DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Denim Crush

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-3
DROPS Design: Mynstur ai-162
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-200-250-250 g litur 10, þoka
150-200-200-200-250-250 g litur 17, gallabuxnablár
100-100-100-100-100-150 g litur 09, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 2,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um berustykki):
Aukið er út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki. Þ.e.a.s. í fyrstu umferð með útaukningu, aukið út um 1 lykkju á eftir hverju og einu af 8 prjónamerkjum, í annarri umferð með útaukningu, aukið út á undan hverju og einu af 8 prjónamerkjum o.s.frv.
Aukið út á eftir hverju prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út á undan hverju prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 52-56-56-60-60-64 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með 1 þræði í litnum þoka og 1 þræði í litnum gallabuxnablár (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Nú er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 9 og 2 þræði í litnum þoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-18-18-20-20-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 70-74-74-80-80-86 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Nú eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig:
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan), hoppið yfir 8-10-10-10-10-10 lykkjur, setjið næsta prjónamerki hér, setjið síðan næstu 6 prjónamerki með 9-9-9-10-10-11 lykkjur á milli merkja, nú eru 8-10-10-10-10-10 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið nú rendur eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8-9-11-13-16-17 sinnum og í 4. hverri umferð 2-2-2-1-0-0 sinnum (= alls 10-11-13-14-16-17 umferðir með útaukningum) = 150-162-178-192-208-222 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 2-6-6-2-2-4 lykkjur jafnt yfir = 152-168-184-194-210-226 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu er haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynsturteikning endurtekin á hæðina.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 22-24-26-28-31-34 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-36-40-42-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 44-48-52-55-61-67 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 32-36-40-42-44-46 lykkjur á þráð og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 22-24-26-27-30-33 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 100-108-116-126-138-150 lykkjur. Haldið áfram hringinn með rendur í A.1 þar til stykkið mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm (nú er eftir 1 umferð + 6 cm með stroffi), en stillið rendur af í mynstri A.1 þannig að endað sé á stað í mynstri þar sem næsta umferð er ekki með litnum sæblár eða natur.
Prjónið síðan stykkið til loka með 1 þræði í litnum þoka og 1 þræði í litnum gallabuxnablár (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-22-22-22 lykkjur jafnt yfir = 116-124-136-148-160-172 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 32-36-40-42-44-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 9 og takið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-50-52-54 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt á milli 6-6-6-8-8-8 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram með mynstur A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-4-2 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6 -5-4-3-3-3 cm millibili alls 6-7-8-10-10-11 sinnum = 26-28-30-30-32-32 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist ca 36-35-35-34-33-33 cm - (nú er eftir 1 umferð + 4 cm með stroffi), en stillið af rendur í mynstri A.1 þannig að endað sé á stað í mynsturteikningu þar sem næsta umferð er ekki með litnum sæblár eða natur. Prjónið síðan stykkið til loka með 1 þræði í litnum þoka og 1 þræði í litnum gallabuxnablár (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-32-32 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 8. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-40-40-39-38-38 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = 2 þræðir natur
symbols = 2 þræðir þoka
symbols = 2 þræðir gallabuxnablár
symbols = 2 þræðir sæblár
symbols = 1 þráður þoka og 1 þráður gallabuxnablár (= 2 þræðir)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Laila Isaksen Alexandersson wrote:

Hej Vill gärna sticka tröjan demin Crush, men skulle vilja byta ut drops air mot drops paris. Vilka färger ska jag då ha för att få till samma färgkombination som på bilden samt hur mycket garn behöver jag för storlek M/L? Stickar jag även med 2 trådar i garnet Paris ? Tack på förhand. Mvh Laila

19.08.2023 - 13:45

DROPS Design answered:

Hei Laila. Gå til fargekartet til DROPS Paris og se hvilken farger du syns vil passe best (f.eks farge light wash, jeansblå, marineblå og natur). Blander du DROPS Paris og DROPS Paris recycled, være obs på at Paris recycled denim fargene bør ikke vaskes på mer enn 40 grader, for å unngå at de krymper. Det skal brukes 2 tråder av Paris også, husk strikkefastheten. Siden DROPS Air er et meget lett garn og har en løpelengde pr nøste på 50 gram på 75 meter, vil en genser i Paris bli en del tyngre (garnmengden vil bli ca 1100 gram). Du trenger ca 2 nøster Paris for å erstatte 1 nøste Air. mvh DROPS Design

21.08.2023 - 11:39

country flag Anna wrote:

Buongiorno, vorrei fare la scollatura piu ampia per la taglia M. come posso fare? Grazie mille. Anna

09.01.2020 - 13:25

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

09.01.2020 - 17:20

country flag Elisa wrote:

Hallo Liebes Drops-Team, wäre es möglich diesen Pullover auch für Herren zu stricken? Wie ändern sich die Maschen/ Größenangaben? Hier gibt es immer sehr sehr tolle Damenpullover aber selten neue Herrenpullover. Hoffe auf baldige Antwort! Liebe Grüße!

