DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Berries Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri á berustykki og A-formi. Stærð 2-12 ára.

DROPS Children 32-6
DROPS Design: Mynstur u-077-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-250-300-300-350 g litur 44, ljós grár
50-50-50-50-50-100 g litur 48, vínrauður
50-50-50-50-50-100 g litur 72, ljós perlugrár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 13, kirsuberjarauður
50-50-50-50-50-50 g litur 16, dökk grár

-------------------------------------------------------
FYLGIHLUTIR FYRIR STYKKIÐ:

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, NR 513: 5-6-6-7-7-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

----------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun (þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan).
Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-12-12-13-13-14 lykkjur framhjá lykkju með prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 23-25-25-27-27-29 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 34-37-37-40-40-43 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 45-49-49-53-53-57 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 56-61-61-66-66-71 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt).
Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kant að framan):
Í þeirri umferð þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er einnig prjónað með lit í röndum eða grunnlit í mynsturbekk yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um norrænt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 27,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 27. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Ekki er aukið yfir kanta að framan.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðnir svo að ekki myndast göt.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkju slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-6-6-7 næstu hnappagötum með ca 8-7½-8-7½-8-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 92-96-96-100-100-104 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með ljós grár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Í næstu umferð er prjónað frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið síðan áfram með stroff þannig – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist ca 2-2-2-3-3-3 cm er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 3-5-5-7-7-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 95-101-101-107-107-113 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónaðu UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til eftir eru 6 lykkjur á prjóni (= 28-30-30-32-32-34 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan (allar útaukningar eru gerðar frá réttu).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og ÚTAUKNING-1.
Ör-1: Aukið út um 16-14-14-12-12-10 lykkjur jafnt yfir = 111-115-115-119-119-123 lykkjur (passið uppá að aukið sé út með natur í þessari umferð).
Ör-2: Aukið út um 14-16-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 125-131-131-137-137-143 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-20-21-21-22 mynstureiningar með A.1A með 6 lykkjum).
Ör-3: Aukið út um 22-24-26-28-34-36 lykkjur jafnt yfir = 147-155-157-165-171-179 lykkjur.
Ör-4: Aukið út um 20-24-26-26-28-28 lykkjur jafnt yfir = 167-179-183-191-199-207 lykkjur (nú er pláss fyrir 39-42-43-45-47-49 mynstureiningar með A.1A með 4 lykkjum).
Ör-5: Aukið út um 20-22-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 187-201-207-215-227-235 lykkjur.
Ör-6: Aukið út um 16-18-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 203-219-227-235-251-259 lykkjur (nú er pláss fyrir 48-52-54-56-60-62 mynstureiningar með A.1A með 4 lykkjum).
Ör-7: Aukið út um 10-10-10-12-18-22 lykkjur jafnt yfir = 213-229-237-247-269-281 lykkjur.
Ör-8: Aukið út um 8-4-8-10-0-0 lykkjur jafnt yfir = 221-233-245-257-269-281 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2B (= 7 lykkjur), prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 12 lykkjum – ATH: Þegar prjónað er frá röngu er mynstureining lesin frá vinstri til hægri), endið með 5 kantlykjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 16-16-16-17-20-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið 0-0-1-2-0-0 cm sléttprjón með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Stykkið mælist nú ca 16-16-17-19-20-20 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu með ljós grár: Prjónið 36-38-40-42-44-46 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 36-38-40-42-44-46 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 147-155-163-175-183-191 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 39-41-43-46-48-50 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 69-73-77-83-87-91 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á lykkjum í hliðum.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-3-3½-3½-4-4½ cm millibili alls 5-5-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 167-175-183-199-207-215 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 16-20-23-25-28-32 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 37-41-45-49-53-53 lykkjur jafnt yfir = 204-216-228-248-260-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið áfram með stroff í 4 cm. Fellið síðan af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 43-45-47-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-51-53-57-59-61 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið á að nota aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-3½-4-4 cm millibili alls 7-7-7-8-8-9 sinnum = 35-37-39-41-43-43 lykkjur. Þegar ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð þar slétt sem aukið er út um 1-3-1-3-1-5 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = ljós perlugrár
symbols = dökk grár
symbols = vínrauður
symbols = kirsuberjarauður
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Silke Schulenburg wrote:

Hallo liebes Team, gibt es diee Anleitung auch als PDF? Ihre Anleitungen sind so klasse! Danke im Voraus für eine Antwort. Lieben Gruß Silke Schulenburg

25.05.2021 - 13:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schulenburg, herzlichen Dank für Ihren Komentar! Unsere Anleitungen können nur ausgedruckt werden, aber wenn Sie einen virtualen Drucker wählen, dann können Sie als .PDF speichern. Viel Spaß beim stricken!

25.05.2021 - 14:15

country flag Enrica wrote:

Buona sera non riesco a capire questo passaggio "Dopo aver lavorato il diagramma A.1 1 volta in verticale, lavorare il ferro successivo come segue, sul rovescio del lavoro: 5 maglie per il bordo davanti a punto legaccio, diagramma A.2B (= 7 maglie), ripetere il diagramma A.2A finché non rimangono 5 maglie (= 17-18-19-20-21-22 ripetizioni di 12 maglie – diagramma A.2B non c'è nella spiegazione grazie 1000 x la vostra attenzione e complimenti bellissimi modelli

01.04.2019 - 17:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Enrica. Trova il diagramma A.2B in fondo alle spiegazioni, a fianco dello schema con le misure, sotto il diagramma A.2A. Buon lavoro!

01.04.2019 - 18:41

country flag Desplanche wrote:

Comment traduire ce modèle pour une machine à tricoter? Merci

12.01.2019 - 11:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desplanche, toutes les machines à tricoter étant différentes, il vous faudra vous référer au fonctionnement de la vôtre, pour toute assistance complémentaire, merci de contacter le magasin où vous avez acheté votre laine et/ou un forum de tricot machine. Bon tricot!

14.01.2019 - 09:56