Monique skrifaði:
Hallo, Word de pas gemeten vanan de opzetrand ? Die 16/17 cm lijken mij erg weinig ? Of moet ik de 3 cm van de halsboord niet mee meten?
10.11.2024 - 23:34DROPS Design svaraði:
Dag Monique,
De pas wordt gemeten vanaf de opzetrand, dus inclusief de halsboord. Je meet de pas op het voorpand, dus zonder de verhoging.
11.11.2024 - 19:43
Elisabetta skrifaði:
Non capisco oer qs maglione qyake e la tg 2 anni
04.01.2024 - 00:52DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elisabetta, per la taglia 2 anni deve considerare il primo numero di ogni serie di numeri. Buon lavoro!
04.01.2024 - 08:31
Ann Katrin Karlsson skrifaði:
Finns beskrivningen på svenska
22.11.2022 - 21:00DROPS Design svaraði:
Hej Ann Katrin, ja, du kan klicka på: ändra språk som ligger under bilden :)
23.11.2022 - 11:24
Lulusa skrifaði:
Lo voy a intentar pero les doy las gracias por ser tan generosos
27.01.2021 - 17:12
Anna skrifaði:
Bedeutet es z. B. Größe104-(bis) 110 oder 98/104?
02.08.2020 - 13:18DROPS Design svaraði:
Liebe Anna, die 2. Grösse = 3/4 Jahre = 98/104 cm. Viel Spaß beim stricken!
03.08.2020 - 08:19
Christine skrifaði:
Oppskriften er meget enkel. Men genseren er ganske A-formet. Noe som kommer dårlig frem fra starten/bildene.
29.04.2020 - 17:08Angharad skrifaði:
This was the first top down sweater I’ve ever knitted and only my second colour way. It was a dream to knit with a very easy to follow pattern. I loved knitting it and my daughter loves wearing it. Thank you.
08.01.2019 - 21:10
Winter Berries#winterberriessweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn, prjónuð frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri á berustykki og A-formi og prjónað eyrnaband með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 32-5 |
||||||||||||||||||||||
---------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun (þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja aftan). Byrjið frá réttu með ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-12-12-13-13-14 lykkjur framhjá prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-24-26-26-28 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-72-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að framan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um norrænt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 20. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá eru 19. og 20. hver lykkja prjónaðar slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-84-88-88-92 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2-2-2-3-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-90-90-96-96-102 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónaðu UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 hringinn (= 28-30-30-32-32-34 mynstureiningar með 3 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Ör-1: Aukið út um 16-14-14-12-12-10 lykkjur jafnt yfir = 100-104-104-108-108-112 lykkjur (passið uppá að aukið sé út með litnum natur í þessari umferð). Ör-2: Aukið út um 14-16-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 114-120-120-126-126-132 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-20-21-21-22 mynstureiningar með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 22-24-26-28-34-36 lykkjur jafnt yfir = 136-144-146-154-160-168 lykkjur. Ör-4: Aukið út um 20-24-26-26-28-28 lykkjur jafnt yfir = 156-168-172-180-188-196 lykkjur (nú er pláss fyrir 39-42-43-45-47-49 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-5: Aukið út um 20-22-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 176-190-196-204-216-224 lykkjur. Ör-6: Aukið út um 16-18-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 188-204-212-220-236-244 lykkjur (nú er pláss fyrir 47-51-53-55-59-61 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-7: Aukið út um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 196-212-220-230-246-254 lykkjur. Ör-8: Aukið út um 8-4-8-10-6-10 lykkjur jafnt yfir = 204-216-228-240-252-264 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 hringinn (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 16-16-16-17-20-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið 0-0-1-2-0-0 cm sléttprjón með litnum ljós grár. Stykkið mælist nú ca 16-16-17-19-20-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð með litnum ljós grár: Prjónið 30-32-34-36-38-40 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 60-64-68-72-76-80 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 30-32-34-36-38-40 lykkjur sem eftir eru sléttar (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-140-148-160-168-176 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á lykkjum í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3-4-4½-5-5½-6½ cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 148-156-164-176-184-192 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 16-20-23-25-28-32 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-40-44-48-48 lykkjur jafnt yfir = 184-196-204-220-232-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-44-46-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið á að nota aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3½-4-4-4½-5 cm millibili alls 6-6-6-7-7-7 sinnum = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Þegar ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð þar slétt sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. EYRNABAND. Fitjið upp 108-116-120 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 100-108-112 lykkjur. Prjónið A.3 hringinn (= 25-27-28 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 108-116-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Eyrnabandið mælist ca 9 cm frá uppfitjunarkantin að affellingarkanti. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterberriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.