DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9636.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Willow

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með áferð. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-5
DROPS Design: Mynstur ai-136
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-150-150-175-175 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.
Ein mynstureining A.1 mælist 12 cm á breidd og síðustu 6 umferðir í A.1 mælast 4 cm á hæð.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9636.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 5,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 þannig: Prjónið þar til eftir eru 2 lykkjur á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.1, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjónar eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Endurtakið við hverja af mynsturteikningum sem eftir eru í A.1 (= 8 lykkjur færri í umferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjón eftir þörf.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-152-160-176-192-212 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 28-28-28-32-36-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 116-124-132-144-156-168 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm er sett eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið) og eitt prjónamerki eftir 58-62-66-72-78-84 lykkjur (= í hlið). Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 20 cm = 108-116-124-136-148-160 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 26-28-26-28-26-28 cm. Í næstu umferð eru felldar af 8 lykkjur í hvorri hlið (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið) = 46-50-54-60-66-72 lykkjur á fram- og bakstykki: Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 32-32-36-36-36-40 lykkjur á sokkaprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir í sokkaprjón 8 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-7-9-9-7-7 lykkjur jafnt yfir = 25-25-27-27-29-33 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 7-8-8-7-8-8 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2-2-2-1-2 cm millibili alls 8-10-10-11-12-10 sinnum = 41-45-47-49-53-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-30-26-27-23-24 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð 5 sinnum = 51-55-57-59-63-63 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 8 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 4 lykkju hvoru megin við prjónamerki = 43-47-49-51-55-55 lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið nú inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 178-194-206-222-242-254 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að aftan og byrjið umferð hér. Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið 18-20-22-24-27-29 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 10 lykkjur í fyrstu umferð) yfir síðustu 5-5-5-6-6-7 lykkjur á bakstykki/( = framstykki þar sem þessi setning er endurtekin) og fyrstu 5-5-5-4-4-3 lykkjur á ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 33-37-39-43-47-49 lykkjur, prjónið A.1 yfir síðustu 5-5-5-4-4-3 lykkjur á ermi og fyrstu 5-5-5-6-6-7 lykkjur á framstykki/(= bakstykki þar sem þessi setning er endurtekin), prjónið 18-20-22-24-27-29 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
Haldið svona áfram með mynstur hringinn. ATH: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf á hæðina er mikilvægt að uppslættirnir í mynsturteikningu A.1 séu ekki gerðir of stuttir – uppslættirnir verða að vera 4½ cm langir! Í 4. umferð í mynsturteikningu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 5-3-5-3-4-3 sinnum og í annarri hverri umferð 10-14-13-17-18-20 sinnum (= alls 15-17-18-20-22-23 umferðir með úrtöku) = 70-70-74-74-78-82 lykkjur (nú eru 13 lykkjur í hverju A.1). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 6 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu endurteknar á hæðina. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar og síðasta umferð í A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina er næsta umferð prjónuð þannig: * 1-1-2-2-3-4 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið A.2 (= 13 lykkjur auknar til 19 lykkjur) yfir A.1, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri), prjónið A.2 yfir A.1, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 1-1-2-2-3-4 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 86-86-90-90-94-98 lykkjur (nú eru 19 lykkjur í hverri mynstureiningu A.2). Næsta umferð er prjónuð í mismunandi stærðum þannig:

Stærð S, M, L og XL:
* 1-1-1-1 lykkja slétt, 1-1-2-2 lykkjur brugðið, A.2, prjónið næstu lykkju brugðið saman með fyrstu lykkju í A.2 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru í A.2, 1-1-2-2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hefur fækkað um 1 lykkju á hvorri öxl (= 2 lykkjur færri).

Stærð XXL og XXXL:
* 1-1 lykkja slétt, 1-2 lykkjur brugðið, 2-2 lykkjur slétt, A.2, prjónið næstu lykkju brugðið saman með fyrstu lykkju í A.2 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru í A.2, 2-2 lykkjur slétt, 1-2 lykkjur brugðið, 1-1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hefur fækkað um 1 lykkju á hvorri öxl (= 2 lykkjur færri).

