DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Malmö

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kaðli, háum kraga og rúllu kanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-8
DROPS Design: Mynstur sk-004
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-400-400-450 g litur 08, fjólublár

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir kant á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

KAÐALL:
Í næsta skipti þegar prjóna á kaðal (þ.e.a.s. í 5. umferð í A.2), færist kaðallinn til um 1 lykkju til vinstri þannig: Prjónið eins og áður til A.2, prjónið 1 lykkju slétt, setjið næstu 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni. Færið kaðalinn til þannig (Þ.e.a.s. 1 lykkja til vinstri) í hvert skipti sem kaðall er prjónaður þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki (þ.e.a.s. þar til berustykki hefur verið prjónað til loka).

ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 uppslátt (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt!

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 4 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur slétt.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður hár kragi, síðan er berustykki prjónað. Berustykki skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

HÁR KRAGI:
Fitjið upp 84-88-92-96-104-112 lykkjur á hringprjón 5 með Sky. Prjónið sléttprjón í 3 cm (= rúllukantur). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur. Prjónið alls 3 umferðir með stroffi. Prjónið síðan áfram þannig (umferðin byrjar við miðju að aftan):
Prjónið 44-47-50-53-59-65 lykkjur slétt, A.1 (= 8 lykkjur) og endið með 32-33-34-35-37-39 lykkjur slétt.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 88-92-96-100-108-116 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 (= 12 lykkjur) yfir A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki fyrir laskalínu þannig:
Prjónið 15-16-17-18-20-22 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 12 lykkjur slétt (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 17-19-21-23-27-31 lykkjur slétt, A.2 eins og áður (= 12 lykkjur), 5 lykkjur slétt (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, 12 lykkjur slétt (= vinstri ermi), setjið 1 prjónamerki og endið með 15-16-17-18-20-22 lykkjur slétt (= hálft bakstykki).
Aukið nú út fyrir laskalínu og kaðall í A.2 færist til um 1 lykkju til vinstri í hvert skipti sem kaðallinn er prjónaður – sjá KAÐALL.
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-26-28-31-33-36 sinnum = 272-300-320-348-372-404 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur og A.2 eins og áður þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið til fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 38-42-44-49-54-60 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 58-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið sléttar lykkjur og A.2 yfir næstu 80-88-92-102-112-124 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og endið með 38-42-44-49-54-60 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 172-188-200-220-244-268 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir hvorri ermi.
Haldið áfram hringinn með sléttar lykkjur og A.2 (A.2 er nú prjónað yfir sömu lykkjur til loka, þ.e.a.s. tilfærslan á lykkjum er lokið). Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 4 cm millibili alls 7-7-8-8-7-7 sinnum = 200-216-232-252-272-296 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-64-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Prjónið slétt. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptis frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 6 -3½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 6-9-12-13-14-16 sinnum = 54-54-56-58-60-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-39-37-36-34 cm frá þar sem ermin skipti fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 64-65-65-65-66-67 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Malmö

Gessica, Italy

Malmö

Ildiko, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Sylvie ROBERT wrote:

Bonjour, la torsade se décale à gauche ... tout dépend de comment je regarde mon tricot. Je voudrais savoir si je dois la décaler vers le centre du tricot ou vers la manche gauche ? Merci de votre réponse

01.06.2023 - 09:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robert, vous la décalez à gauche, dans le sens du tricot: vous tricotez jusqu'aux mailles de A.2, tricotez 1 m endroit (= la 1ère m de A.2) et tricotez la torsade. Bon tricot!

01.06.2023 - 16:25

country flag Maizee wrote:

I made this jumper a year ago, and have worn it pretty nearly constantly in the colder weather. The yarn is so soft and warm. I adapted the sleeves to finish with a rib, as I like a cuff! It was quick to knit and looked great.

