DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fading Sunset

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca eða 1 þræði DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa og hálsklútur úr 2 þráðum DROPS Alpaca.

DROPS 197-7
DROPS Design: Mynstur z-830
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

GARN Í PEYSU:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 9020, ljós perlugrár
150-150-150-150-200-200 g litur 100, natur
50-50-50-50-100-100 g litur 2020, ljós camel
50-50-50-50-50-50 g litur 607, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 2925, appelsínugulur
50-50-50-50-50-50 g litur 5565, vínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 8120, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 7323, vatnagrár

Eða notið:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 0500, ljós grár
100-100-100-100-100-100 g litur 300, beige
100-100-100-100-100-100 g litur 612, millibrúnn
100-100-100-100-100-100 g litur 2920, appelsínugulur
100-100-100-100-100-100 g litur 3608, djúprauður
100-100-100-100-100-100 g litur 7139, grágrænn
100-100-100-100-100-100 g litur 8038, ljós ólífa
100-100-100-100-100-100 g litur 7120, ljós grágrænn

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 9020, ljós perlugrár
50-50 g litur 100, natur
50-50 g litur 2020, ljós camel
50-50 g litur 607, ljós brúnn
50-50 g litur 2925, appelsínugulur
50-50 g litur 5565, vínrauður
50-50 g litur 8120, gallabuxnablár
50-50 g litur 7233, gulgrænn
50-50 g litur 7323, vatnagrár

HÁLSKLÚTUR:
Mál: ca 30 x 160 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 9020, ljós perlugrár
100 g litur 100, natur
100 g litur 8120, gallabuxnablár
50 g litur 2020, ljós camel
50 g litur 607, ljós brúnn
50 g litur 2925, appelsínugulur
50 g litur 5565, vínrauður
50 g litur 8120, gallabuxnablár
50 g litur 7233, gulgrænn
50 g litur 7323, vatnagrár

PEYSA:

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið með sléttprjóni.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÚFA:
PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm fyrir stykkið með sléttprjóni.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÁLSKLÚTUR:

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með garðaprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 3 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um efst á húfu):
Byrjið á eftir prjónamerki og prjónið þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

RENDUR Í BERUSTYKKI:
Rendurnar eru gefnar upp í cm, en ef prjónfestan þín er rétt á hæðina þá getur þú prjónað tvisvar sinnum þær umferðir sem gefnar eru í cm (2 cm = 4 umferðir, 3 cm = 6 umferðir o.s.frv.).
Allar rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig:
2-3-3-3-4-4 cm með natur og ljós camel
2-2-2-2-2-3 cm með natur og gulgrænn
1-1-2-2-2-2 cm með natur og gallabuxnablár
5-5-6-6-6-7 cm með gallabuxnablár og ljós camel
2-2-2-3-3-3 cm með natur og appelsínugulur
3-4-4-4-5-5 cm með natur og ljós perlugrár
1-1-1-1-1-1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn
2-2-2-3-3-3 cm með ljós perlugrár og ljós camel

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Sentimetra mál sem er uppgefið á við um allar stærðir og rendur halda áfram í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig:
4 cm með ljós perlugrár og vínrauður
2 cm með ljós perlugrár og natur
3 cm með ljós perlugrár og gulgrænn
6 cm með ljós perlugrár og vatnagrár
2 cm með ljós perlugrár og natur
1 cm með ljós perlugrár og vínrauður
5 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur
2 cm með ljós perlugrár og ljós camel
1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn

RENDUR Á ERMI
Rendur halda áfram í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig:
7-7-7-6-6-5 cm með ljós perlugrár og natur
1-1-1-1-1-1 cm með ljós perlugrár og gulgrænn
4-4-4-4-3-3 cm með ljós perlugrár og vatnagrár
7-7-7-6-6-5 cm með ljós perlugrár og natur
1-1-1-1-1-1 cm með ljós perlugrár og vínrauður
4-4-4-4-3-3 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur
7-7-7-6-6-5 cm með ljós perlugrár og natur
1-1-1-1-1-1 cm með natur og gulgrænn
4-4-4-4-3-3 cm með natur og gallabuxnablár
Prjónið síðan með ljós perlugrár og natur (= 2 þræðir) til loka.

RENDUR Í HÚFU:
Rendurnar eru gefnar upp í cm og á við um báðar stærðir. Ef prjónfestan þín er rétt á hæðina þá getur þú prjónað tvisvar sinnum þær umferðir sem gefnar eru í cm (2 cm = 4 umferðir, 3 cm = 6 umferðir o.s.frv.).
Allar rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig:
3 cm með ljós perlugrár og gulgrænn
5 cm með ljós perlugrár og vatnagrár
2 cm með ljós perlugrár og natur
1 cm með ljós perlugrár og vínrauður
4 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur
2 cm með ljós perlugrár og ljós camel
1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn
Prjónið síðan með ljós perlugrár og natur (= 2 þræðir) til loka.