Allar stærðir:
Prjónið 1 umferð til viðbótar með næstu umferð í A.2 og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið áfram hringinn afganginn af umferðum í A.2 og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 48-48-52-52-56-60 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2019
Leiðrétting: ERMI:..Skiptið yfir í sokkaprjón 8 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-7-9-9-7-7 lykkjur jafnt yfir = 25-25-27-27-29-33 lykkjur.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.03.2019
Leiðrétting BERUSTYKKI:..Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 5-3-5-3-4-3 sinnum og í annarri hverri umferð 10-14-13-17-18-20 sinnum (= alls 15-17-18-20-22-23 umferðir með úrtöku) = 70-70-74-74-78-82 lykkjur (nú eru 13 lykkjur í hverju A.1).

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = prjónið 2 lykkjur í eina lykkju, þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri).
symbols = setjið hægri prjón í gegnum miðju af 3 lykkjum slétt 4 umferð að neðan, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur (uppslátturinn má ekki verða of stífur – þá kemur prjónfestan til með að verða of stíf á hæðina), prjónið 3 lykkjur slétt, setjið hægri prjón í gegnum sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið bandið til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur.
symbols = lyftið 1. lykkju af prjóni (= uppsláttinn sem gerður var í fyrri umferð) eins og prjóna eigi slétt, 3 lykkjur slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni (= uppsláttinn sem var gerður í fyrri umferð) eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan var felld af áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Marit Holtborg wrote:

Som jeg leser oppskriften, så skal A1 strikkes 1x i høyden + 6 omganger. Det gir 3 repitisjoner i høyden av "struktur"/ fletter- mønster. Med A2 blir det totalt 4 strukturer oppover. På bildet av genseren ser det ut som strukturene gjentas ca 9 ganger i høyden. Er det noe jeg har misforstått?

27.12.2022 - 18:59

DROPS Design answered:

Hei Marit. Du strikker A.1 1 gang i høyden (= 2 repitisjoner i høyden av "struktur"/ fletter- mønster), så repeteres de siste 6 omgangene i diagrammet i høyden, samtidig som det felles til raglan. Det skal strikkes totalt 15-17-18-20-22-23 omganger med felling og da strikkes det også de siste 6 omgangene i diagrammet, slik at du får flere "struktur"/ fletter- mønster enn de 4 du mener. Fremdeles problemer? Send et nytt spørsmål og da med hvilken str. du strikker så kan vi si hvor mange "struktur"/ fletter- mønster du vil få. mvh DROPS Design

02.01.2023 - 14:15

country flag Siv Selbæk wrote:

Får ikke oppskriften til å stemme på bærestykket, der det står "Når A.1 er strikket ferdig i høyden repeteres de siste 6 omgangene i diagrammet i høyden. Når alle fellingene er ferdige og siste omgang i A.1 er strikket ferdig i høyden" Når jeg kommer hit har jeg ikke fått gjort alle fellingene, så: skal jeg da forsette felling over i A2, eller skal de siste 6 omgangene i A1 repeteres flere ganger (helt til alle fellingene er gjort)?

25.10.2022 - 18:42

DROPS Design answered:

Hei Siv. Om du opplyser om hvilken str. du strikker, så vi får dobbeltsjekket maskeantallet på fellingene og vi kan da hjelpe deg så godt vi kan. mvh DROPS Design

31.10.2022 - 08:40

country flag Caroline wrote:

Op de foto zie ik dat het patroon 9 keer herhaald wordt, maar als ik de tekst juist lees, kom ik maar aan 6 keer herhaling. Dank voor uw antwoord

28.12.2020 - 15:33

DROPS Design answered:

Dag Caroline,

A.1 wordt in totaal 4 keer gebreid op een toer; in de raglanlijnen. In de tekst staat 2 keer A.1 aangegeven, maar de zin waarin staat beschreven hoe je in patroon breit staat tussen twee sterretjes en daarna staat aangegeven dat je dit gedeelte 2 keer moet breien.

02.01.2021 - 18:58

country flag Kimberly McGhee wrote:

I am confused about the last few sentences of the YOKE instructions. It says that the pattern A.2 is increased from 13 stitches to 19, but at the end of the A.2 pattern, I have decreased back to 10 stitches. Also, what does it mean to work A.2 "over" A.1? Do I repeat all of A.1 again?

