DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Daisy Delight

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine, DROPS Lima eða Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blómum, litamynstri, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.

DROPS Children 34-7
DROPS Design: Mynstur me-052-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm.
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350 g litur 34, fjólublár
50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50 g litur 30, sinnep

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350 g litur 6273, kirsuberjarauður
50-50-50-50-50 g litur 0100, natur
50-50-50-50-50 g litur 2923, gulur

Eða notið:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350 g litur 17, dökk rauður
50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50 g litur 28, gulur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Stykkið skiptist upp við fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70-76-82 lykkjur á hringprjón 4 með fjólublár/kirsuberjarauður/dökk rauður. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-20-22-23 lykkjur jafnt yfir í umferð SJÁ ÚTAUKNING! = 78-84-90-98-105 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð og mælið síðan héðan. Í næstu umferð er prjónað eftir mynsturteikningu A.1, (veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð) alls 13-14-15-14-15 sinnum í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 208-224-240-252-270 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 4-4-6-2-6 lykkjur jafnt yfir í umferð = 212-228-246-254-276 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18 cm frá prjónamerki.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 44-48-51-53-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 62-66-72-74-76 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-53-62 lykkjur á þráð (= hin ermin), fitjið upp 6 nýjar lykkjur og prjónið 62-66-72-74-76 lykkjur slétt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 136-144-156-160-164 lykkjur í umferð.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýju lykkja sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) SJÁ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu með 3-4-5-6-7 cm millibili alls 3 sinnum = 148-156-168-172-176 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 160-168-180-184-188 lykkjur. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. SJÁ ÚRTAKA.
Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 22-27-30-34-37 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-5-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

Prjónið hina ermina alveg eins.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = slétt með natur
symbols = slétt með sinnep
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt
symbols = í þessari umferð er aukið út mitt í mynsturteikningu, passið því vel uppá að mynstrið passi í næstu umferðum
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Daisy Delight

Barbara, United States

Daisy Delight

Simone, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Elina Kerälä wrote:

Työssä on ohjeen mukaan 84 silmukkaa. Aloitan mallineuleen ja yksi kuvio on ohjeessa 16 silmukkaa. En todella saa menemään kuvioo tasan! Minun vai ohjeen virhe??

10.04.2021 - 19:36

DROPS Design answered:

Hei, piirros neulotaan alhaalta ylös, eli yhdessä mallikerrassa on aluksi vain 6 silmukkaa.

14.04.2021 - 17:04

country flag Gilda ROUSSET wrote:

Concernant ce Modèle n° me-052-bn que je vais tricoter en 11/12 ans, je voudrais faire une encolure moins grande. Pouvez-vous me donner un conseil. Merci d'avance.

25.02.2021 - 13:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rousset, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, vous pouvez vous inspirer d'un modèle analogue de même tension ou bien consulter votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

25.02.2021 - 15:20

country flag Eelke wrote:

Mijn kleinkind heeft een hoofdomtrek van 52 cm ( grootste maat) Hoe kan ik dit patroon aanpassen zodat het over haar hoofd kan?

04.02.2021 - 15:25

DROPS Design answered:

Dag Eelke,

Bij een hoofdomtrek van 52 cm, kom je op een diameter van 16,5 cm. Dat zou dus makkelijk moeten kunnen in de grootste maat. De diameter van de hals in die maat is namelijk ook 16 cm en het werk rekt ook wat mee. Zorg er voordat je de hals losjes opzet, dan weet je zeker dat het past.

06.02.2021 - 11:24

country flag Eelke wrote:

Mijn kleinkind heeft een hoofdomtrek van 52 cm ( grootste maat) Hoe kan ik dit patroon aanpassen zodat het over haar hoofd kan?

04.02.2021 - 13:32

country flag Elly De Hooge wrote:

Ik wil deze kindertrui breien. Begin ik direct met de ring te sluiten? Wan ik kan niet rondbreien met 66 steken. Bovendien past daar een kinderhoofd ook niet door. Zo een kleine halsopening ? Oog sluit ik pa naar de eerste meerdering? Maar dan is de rbbel steek niet goed uitgelegd 1 nld recht 1 nld av.?

01.02.2021 - 14:27

DROPS Design answered:

Dag Elly,

Ja, je begint gelijk in de rondte te breien, dus je moet direct de ring sluiten. Als je de steken losjes opzet, zou het gat van de hals groot genoeg moeten zijn. In het begin kan het wat te klein lijken, maar als je een stukje op weg bent, zal je zien dat het wel past. Je kunt starten met sokkenbreinaalden en later overgaan op een rondbreinaald.

23.02.2021 - 13:41

country flag Gine Marie Hoelsveen wrote:

Er det virkelig riktig at man skal øke før vrangborden skal strikkes? Og heller ikke gå ned en str på pinnen på vrangborden? Den blir jo så vid...!? Strikker 9/10år,og vrangborden på armen er jo nesten for stor til meg (voksen L) FØR jeg skal øke 5m før vrangborden.. Og ja, jeg har eiktoft strikkefasthet med merino extra fine... Jeg velger å løse det nå med å heller felle 5m,og droppa å på bolen. Men er det feil i oppskriften eller skal det være slik? 😊

16.01.2021 - 21:25

DROPS Design answered:

Hei Gine. Så flott at du fikk løst det slik at det passer deg. I de fleste nye oppskrifter økes det før vrangborden strikkes. Dette for å få en pener overgang, slik at plagget ikke trekker seg så mye sammen. Det er riktig at det ikke byttes pinne i denne oppskriften. Ønsker du likevel at vrangborden skal strammes litt inn kan det byttes til 1 eller 1/2 pinne mindre om ønskelig. mvh DROPS design

27.01.2021 - 08:01

country flag Birgitte wrote:

Hej jeg forstår ikke jeres råd vedr strikkefastheden i jeres opskrifter🤔 Hvis der er for mange masker til 10 cm- skift til større pinde og hvis for få -skift til mindre pinde??? I mit hovede er det lige omvendt( hvad (jeg også får at vide i min lokale garnbutik) Glædelig jul🎅🏻

10.12.2020 - 12:39

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, Hvis du har for mange masker på 10 cm, så vil du have dine masker større og det får du med tykkere pinde. God fornøjelse!

10.12.2020 - 15:15

country flag Kenzai wrote:

Pouvez vous me donner le nombre de mailles pour un enfant de 8ans. Et 12ans merci

23.11.2020 - 11:32

DROPS Design answered:

Bonjour Kenzai, en taille 7/8 ans, suivez la 3ème série de nombres/chiffres et en taille 12 ans, suivez la dernière série de nombres/chiffres - pour les quantités de laine nécessaire ainsi que pour le nombre de mailles à monter, et toutes les mesures et indications du modèle. Bon tricot!

23.11.2020 - 11:47

country flag Birgitta Appelholm wrote:

Hej! Tack för snabbt svar, men jag menar, hur ökar jag en avig maska via ett omslag? Jag var inte tydlig med min fråga. Hälsningar Birgitta

10.11.2020 - 11:10

DROPS Design answered:

Hej Birgitta. Du gör omslag på samma sätt oavsett om det ska bli en rät eller en avig maska. Mvh DROPS Design

10.11.2020 - 11:22

country flag Birgitta Appelholm wrote:

Hur stickas ett omslag i bakre maskbågen vid en avig maska?

10.11.2020 - 08:52

DROPS Design answered:

Hej Birgitta. I denna video kan du se hur du ska göra. Mvh DROPS Design

10.11.2020 - 09:16