29.12.2021 - 20:52

country flag Nikolett Megyeri wrote:

When I increase to raglan I end up with 276 stitches rather than 272. Not sure what I he done wrong and how to go on from here

04.12.2021 - 15:18

DROPS Design answered:

Dear Nikolett, you need to check the increases for the raglan, maybe in some markers you have increased each round instead of every 2nd round. Happy knitting!

05.12.2021 - 17:02

country flag Silvia Alessi wrote:

Bellissimo modello, ma anche la small risulta poi enorme! Cambio misura dei ferri?

29.11.2021 - 11:30

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, ha lavorato il campione prima di iniziare a lavorare? Buon lavoro!

29.11.2021 - 23:43

country flag Carol wrote:

I love this website and how you can get a pattern to suit any gauge. This pattern is awesome and we'll explained directions. Thanks

08.07.2021 - 06:40

DROPS Design answered:

Dear Carol, tension is very important to check and keep when knitting a pattern, you will read more about tension here. Happy knitting!

08.07.2021 - 09:19

country flag Stine wrote:

Hei Jeg har lyst å stikke denne, men det ser ut som om den er så trang over skulderpartiet. Er det modellen som er ekstra bredskuldret, eller skal genseren være strukket over skulderpartiet?

26.09.2020 - 11:42

DROPS Design answered:

Hei Stine. Vil ikke si at modellen er bredskuldret, men sitter kanskje litt skrått på det ene bilde, slik at du syns den ser trang ut(?) Men se på målene på målskissen og se om målene vil passe deg. God Fornøyelse!

28.09.2020 - 11:52

country flag Mathilda K wrote:

Wat ik jammer vind is, dat ook deze trui weer rondgebreid wordt en met name de mouwen en raglan vind ik er niet mooi uitzien en sluiten ook niet erg fijn aan. Zoals ook op de foto, zie je dat het trekt en dat de okselpartij wat zakkerig eruit ziet. Dit heb ik met meerdere truien/vesten...........Zijn er geen patronen met twee pennen?

17.08.2019 - 10:11

DROPS Design answered:

Dag Mathilda,

De patronen worden in Noorwegen ontworpen en daar is het van oudsher gebruikelijk om met rondbreinaalden te breien. Op de site staan ook patronen die je met rechte naalden kan breien, maar we hebben ook een instructie gemaakt hoe je patronen aan kunt passen om met rechte naalden te breien. Deze vindt je hier

03.10.2019 - 18:01

country flag Ann Miller wrote:

Très beau pull ! J'ai juste commencé le col, je le fais en gris beige avec le col, l'empiècement et la torsade bleu roi, avec de la laine chinée. Par contre, les mesures de mon pull correspondent bien au modèle, mais j'ai l'impression que le col est quand même très large. Est-ce normal ?

27.04.2019 - 18:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Miller, avez-vous bien le bon échantillon de 19 m x 25 rangs en jersey = 10 x 10 cm? Il est indispensable d'avoir le bon échantillon pour obtenir les mêmes mesures que le modèle. Bon tricot!

29.04.2019 - 11:36

country flag Monique wrote:

Is er een video van het stukje; plaats 70 steken op een hulpdraad voor de mouw, zet 10 steken op onder de mouw....ik kom er niet uir hoe dit moet. Dank alvast.

18.02.2019 - 16:35

DROPS Design answered:

Dag Monique,

Deze video laat zien hoe je dat kunt doen. (Zelf vind ik het handig om een ongebruikte korte rondbreinaald, in plaats van een draad, te gebruiken om de steken op te parkeren.)

22.02.2019 - 14:36

country flag Juliette wrote:

Et quand il s'agit d'un fil Drops que l'on veut tricoter en double voire en triple ? Comment convertir ?

09.02.2019 - 15:42

DROPS Design answered:

Bonjour Juliette, vous trouverez ici les alternatives possibles entre les différentes groupes ainsi que le mode de calcul des nouvelles quantités. Bon tricot!

11.02.2019 - 12:24