Yvonne skrifaði:
Har kommit till mönster A1 stl 5-6 jag har 84 m har stickat 2 r varv och nu fråga ang. rad 3 ska jag sticka 6 av masker en ökning och fortsätta 6 av masker en ökning och så varvet ut ? Har då 98 m jag stickar ett räta v och nästa räta v ska jag börja med en ökning och sticka 7 m och öka en m och göra så varvet ut ? Ska det bli 112m då ? Ska jag fortsätta med ökningar totalt 14 rapport hela A1 ?
30.10.2026 - 12:12DROPS Design svaraði:
Hei Yvonne. Ja. Str. 5/6 år och 84 masker på pinnen. Sticka 1 varv avigt. På nästa varv stickas det efter diagram A.1, totalt 14 ggr på varvet = 6 masker x 14 ganger = 84 masker. Når rad 3 stickas skal det økes 1 maske per gang A.1 stickas, altså 14 ganger = 84+14 = 98 masker. Når rad 5 stickas skal det økes 1 maske per gang A.1 stickas, altså 14 ganger = 98 +14 = 112 masker. Når rad 9 stickas skal det økes 1 maske per gang A.1 stickas, altså 14 ganger = 112 +14 = 126 masker, osv. När diagram A.1 är färdigstickat på höjden är det 224 masker på pinnen (16 masker x 14 ganger). mvh DROPS Design
02.11.2026 - 13:17
HL skrifaði:
Given the gauge of 21 st for approx 4” the long tail cast on gives a circumference that is small for a child’s head. With garter stitch at the beginning, around the neck, is there enough stretch to go over a child’s head. Knitting this as a gift and will not be able to try on the child as I knit.
08.07.2026 - 03:48DROPS Design svaraði:
Hi HL, Yes, the neck should be wide enough to go over the child's head but, if you wish, you can cast on more stitches for the neck and then increase less stitches after for the yoke. Regards, Drops Team.
08.07.2026 - 06:38
Nancy Bernard skrifaði:
I'm trying to knit the Daisy Delight with the Merino Extra Fine in size 5/6 and I'm confused. It appears to be asking for 66 stitches in 2 ridges before increasing to 84 stitches. Even my shortest circular needle will not allow that and I can't see it fitting over my granddaughter's head. Am I missing something? Thank you.
06.02.2026 - 05:13
Stephanie skrifaði:
Fals jemand wie ich auch denkt beim Maschenanschlag geht kein Kinderkopf durch nehmt die größte Größe und zählt dann die Zunahme ab von der jeweiligen Größe klappt wirklich gut bisher brauchte 134 .Meine 6 Jährige ist sehr lang gebaut da hab ich dann die 6 Maschen eingeplant abzuziehen von der Zunahme.
01.02.2026 - 23:54
Stephanie skrifaði:
Wie macht man das im Muster mit den Gelb? Läuft das 60g Knäul hinten die ganze Zeit mit oder nehme ich jeweils im Mustersatz diesen Gelben Faden mit und schneide, den dann ab oder vernähe quer den Faden ein den Anfang und Ende? Ich verstehe das noch nicht ganz ,weil ich niemals solch3 Muster gestrickt habe! Meine halt da braucht man nie 50g Wolle von bei 2 Reihen sehr seltsam
01.02.2026 - 23:49DROPS Design svaraði:
Liebe Stephanie, Sie führen den gelben Faden in der Runde hinter der Arbeit mit. Sie können diese Faden beim Mitführen mit dem Strickfaden 1 x auf der Strecke bis zur nächsten Masche verkreuzen, damit der gelbe Faden nicht durchhängt. Sie können sich dazu auch gut unsere Hilfsvideos anschauen, Sie finden welche im Kopf der Anleitung unter "Videos". 50 g steht dort als Verbrauch, weil Sie ja nicht weniger als 1 Knäuel zu 50 g kaufen können - es wird immer auf die Menge aufgerundet, die man kaufen kann. Viel Spaß beim Stricken!
02.02.2026 - 11:38
Julia skrifaði:
Hallo, kann es sein, dass die Strickschrift einen Fehler enthält? In Reihe 36/37 müssten meiner Meinung nach die weißen Maschen anders sein, damit wieder eine Blume entsteht.
11.12.2023 - 22:22DROPS Design svaraði:
Liebe Julia, die Zunahmen werden in der Mitte vom Diagram gestrickt, so wird das Diagram so aussehen, aber wenn Sie das Diagram folgen genauso wie beschrieben, werden die Blumen richtig aussehen. Viel Spaß beim stricken!
12.12.2023 - 08:59
Laubscher skrifaði:
Pouvez-vous me dire dans quelle qualité de laine le modèle en photo a été réalisé ? Est-ce en Drops Merino extra fine ou Cotton Light ou Drops Lima? Je me pose la question car le modèle en photo me semble d'un rose plus magenta que le bruyère 34 Drops merino que je viens de recevoir Merci de votre réponse. Cordialement Véronique Laubscher
31.10.2023 - 12:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Laubscher, le modèle photographié a été tricoté en DROPS Merino Extra Fine, notez que les couleurs peuvent varier d'un ordinateur à l'autre, mais également en fonction de la luminosité de la photo du modèle, et du bain des couleurs. Bon tricot!
31.10.2023 - 16:19
Chevrier skrifaði:
Bonjour. Je pense qu il y a une erreur de mesure pour la taille 5/6 ans car c est indiqué 16 cm des emmanchures jusqu au côtes et j ai fait 23 cm et c est juste en hauteur.
30.10.2023 - 16:11
Christa skrifaði:
Ich habe dieses Modell für meine Urenkelin nachgearbeitet. Ist wunderschön geworden, mit passender Mütze. Sieht super aus! Danke fürderhin perfekte Anleitung!
24.10.2023 - 11:40
Leanne Hart skrifaði:
Do you have the pattern of the hat shown in the main picture?
09.08.2023 - 00:37DROPS Design svaraði:
Hi Leanne, You can find all our children's hats if you search for 'Children's hats' in the search box. Happy crafting!
09.08.2023 - 07:15
Daisy Delight#daisydelightsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine, DROPS Lima eða Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blómum, litamynstri, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 34-7 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Stykkið skiptist upp við fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70-76-82 lykkjur á hringprjón 4 með litnum fjólublár/kirsuberjarauður/dökk rauður. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-20-22-23 lykkjur jafnt yfir í umferð sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! = 78-84-90-98-105 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð og mælið síðan héðan. Í næstu umferð er prjónað eftir mynsturteikningu A.1, (veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð) alls 13-14-15-14-15 sinnum í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 208-224-240-252-270 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 4-4-6-2-6 lykkjur jafnt yfir í umferð = 212-228-246-254-276 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 44-48-51-53-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 62-66-72-74-76 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-53-62 lykkjur á þráð (= hin ermin), fitjið upp 6 nýjar lykkjur og prjónið 62-66-72-74-76 lykkjur slétt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 136-144-156-160-164 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýju lykkja sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu með 3-4-5-6-7 cm millibili alls 3 sinnum = 148-156-168-172-176 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 160-168-180-184-188 lykkjur. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 22-27-30-34-37 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-5-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daisydelightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.