RENDUR Í HÁLSKLÚT:
Rendurnar eru gefnar upp í cm. Allar rendur eru prjónaðar í garðaprjóni með 2 þráðum Alpaca þannig:
2 cm með natur og ljós camel
2 cm með natur og gulgrænn
1 cm með natur og gallabuxnablár
5 cm með gallabuxnablár og ljós camel
2 cm með natur og appelsínugulur
3 cm með natur og ljós perlugrár
1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn
2 cm með ljós perlugrár og ljós camel
4 cm með ljós perlugrár og vínrauður
2 cm með ljós perlugrár og natur
3 cm með ljós perlugrár og gulgrænn
6 cm með ljós perlugrár og vatnagrár
2 cm með ljós perlugrár og natur
1 cm með ljós perlugrár og vínrauður
5 cm með ljós perlugrár og appelsínugulur
2 cm með ljós perlugrár og ljós camel
1 cm með ljós perlugrár og ljós brúnn
4 cm með ljós perlugrár og natur.
Endurtakið rendur til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Alpaca.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-84-84-90-96-102 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár + 1 þræði ljós brúnn (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan næstu umferð þannig: 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár + 1 þráð ljós camel (= 2 þræðir) og haldið áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-28-28-30-32-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 104-112-112-120-128-136 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki fyrir laskalínu í stykkið hér (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):
Teljið 18-20-20-22-24-26 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-40-40-44-48-52 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 18-20-20-22-24-26 lykkjur eftir í umferð á eftir síðustu lykkju með prjónamerki í (= ½ bakstykki).
Prjónið RENDUR Í BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-18-20-22-24-26 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 232-256-272-296-320-344 lykkjur í umferð. Prjónið RENDUR Í BERUSTYKKI til loka. Stykkið mælist nú ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Í næstu umferð deilast lykkjurnar fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig (haldið áfram með lit í síðustu rönd): Prjónið 35-38-41-45-49-53 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 46-52-54-58-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-82-90-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 46-52-54-58-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-38-41-45-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-164-180-196-216-232 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hlið á stykki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 26 cm frá skiptingu (rendurnar eiga nú að vera loknar), prjónið nú 1 umferð slétt með lit í síðustu rönd þar sem aukið er út um 22-28-30-32-36-38 lykkjur jafnt yfir = 174-192-210-228-252-270 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn með 1 þræði í litnum ljós perlugrár + 1 þræði natur (= 2 þræðir) þannig: 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt.
Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með grófari prjónum).
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-52-54-58-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-62-66-72-76 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi.
Prjónið RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-3-2-3-3 cm frá þar sem stykkið skiptist upp er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-3-3-2-2 cm millibili alls 9-11-11-12-14-14 sinnum = 34-36-40-42-44-48 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-39-37-36-34-32 cm frá þar sem stykkið skiptist upp (úrtöku á nú að vera lokið). Haldið áfram með 1 þræði í litnum ljós perlugrár + 1 þræði natur (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-6-8-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 36-42-48-48-48-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með grófari prjónum). Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-36 cm frá þar sem stykkið skiptist upp.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. Fyrst er prjónað stroff sem síðar er brett uppá. Síðan er prjónað sléttprjón í röndum. Að lokum er dúskur festur efst á húfuna.

HÚFA:
Fitjið upp 90-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði ljós perlugrár (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10-10 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir (í S/M eru prjónaðar 14. og 15. hver lykkja slétt saman og í M/L eru prjónaðar 15. og 16. hver lykkja slétt saman) = 84-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón og RENDUR Í HÚFU – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25-26 cm frá uppfitjunarkanti eru sett 6 prjónamerki í stykkið (prjónamerkin eru notuð þegar lykkjum fækkar og eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerki er sett í byrjun á umferð, síðan eru næstu 5 prjónamerkin sett með 14-15 lykkja millibili.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2 = 6 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum í báðum stærðum = 30-36 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem allar lykkjurnar eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 8-9 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 31-32 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá neðstu 5 cm af stroffi.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 4 cm að þvermáli með öllum litum. Saumið dúskinn niður efst á húfu.

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Allur hálsklúturinn er prjónaður í garðaprjóni og röndum.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 48 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði ljós perlugrár (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm eru prjónaðar RENDUR Í HÁLSKLÚT. Rendurnar eru endurteknar þar til stykkið mælist ca 156 cm, eða að óskaðri lengd. Skiptið yfir í 1 þráð í lintum natur og 1 þráð ljós perlugrár. Prjónið garðaprjón í 4 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Hálsklúturinn mælist ca 160 cm.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Patricia wrote:

Bonjour J essai de faire ce pull mais j'ai du mal à comprendre Le col doivent-ils être tricoter en rond cela me paraît tout petit comme ouverture si j'ai compris on doit faire le col en aller-retour et après au niveau de l'emplacement on travaille en rond est-ce bien ça merci pour votre réponse cordialement Patricia

04.01.2020 - 18:00

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, le pull se tricote entièrement en rond, le col se tricote ainsi également en rond, avez-vous bien tricoté votre échantillon? Vous devez avoir 18 m x 23 rangs jersey = 10 x 10 cm. Bon tricot!