01.05.2020 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs McGhee, when you work 1st row in A.2 you will increase stitches in A.2 so that over the 13 sts previously worked in A.1 there is now 19 sts from the first row in A.2. (A.2 is lined up over A.1). Happy knitting!

04.05.2020 - 10:49

country flag Kirsten Humble wrote:

Jeg strikker Small. Jeg har nu indtaget på hver 4. Omg 5 gange og er i gang med indtagning på hver 2. Omg. A1 er nu også strikket færdig. Der er nu 148 masker tilbage. Skal jeg strikke A1 igen med indtagning på hver2. Omg?

27.02.2020 - 13:29

DROPS Design answered:

Hei Kristen. Når A.1 er strikket ferdig i høyden repeteres de siste 6 omgangene i diagrammet (A.1) i høyden og du fortsetter med fellingen på hver 2. omgang (10 ganger). Når alle fellingene er ferdige og siste omgang i A.1 er strikket ferdig i høyden, strikkes A.2, les i oppskriften. God Fornøyelse!

02.03.2020 - 08:56

country flag Kirsten Humble wrote:

Jeg strikker str. S. Skal jeg tage ind på hver 4. Omg 5 gange samtidig med hver 2. Omg 10 gange? Eller skal jeg først tage ind på hver 4. Omg og dernæst hver 2. 10 gange?

25.02.2020 - 20:04

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, du tager først ind på hver 4. omgang og bagefter på hver 2.omgang. God fornøjelse!

26.02.2020 - 11:40

country flag Vilde wrote:

Heii! Det står i et avsnitt: " *1 maske rett, 1 maske vrang, A.", strikk neste maske vrang sammen med første maske i A.2(som også er vrang?) og strikk de resterende maskene i A.2, 1 maske vrang, 1 maske rett* Jeg får ikke det til å stemme med mønsteret. Da blir hele mønsteret forskjøvet. Mvh Vilde :)

03.01.2020 - 23:34

DROPS Design answered:

Hei Vilde. Hvilket avsnitt har du problemer med og hvilken strørrelse strikker du? Har du sett på hjelpevideoene til denne genseren? mvh DROPS design

10.02.2020 - 08:53

country flag Alibert wrote:

Merci de votre réponse à mon commentaire Cordialement

14.08.2019 - 15:42

country flag Alibert wrote:

Empiècement :\\r\\nJe ne comprend pas combien de fois faut il faire A1 ? On diminue 5 fois tous les 4 rangs puis 15fois tous les 2 rangs mais toujours sur A1? Ce qui fait 120 diminutions il ne resterait une 58 m ! Je fais une taille S merci de votre retour

14.08.2019 - 15:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Alibert, on va tricoter 4 fois A.1 au total en largeur, A.1 correspond à chaque raglan et se tricote entre le dos et la manche, entre la manche et le devant, entre le devant et la 2ème manche et entre la 2ème manche et le dos. On augmente 3 m au 1er rang de chaque A.1 et on diminue 1 m de chaque côté de chaque A.1 = 8 m au total x 15 = il reste 70 m. Ensuite, on tricote A.2 en diminuant entre les diagrammes et on augmente au 1er rang de A.2 = on a 86 m. Bon tricot!

15.08.2019 - 10:46

country flag Kirsten Mortensen wrote:

Hvordan sammensætter jeg farver når jeg vil ikke vil laver en hvid "white willow" trøje men en grå og jeg skal bruge såvel drops air som drops alpaca silk mvh Kirsten Mortensen

20.06.2019 - 20:15

DROPS Design answered:

Hei Kirsten. Her er det ikke noe fasitsvar. Om du vil strikke i grå kan du velge 1 gråfarge i hver kvalitet, avhengig av hvor mørk du vil ha genseren. Om du feks velger Air 04, mellomgrå og Brushed Alpaca Silk 03, grå, vil du få et mørkere resultat enn om du hadde brukt Brushed Alpaca Silk 02, lys grå. Om du vil ha Air 03, perlegrå kan du justere hvor mørk den skal være med å velge enten 02 eller 03 Brushed Alpaca Silk. Siden begge trådene er i mer eller mindre samme farge vil du ikke kunne se at det er 2 tråder når arbeidet er ferdig. God fornøyelse

21.06.2019 - 13:43