Torill skrifaði:
Er det riktig at str M avsluttes før str S i A3 i Valdres oppskriften? Trodde det skulle være omvendt. Mvh Torill Røyseth
11.10.2026 - 20:24DROPS Design svaraði:
Hei Torill, Ja, ermene er kortere i større størrelser pga bredere skuldervidde og lengre bærestykke. Du kan selvfølgelig strikke lengre ermer hvis du vil. Hilsen Drops Team.
12.10.2026 - 05:11
Boule skrifaði:
Modele VALDRES TAILLE M MANCHES GRILLE A1 sur 12 mailles D’après modele manche M après diminution 42 mailles! 12 x 4 =48 ????
30.09.2026 - 13:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Boule, au début des manches, on tricote le diagramme A.4 ainsi en taille M: commencez par les 3 mailles de A.4a, puis tricotez 3 fois les 12 mailles de A.4b et terminez par les 3 mailles de A.4c soit: 3+(3x12)+3=42 mailles. Bon tricot!
01.10.2026 - 08:29
Sarah Russell skrifaði:
I am struggling with how to keep the pattern on the sleeves when increasing stitches. do you have any suggestions? Thank you
29.09.2026 - 22:59DROPS Design svaraði:
Hi Sarah, The pattern will not fit mid-under the sleeves while you are increasing. Work the pattern as far as it will go to the marker-thread, then begin again on the other side of the marker-thread (with the added stitches knitted twisted into the pattern) and making sure the pattern continues neatly across the sleeve. Regards, Drops Team.
30.09.2026 - 06:33
Anita skrifaði:
Can I use Sky without problems? Its the some group, but is lighter.
09.09.2026 - 06:39DROPS Design svaraði:
Hi Anita, of course you can but make a swatch first, as usual :) Happy knitting!
09.09.2026 - 11:12
Elke skrifaði:
Hallo nochmal, ich habe jetzt alle Maschen auf der Nadel, um die Passe zu stricken. Ich soll am Übergang zwischen rechtem Arm und Rückenteil mit den beiden Raglanmaschen (A5) die Runde beginnen. Wo liegen diese beiden Maschen genau: 1 Masche am rechten Ärmel und eine Masche am Rücken oder liegen beide Maschen am Rückenteil? Was heißt also „Rundenbeginn am Übergang“? Danke für eine Antwort. Gruß Elke
20.08.2026 - 01:15DROPS Design svaraði:
Liebe Elke, die Runden beginnen jetzt mit Rückenteil, und Sie stricken jetzt die 101-161 M vom Rückenteil so: A.5 (2 M), A.3 (97-157 M) wie zuvor, A.5 (2 M) = 2+97-157+2=101+161; dann stricken Sie A.3 über die nächsten 65-89 M (Ärmel) und noch einmal so stricken für Vorderteil und 2. Ärmel. Viel Spaß beim Stricken!
20.08.2026 - 09:40
Bartolo skrifaði:
Bonjour. Concernant le modèle valdres et plus précisément des augmentations de manches, je ne comprends pas comment faire des augmentations tous les 1 rang 1/2. Puis je faire une augmentation sur un rang envers où uniquement sur l'endroit ? Merci de votre réponse Maryline
10.08.2026 - 15:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Maryline, les augmentations des manches sont indiquées en cm, ainsi en taille M, L et XL, on va augmenter tous les 1,5 cm (pas tous les 1,5 rangs), et comme on les tricote en rond, on sera toujours sur l'endroit; si vous avez choisi de les tricoter en allers et retours, ajuster pour toujours augmenter sur l'endroit. en Bon tricot!
10.08.2026 - 16:33
Elke skrifaði:
Hallo, es wäre toll, wenn ich auf meine Frage vom 13.07.26 eine Antwort bekommen könnte. Ich würde gerne den Pullover weiterstricken. Vielen Dank dafür. Viele Grüße Elke
21.07.2026 - 17:42DROPS Design svaraði:
Siehe unten, danke im voraus für Ihr Geduld. Viel Spaß beim Stricken!
