DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cinnamon Flower Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-5
DROPS Design: Mynstur ai-153
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 05, brúnn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka):
Upphækkunin er prjónuð í garðaprjóni.
Setjið 1 merkiþráð eftir 41-45-45-49-49-53 lykkjur (= ca miðja að aftan). Byrjið frá röngu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 sléttar lykkjur til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur slétt til baka. Snúið og prjónið sléttar lykkjur út umferðina.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. A.2 á einungis við stærð XL-XXL-XXXL.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (10 lykkjur = 74 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12,3.
Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 12. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um laskalínu):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar stroffið á kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 6-6-7-7-8-8 næstu með ca 8-8-7½-7½-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður.
Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón niður þar til stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar sem prjónað er til loka hvert fyrir sig. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 80-84-86-92-94-100 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, í 1½ cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út 2-6-4-7-5-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 82-90-90-99-99-107 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að aftan og að framan – sjá UPPHÆKKUN.
Prjónið síðan frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 8 lykkjur) alls 9-10-10-11-11-12 sinnum á breidd, A.2 yfir 0-0-0-1-1-1 lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 199-220-220-264-264-287 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 16-16-16-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er styst.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 29-31-31-39-40-45 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= vinstra framstykki), 38-43-43-50-48-50 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= vinstri ermi), 56-62-62-76-78-87 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), 38-43-43-50-48-50 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hægri ermi), 28-31-31-39-40-45 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan með garðaprjóni (= hægra framstykki). Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Aukið nú út fyrir laskalínu þannig: Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið ÚTAUKNING -2 (= alls 8 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-4-6-4-5-6 sinnum = 223-252-268-296-304-335 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er styst. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki í næstu umferð.
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 32-35-37-43-45-51 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-51-55-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 62-70-74-84-88-99 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setið næstu 44-51-55-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 31-35-37-43-45-51 lykkjur í sléttprjóni og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki) = 151-166-178-200-212-235 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir hvorri ermi (= 2 prjónamerki = 70-78-84-94-100-111 lykkjur á bakstykki).
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar fram- og bakstykki mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-3 (= alls 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4- 4½-4-4-3½-4½ cm millibili alls 7-6-7-7-8-6 sinnum = 179-190-206-228-244-259 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 35-35-36-36-36-36 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum.

ERMI:
Setjið 44-51-55-58-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi = 52-59-65-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki - sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 10-3-3-3-5-5 cm millibili alls 2-4-4-4-3-3 sinnum = 48-51-57-60-64-68 lykkjur.
Þegar ermin mælist 22-21-20-19-17-16 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, aukið út um 8 lykkjur þannig: Prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 6-6-7-7-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 0-3-1-4-0-4 lykkjur slétt = 56-59-65-68-72-76 lykkjur.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt!
Þegar ermin mælist 24-23-22-21-19-18 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, aukið út þannig:
Prjónið 7-7-8-8-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 7-7-8-8-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 0-3-1-4-0-4 lykkjur slétt = 64-67-73-76-80-84 lykkjur.
Þegar ermin mælist 38-37-36-34-32-31 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 26-29-33-34-36-40 lykkjur jafnt yfir = 38-38-40-42-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan, í 5 cm. Ermin mælist 43-42-41-39-37-36 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.06.2021
ÚTAUKNING-3 (á við um hlið á fram- og bakstykki): ... Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn...

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = kúla: Prjónið í sömu lykkju þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 3 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir þessar 3 lykkjur (= fyrsta umferð er frá röngu). Prjónið síðan allar 3 lykkjurnar slétt saman frá réttu = 1 lykkja eftir
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður SNÚINN í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Lina wrote:

Lavorare finché non rimangono 4 maglie prima del segno, 1 maglia gettata, 4 maglie diritto (il segno si trova al centro di queste maglie), 1 maglia gettata. Grazie, ma non riesco a capire Se il segno si deve trovare al centro delle maglie dovrei fare la seconda gettata dopo 8 maglie dalla prima, credo

13.12.2019 - 13:30

DROPS Design answered:

Buongiorno Lina. Chiediamo scusa, devono rimanere 2 m prima del segno. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

13.12.2019 - 21:55

country flag Lina wrote:

Buonasera, non capisco le istruzioni riguardo il suggerimento_3 per gli aumenti ai lati. La gettata forse va fatta due maglie prima del segno e non 4, altrimenti il segno come fa a trovarsi nel mezzo? Grazie

12.12.2019 - 17:49

DROPS Design answered:

Buongiorno Lina. Abbiamo corretto il testo del suggerimento 3. Buon lavoro!

13.12.2019 - 12:57

country flag Angela wrote:

Hallo liebes Drops Team, Die Jacke ist soweit fertig, aber der Bund vom Rumpfteil rollt sich bei mir hoch und ich muss ihn nochmal auftrennen. Gibt es einen Trick das er sich nicht rollt? Ich habe in der Hinreihe auf Nadel 4,5 und Kraus gewechselt und das hat irgendwie nicht so geklappt. Habt ihr da noch eine Idee? Ansonsten super Anleitung und sehr schöne Jacke.

23.02.2019 - 09:56

DROPS Design answered:

Liebe Angela, Sie können die Jacke mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!

25.02.2019 - 08:24

country flag Silvana wrote:

Sito fantastico grazie Si potrebbero inserire i cm anche per i polsini delle maniche sarebbero utili per poter applicare una tecnica diversa di confezione. Grazie ciao

24.01.2019 - 07:11

country flag Inger Lene Christensen wrote:

Hvis jeg vil strikke en trøje istedet for cardigan, kan jeg så bare strikke rundt og i stedet for de 5 retmasker i hver side, strikke en ekstra mønsterbort? Bliver det for stort, da der jo så kommer en del flere masker efterhånden? Eller skal jeg strikke en mindre størrels, men med mere længde?...

15.01.2019 - 18:51

DROPS Design answered:

Hei Inger Lene. Det finnes en oppskrift til denne som genser, og den finner du her. God fornøyelse

23.01.2019 - 14:13

country flag Dem wrote:

Très beau modèle....je vais m entraîner pour l encolure....après c est que du plaisir!😜

07.09.2018 - 17:20

Зинаида wrote:

It`s beautiful

06.09.2018 - 07:40

country flag Antonella Rizzo wrote:

Good

09.07.2018 - 16:46