Cinnamon Flower |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal eða Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-6 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Upphækkunin er prjónuð í garðaprjóni. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (= ca miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttprjón þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur slétt til baka. Snúið og prjónið sléttar lykkjur að prjónamerki. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12,33. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 12. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um laskalínu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykki er prjónað í hring niður þar til stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar sem prjónað er til loka hvert fyrir sig. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 70-74-76-82-84-90 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal eða Air. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 1½ cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 2-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 72-80-80-88-88-96 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN. Umferðin byrjar við miðju að aftan. Prjónið A.1 (= 8 lykkjur) alls 9-10-10-11-11-12 sinnum á breidd. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 189-210-210-253-253-276 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 16-16-16-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er styst. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 29-31-31-38-39-44 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki (= hálft bakstykki), 38-43-43-50-48-50 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki (= ermi), 56-62-62-76-78-87 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), 38-43-43-50-48-50 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki (= ermi) og endið með 28-31-31-39-40-45 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Prjónið 2 umferðir slétt. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-4-6-4-5-6 sinnum = 213-242-258-285-293-324 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykki mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er styst. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 32-35-37-42-44-50 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-51-55-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 62-70-74-84-88-99 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-51-55-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og endið með 31-35-37-43-45-51 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 141-156-168-189-201-224 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir hvorri ermi.. Prjónið sléttprjón. Þegar fram- og bakstykki mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-3 (= alls 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4½-4-4-3½-4½ cm millibili alls 7-6-7-7-8-6 sinnum = 169-180-196-217-233-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 35-35-36-36-36-36 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. ERMI: Setjið 44-51-55-58-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi = 52-59-65-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki - sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 10-3-3-3-5-5 cm millibili alls 2-4-4-4-3-3 sinnum = 48-51-57-60-64-68 lykkjur. Þegar ermin mælist 22-21-20-19-17-16 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, aukið út um 8 lykkjur þannig: Prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 6-6-7-7-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 0-3-1-4-0-4 lykkjur slétt = 56-59-65-68-72-76 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! Þegar ermin mælist 24-23-22-21-19-18 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, aukið út þannig: Prjónið 7-7-8-8-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 7-7-8-8-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 0-3-1-4-0-4 lykkjur slétt = 64-67-73-76-80-84 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-37-36-34-32-31 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 26-29-33-34-36-40 lykkjur jafnt yfir = 38-38-40-42-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan, í 5 cm. Ermin mælist 43-42-41-39-37-36 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Judy wrote:
On my screen above the diagrams the symbol for the instruction =between 2 stitches make 1 yarn over....that makes the hole there is a blue question mark not a symbol I am fairly certain that the question mark should be '0' in a rectangle is this correct?. Sorry it is difficult to explain it is the 3rd = sign above the diagrams
07.06.2019 - 14:32DROPS Design answered:
Dear Judy, try to refresh you screen, there shouldn't any blue question mark anywhere (we are not using blue in our patterns). The 6th and 7th symbols (from the top) are both yarn overs, but the 6th one will be worked as usual so that it makes a hole, and the 7th symbol will be worked twisted on next row (it shouldn't make a hole) - see both ways to work a yarn over here. Hope it helps! Happy knitting!
07.06.2019 - 14:51Judy wrote:
In the diagram key there is a blue question mark, however it isn't used in the diagram. Should it be the uncoloured oval shape?
07.06.2019 - 10:46DROPS Design answered:
Dear Judy, not sure what you mean exactly, last symbol = arrow for knitting direction shows in the measurement chart that jumper will be worked top down. Did you mean something else?
07.06.2019 - 12:54Anne wrote:
Hej. Jeg er nybegynder. Er den svær at strikke? Anne
20.04.2019 - 09:42DROPS Design answered:
Hei Anne. Det kommer an på hva du legger i "nybegynner", og din erfaring med strikkeoppskrifter. Dette er ikke av de vanskeligere oppskriftene, men det strikkes etter diagram som inneholder hullmønster og bobler (som kan være utfordrende). Du kan alltids stille spørsmål her i kommentarfeltet, så vil vi hjelpe deg så godt vi kan. I tillegg har vi et stort videoarkiv med instruksjonsvideoer (de mest relevante for denne oppskriften ligger her). Vi har også leksjoner tilgjengelig, feks kan du lære å lese et strikkediagram her. God fornøyelse
25.04.2019 - 14:17Crocus wrote:
Bonjour,Modèle en air. Malheureusement, j\'ai du certainement trop serrer le rang de montage d\'encolure (j\'ai aussi fait la réhausse) et du coup, le tricot frise en peu au niveau du motif (trop d\'ampleur). Je pense que si le rang de montage était moins serré, cela donnerait de la souplesse au reste. Puis-je et comment défaire ce fameux rang et le retricoter?Merci pour votre réponse.
25.11.2018 - 14:30DROPS Design answered:
Bonjour Crocus, vous pouvez défaire l'ouvrage dès le début en utilisant cette technique pour reprendre les mailles de l'encolure et ajustez l'encolure comme vous le souhaitez. Bon tricot!
26.11.2018 - 09:37Sandy Slichter wrote:
How much yarn do I need for this pattern in size large? I have chosen the Nepal yarn and the color, the pattern doesn't tell me how much I need to order.
18.10.2018 - 23:51DROPS Design answered:
Dear Mrs Schlichter, you will find amount of yarn under the header, ie 750 g in size L / 50 g a ball Nepal = 15 balls are required in size L. Happy knitting!
19.10.2018 - 08:40Irena wrote:
Piękny! Przytulność i elegancja w jednym! Koniecznie do zrobienia :)
21.07.2018 - 08:27Aurore wrote:
Ce modèle est tout à fait ravissant, tant en gilet qu'en tunique, j'aime beaucoup. D'autres modèles me plaisent énormément dans votre collection d'hiver, j'ai hâte de pouvoir en réaliser pour moi ou mes filles. Merci d'avance à vous et aux créatrices.
03.07.2018 - 13:02Uschi wrote:
Sehr schön; Rundpassen sitzen immer so gut
13.06.2018 - 17:14Uschi wrote:
Der ist besonders apart
07.06.2018 - 16:51