07.08.2026 - 07:44
Elke skrifaði:
Hallo, meine Fingerfertigkeit reicht nicht dafür aus, dass ich die Ärmel mit dem Nadelspiel und dem Muster stricken kann. Wäre es möglich, die Ärmel Hin- und Her zu stricken, also rechts hin und zurück links und dann die Ärmel am Schluss zusammenzunähen? Und kann ich, wenn ich die Ärmel so stricke, die Maschen der Ärmel nachher zusammen mit den Rumpfmaschen auf die Rundnadel nehmen, um die Passe zu stricken? Vielen Dank für eine Antwort. Viele Grüße Elke
13.07.2026 - 00:14DROPS Design svaraði:
Liebe Elke, ja, das können Sie machen, wenn Ihnen das leichter fällt. Schlagen Sie rechts und links jeweils eine zusätzliche Masche (Randmasche) an, in der Sie den Ärmel dann später zusammennähen können. Die Zunahmen an der unteren Ärmelmitte erfolgen nach den ersten 3 Maschen (= Rand-Masche + 2 Maschen) und vor den letzten 3 Maschen (2 Maschen + Rand-Masche). Achten Sie darauf, dass Sie die zugenommenen Maschen korrekt ins Muster einarbeiten. Beim Abketten der Maschen an der unteren Ärmelmitte ketten Sie bei der gekennzeichneten Reihe die Randmasche + 4 Maschen ab, dann am Ende der Reihe 3 Maschen + die Randmasche. Dann stricken Sie wie in der Anleitung beschrieben weiter. Gutes Gelingen!
04.08.2026 - 23:44
Giusy skrifaði:
Sto lavorando a maglia il modelloDROPS 197-1 #valdressweater e devo fare lo sprone. Nell'istruzione leggo: Riportare le maglie delle maniche sugli stessi ferri circolari del davanti e dietro, nel punto in cui sono state intrecciate le maglie per gli scalfi. Iniziare il giro nel passaggio tra la manica destra e il dietro. Lavorare come segue: * diagramma A.5 (= 2 maglie.....mi chiedo: mentre passo le maglie le lavoro oppure le passo solamente e le lavoro al giro successivo?
02.05.2026 - 16:07DROPS Design svaraði:
Buonasera Giusy, può riportare tutte le maglie sui ferri e poi iniziare a lavorare. Buon lavoro!
11.05.2026 - 22:01
Giusy skrifaði:
Buonasera un altro dubbio . Dopo aver fatto gli aumenti sotto la manica ed essere raggiunta alla freccia corrispondente alla mia taglia e avendo raggiunto la lunghezza di 46 cm si deve sempre lavorare il diagramma A3 x 6 volte in larghezza ed eventualmente tutto il giro a diritto?
25.04.2026 - 20:22DROPS Design svaraði:
Buonasera Giusy, alla fine delle maniche, dopo aver intrecciato le maglie si uniscono tutte le parti sullo stesso ferro circolare. Buon lavoro!
26.04.2026 - 13:16
Valdres#valdressweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með norrænu mynstri og áferðamynstri í röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-1 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 260 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44 = 5,9. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja saman. LEIÐBEININGAR PRJÓN-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LEIÐBEININGAR PRJÓN-2 (á við um berustykki): Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina á 10 cm en sem gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að laga með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili á berustykki. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.5 þannig: Fækkið um 1 lykkju á eftir A.5 þannig: Lyftið síðustu lykkju í A.5 af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan A.5 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.5, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur við hvert A.5 og alls 8 sinnum í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Stykkin eru sett saman og berustykki er prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 260-288-316-344-376-400 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós eik DROPS Karisma. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 44-48-52-56-64-64 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 216-240-264-288-312-336 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þannig: Setjið 1 merki í fyrstu lykkju, prjónið 107-119-131-143-155-167 lykkjur slétt, setjið 1 merki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Merkin merkja hliðar í stykki. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 12 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, setjið 1 merki mitt í umferð (það á að mæla frá þessu merki síðar). Prjónið síðan A.2 yfir A.1 – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-1. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3 yfir A.2. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 (sjá ör fyrir þína stærð) prjónið næstu umferð í A.3 þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 101-113-125-137-149-161 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 7 lykkjur, prjónið næstu 101-113-125-137-149-161 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Stykkið mælist ca 32-29-32-32-31-30 cm frá merki (ca 43-40-45-45-46-45 cm öll lengdin). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað i hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru á prjóni. Fitjið upp 48-52-52-56-56-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum ljós eik. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-10-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið nú mynstur ca 8-8-5-5-4-4 cm, ef óskað er eftir að stilla lengdina á ermi er það gert núna – sjá útskýringu að neðan. Prjónið nú sömu mynstureiningu eins og á fram- og bakstykki (frá merki og upp að handveg = ca 32-29-32-32-31-30 cm), þ.e.a.s. öll ermin á að mælast ca 45-42-42-42-40-39 cm. Gerið þannig: Setjið 1 merki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð sléttprjón, prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið A.4a (= 2-3-4-5-0-1 lykkjur), A.4b (= 12 lykkjur) alls 3-3-3-3-4-4 sinnum á breidd, A.4c (= 2-3-4-5-0-1 lykkjur). Haldið áfram þar til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina – ATH: Ef óskað er eftir því að hafa ermina lengri eru endurteknar 2 umferðir merktar með stjörnu að óskaðri lengd, áður en prjónað er áfram í næstu umferð í A.4. Ef óskað er eftir að hafa ermarnar styttri er einungis prjónaður óskaður fjöldi umferða af A.4, en prjónið minnst 1 af umferðum brugðið. – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-9-9-10-12-12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 16-21-20-19-24-23 sinnum = 72-84-84-84-96-96 lykkjur. Lykkjur í A.4a og A.4c og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inni í mynstur A.4b. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur – A.2 er prjónað yfir A.4b og er stillt út í hvorri hlið, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3 (= 12 lykkjur) yfir A.2. Þegar allar lykkjur undir ermi hafa verið auknar út, prjónið A.3 alls 6-7-7-7-8-8 sinnum á breidd. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 65-77-77-77-89-89 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Ermin mælist ca 45-42-42-42-40-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handvegi = 332-380-404-428-476-500 lykkjur. Byrjið umferð í skiptingunni á milli hægri ermi og bakstykkis. Prjónið þannig: * A.5 (= 2 lykkjur, laskalína), haldið áfram með mynstur A.3 eins og áður yfir næstu 97-109-121-133-145-157 lykkjurnar (= framstykki/bakstykki), A.5 (= 2 lykkjur, laskalína), prjónið mynstur A.3 eins og áður yfir næstu 65-77-77-77-89-89 (= ermi) *,prjónið *-* alls 2 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-2. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 27-31-32-33-37-39 sinnum. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað A.6 (= 12 lykkjur) yfir A.3. Á eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru 116-132-148-164-180-188 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Stykkið mælist ca 20-23-24-25-27-28 cm. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og að berustykkið verði aðeins hærra aftan í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan. Prjónið upphækkun aftan í hnakka eða farið beint áfram og prjónið kant í hálsmáli ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (þetta merkir byrjun á umferð eftir að upphækkun hefur verið prjónuð). Haldið áfram með litnum ljós eik og prjónið að miðju að aftan, setjið 1 merkiþráð. Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 30-30-34-34-40-40 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-68-68-80-80 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 54-54-61-61-72-72 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-64-64 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-56-56 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan. Klippið frá. Umferðin byrjar nú við merki, þ.e.a.s. í skiptingu á milli hægri ermi og bakstykkis. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Haldið áfram með litnum ljós eik og prjónið næstu umferð með úrtöku þannig: Prjónið * 40-46-54-58-66-70 lykkjur slétt og fækkið um 0-6-12-13-19-22 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, prjónið næstu 18-20-20-24-24-24 lykkjur 2 og 2 slétt saman (= 9-10-10-12-12-12 lykkjur færri) *, prjónið *-* alls 2 sinnum = 98-100-104-114-118-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 8-0-4-4-8-0 lykkjur, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær lykkjur sem eftir eru = 116-120-124-136-140-144 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffi (þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir hvorri ermi í ystu lykkjubogana. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #valdressweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.