Jamie Peirson Crucefix skrifaði:
I am doing Cathedral Windows 194-10 currently on row 7. I am finding the diagram does not count to yarn over = increases. After 1st row of yarn overs i have 8 extra stitches. Should input stocking stitch inbetween the diagrams example 1 before A1, 1 between A1 and A2. one between every repeat of A2 and after A3? I need some more clarity of how many stiches i should have after the 1st row of 8 decreases where you go down to for size large 65 stitches.
27.12.2023 - 21:51DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Peirson Crucefix, 7th row is worked just as 3rd row, you should work the wave pattern the same way and the number of yarn overs will be compensated by the number of decreased stitches so that the number of sts remain the same. Adding markers between repeats can help you to keep tracking. Happy knitting!
02.01.2024 - 09:16
Christine W skrifaði:
Bonjour, J'ai commencé ce pull mais je ne comprends pas : si je diminue de 8 mailles au premier rang du diagramme ,je n'ai plus assez de mailles pour faire le diagramme entier ...
09.12.2020 - 11:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine W, ces diminutions se font automatiquement quand on tricote le 1er rang de A.1 à A.3: dans A1, vous diminuez 1 m, dans chaque A.2 vous diminuez 2 m = soit 3x2 m = 6 dim dans A.2 au total et dans A.3, vous diminuez 1 m = vous avez diminué au total 1+6+1= 8 m au 1er rang. Continuez les diagrammes comme indiqué: A.1 = 6 m, A.2 = 12 m et A.3 = 7 m. Bon tricot!
09.12.2020 - 15:56Ekaterina skrifaði:
Es gibt kein Zunahmetipp in der deutschen Anleitung (auf das man sich im Teil "Aermel" bezieht). Koennten Sie bitte pruefen? Danke sehr!
27.07.2018 - 15:16DROPS Design svaraði:
Liebe Ekaterina, Danke für Ihre Rückmeldung, der Tipp wurde dazugeschrieben. Viel Spaß beim stricken!
31.07.2018 - 11:19
Katarina skrifaði:
Snyggt mönster men verkar mycket obekväm alldeles för bred
12.07.2018 - 23:01
Birds skrifaði:
Tänkte på fåglar när jag såg denna!
11.07.2018 - 12:28
Surin skrifaði:
Mon préféré mais dans un autre coloris
22.06.2018 - 13:48
Doris skrifaði:
Sehr schönes Modell, freue mich auf die Anleitung!
17.06.2018 - 11:13
Cathedral Windows#cathedralwindowssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað með öldumynstri og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-10 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------ GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið áfram nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan er prjónuð ermakúpa fram og til baka. ATH: Í allri mælingu á lengd á fram- og bakstykki er mælt frá þar sem öldumynstur er styst, þ.e.a.s. þar sem öldumynstur beygist upp (séð eins og þegar flíkin er mátuð). FRAMSTYKKI: Fitið upp 65-67-73-77-85-89 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum Air. Prjónið 3 umferðir slétt. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 3-4-7-9-9-11 lykkjur í sléttprjóni, A.1 (= 7-7-7-7-8-8 lykkjur), A.2 (= 14-14-14-14-16-16 lykkjur) 3 sinnum á breidd, A.3 (= 8-8-8-8-9-9 lykkjur), 3-4-7-9-9-11 lykkjur í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í fyrstu umferð í mynsturteikningu er fækkað um alls 8 lykkjur í umferð = 57-59-65-69-77-81 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið síðustu 4 umferðir í mynsturteikningu. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm fellið af lykkjur fyrir handveg og prjónið síðan mynstur þannig: Fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-3-5-4 sinnum = 49-51-53-55-59-61 lykkjur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-34-35-37-36-38 cm (passið uppá að endað sé eftir síðustu 4 umferðirnar í A.1, A.2 og A.3 á hæðina) prjónið A.4 yfir A.1, A.5 yfir A.2 og A.6 yfir A.3. Þegar allar umferðirnar í mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6 hafa verið prjónaðar til loka á hæðina, mælist stykkið ca 40-42-43-45-46-48 cm. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í sléttprjóni eftir A.4, A.5 og A.6 setjið miðju 9-9-9-11-11-11 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni = 15-16-17-17-19-20 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Fellið af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI. Fitjið upp og prjónið mynstur eins og á framstykki og fellið af lykkjur fyrir handveg alveg eins og á framstykki. Þegar A.4, A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram þannig: Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 10 umferðir eftir mynsturteikningu. Í næstu umferð eru felldar af miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 15-16-17-17-19-20 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 20-22-24-24-24-26 lykkjur á sokkaprjón 9 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í hring í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 10. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-1-0-0-1-1 lykkju jafnt yfir = 21-23-24-24-25-27 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8-10-10 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út um 6-6-6-5-4-4 cm millibili alls 6-6-6-7-7-7 sinnum = 33-35-36-38-39-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-44-41-41-38-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan ermakúpu til loka með sléttprjón fram og til baka. Fellið af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til ermin mælist 47-47-46-46-45-45 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og prjónið upp 60-70 lykkjur á hringprjón 9 með 2 þráðum Air í kringum kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði á framstykki). Lykkjufjöldi sem er prjónaður upp verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cathedralwindowssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.