð sem prjónuð var í stærð XL, XXL og XXXL = 286-322-350-376-404-434 lykkjur. Síðasta umferð í berustykki er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-55-61-66 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-93-101-110-122-132 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-47-51-55-61-66 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 184-202-218-240-264-288 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-4-5-5-6 nýjar lykkjur í hvorri hlið á ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út með ca 5 cm millibili alls 4 sinnum = 200-218-234-256-280-304 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24 cm, aukið út um 31-34-36-38-41-47 lykkjur jafnt yfir = 231-252-270-294-321-351 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 59-68-74-78-80-85 lykkjur af bandi á annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-76-82-88-90-97 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-4-5-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 9-13-15-17-17-19 sinnum = 49-50-52-54-56-59 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-36-34-32 cm, aukið út um 5-7-8-9-9-9 lykkjur jafnt yfir = 54-57-60-63-65-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Öll ermin mælist ca 43-42-40-39-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberryrainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.