15.07.2019 - 13:17

DROPS Design answered:

Liebe Elisa, dieser Pullover lässt sich recht leicht als Herrenmodell arbeiten, da er gerade geschnitten ist. Suchen Sie sich die Damengröße heraus, die beim Brustumfang zum Brustumfang des Herren passt, und arbeiten Sie die Anleitung gemäß dieser Größe. Für Herren sollten Sie das Rumpfteil länger arbeiten, auch die Ärmel werden bei Herren etwas länger gestrickt. Sie können die Länge in diesem Fall am besten am Ende des Rumpfteils vor dem Rippenmuster hinzufügen, da das Farbmuster dann nicht verändert wird. Gut wäre auch, den Pullover zwischendurch anzuprobieren. Viel Spaß beim Stricken!

20.07.2019 - 14:19

country flag Tina Gregersen wrote:

Er denne trøje strikket med dobbelt garn altså 2 tråde drops air

26.06.2019 - 11:05

DROPS Design answered:

Hei Tina. Ja den er strikket med 2 tråder Air. God fornøyelse

26.06.2019 - 14:56

country flag AnnaMaria wrote:

Il diagramma si legge in orizzontale o in verticale?

20.02.2019 - 18:10

DROPS Design answered:

Buonasera AnnaMaria. Il diagramma si legge dal basso verso l'alto e da destra verso sinistra. Buon lavoro!

20.02.2019 - 19:23

country flag Patricia Fuchs wrote:

Eine Frage, bitte. Meine Maschenprobe beträgt 10 Maschen x 16 Reihen, stricke ich dann genau so 25 cm (wie in in der Anleitung, das wären dann praktisch 35 Reihen) oder rechne ich die 25 cm auf meine eigene Maschenprobe um und stricke 40 Reihen? Ich bin mir auch nie sicher, ob Eure Schnitte sich auf den gewaschenen Pullover oder das Maß direkt nach dem Stricken beziehen. Denn ungewaschen hat man ja meistens andere Maße als gewaschen. Bitte erklärt mir das kurz :-), vielen vielen Dank.

29.11.2018 - 20:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fuchs, haben Sie Ihre Maschenprobe auch mal zuerst gewaschen? So haben Sie vielleicht die korrete Reiheanzahl. Wenn Sie mehr Reihen für 10 cm brauche, sollen Sie unter dem Raglan gleichmäßig verteilt extra Reihe stricken, damit die Passe nicht zu eng wird. Dann A.1 weiter stricken bis die Arbeit 25 cm (in die 1. Größe) mißt - Reihenanzahl einfach nach der Maße anpassen. Beachten Sie bitte auch, daß die Garnmenge über die Maschenprobe 10 M x 14 Reihen kalkuliert wird. Viel Spaß beim stricken!

30.11.2018 - 08:44

country flag Marion wrote:

Bonjour, pour l'empiècement il est indiqué "Quand A.1 a été tricoté 1 fois en hauteur, répéter le diagramme en hauteur." Ce qui fait donc 4 rayures blanches pour l'empiècement. Mais si je regarde la photo, je ne compte que 2 rayures blanches sur l'empiècement. Pouvez-vous m'aider s'il vous plait? Merci beaucoup!

15.11.2018 - 10:38

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, votre échantillon est-il juste en hauteur? Avec 14 rangs = 10 cm, les 36 rangs du diagramme + le 1er tour = 26 cm. Donc, en fonction de la taille, vous diviserez l'ouvrage soit avant la fin de A.1 (en S) soit juste après A.1 (M) ou après le 1er A.1 (dans les autres tailles). Bon tricot!

15.11.2018 - 13:42

country flag Maria wrote:

Posso usare Ferri diritti?

16.10.2018 - 13:48

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria. Il capo è lavorato in tondo a partire dal collo verso il basso. Per questo tipo di lavorazione, non è possibile sostituire i ferri circolari con quelli dritti. Buon lavoro!

16.10.2018 - 14:14

country flag Charlotte Bjerregaard wrote:

Hej igen, for info. så virker jeres webside ikke optimalt lige nu. Billeder bliver ikke åbnet, så det er umuligt at finde opskrifter og bestille i henhold til dem. Hilsen Charlotte

10.09.2018 - 11:26

DROPS Design answered:

Hei Charlotte. Vi har for øyeblikket tekniske problemer med siden vår, dette medfører at diagrammer og bilder dessverre ikke lastes ordentlig. Vi jobber med å løse problemet, og siden vil være tilbake som normalt så snart som mulig. Du kan følge med på vår twitter eller facebookside for oppdateringer. Beklager dette

10.09.2018 - 11:50

country flag Charlotte wrote:

Hej, Har lige et måske dumt spørgsmål. I jeres opskrifter skriver i f.eks Drops rundpind (60cm) nr. 4. Eller et andet nummer. Hvad referer dette nr til? Der står ikke noget nummer på den enkelte varer. Referere nummer til diameter, dvs. 4 = 4,0 mm?

07.09.2018 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Charlotte. Ja, pinnenummer er tykkelsen på pinnen. Så pinne nr 4 har en diameter på 4 mm. God fornøyelse.

10.09.2018 - 09:26