06.01.2020 - 08:04

country flag Siri wrote:

Hei! Har lyst å prøve meg på denne genseren, men har dårlig erfaring med ull og kløe, og er redd for om Nepal klør?! Har kun strikket med Extra fine merino tidligere (veldig fornøyd med dette garnet) og ønsker tips til garn jeg kan bruke på denne oppskriften som ikke klør?

26.12.2019 - 23:16

DROPS Design answered:

Hei Siri. Om du var førnøyd med Merino Extra Fine, kan du prøve å bytte ut Nepal med 2 tråder av Baby Merino. Bruk vår garnkalkulator for å regne ut garnmengden du trenger (den finner du under oppskriften) og HUSK sjekk din strikkefasthet med det som står i oppskriften. God Fornøyelse!

20.01.2020 - 11:02

country flag Lennard wrote:

Kunnen jullie bij dit patroon wellicht een instructie toevoegen over hoe je draden wegwerkt tijdens het breien? Je krijgt met al deze strepen zoveel draden dat het wegwerken echt heel veel tijd kost.

06.10.2019 - 15:22

DROPS Design answered:

Dag Lennard,

Misschien heb je wat aan deze video. (waarbij je het begin stuk over het wisselen van kleur over kunt slaan)

15.10.2019 - 19:14

country flag Lennard wrote:

Ik heb de sjaal en de muts gebreid, heel mooi resultaat! Wel zijn me er een aantal dingen opgevallen: 1) Drops Alpaca 'pluist' heel erg. Overal losse stukjes alpaca liggen nu. 2) In het sjaalpatroon wordt gesproken over de kleur wit. Die zit echter niet in de lijst met benodigde materialen. Ik ben er maar vanuit gegaan dat het naturel moet zijn. 3) Volgens de lijst heb je 100 g kleur 9020, zeer licht grijs nodig. Dat is te weinig, je hebt 150g nodig.

06.10.2019 - 15:19

country flag Conny Leemans wrote:

Ik hou ook 4 steken over. 20 steken dan een markeerdraad na de markeerdraad 14 steken voor de mouw weer een markeerdraad. 40 steken dan weer een markeer draad, 14 steken markeerdraad dan 20 steken. De markeerdraden zitten tussen de laatste en de eerste steek van het voor/achterpand en mouw. 20+14+40+14+20 = 108 terwijl ik tot 112 steken moest meerderen. Wat moet ik met die 4 steken doen? Dit is een beetje verwarrend

30.01.2019 - 14:33

country flag Birthe Andersen wrote:

Jeg glæder meg til at komme igang med at strikke.

16.11.2018 - 22:58

country flag Saskia wrote:

Bij het breien van de trui in maat S: 78 steken opzetten en 26 steken meerderen = 104 steken. Dan, onder 'PAS' het werk verdelen door markeerdraden te plaatsen: volgens instructie na 18+14+36+14+18 = 100 steken, daar waar het werk aan de hals 104 steken bevatte? Wat met de andere 4 steken ?

18.10.2018 - 17:12

DROPS Design answered:

Dag Saskia, Je voegt in dit geval markeerdraden in in de steken en niet tussen de 2 steken. Dit zijn de 4 steken die je nu over houdt.

18.10.2018 - 19:43

country flag Ines wrote:

Hallo liebes Team, ich habe diesen Pullover in Größe 36 fast fertig gestrickt und bin mit dem Rumpfteil fast fertig. Meine Frage: Wenn ich jetzt nur noch die 6 cm im Rippenmuster stricke wird der Pullover viel zu kurz. Ich habe mich strickt an diese Anweisung gehalten. Habe ich einen Fehler gemacht oder so?

04.10.2018 - 14:54

DROPS Design answered:

Liebe Ines, Stimmt Ihre Maschenprobe? Alle Maßen für jede Größe bzw Größe S finden Sie in der Skizze. Der Pullover mist 56 cm insgesamt, und 26 cm + 6 cm Bündchen von den Armlöcher. Viel Spaß beim stricken!

04.10.2018 - 16:11

country flag Wenche wrote:

Hei. Om denne skal strikkes ensfarget, enten i dobbel alpakka eller gruppe c, ca hvor mange meter går med i de forskjellige størrelsene da?

13.09.2018 - 13:07

DROPS Design answered:

Hej Wenche, vi har ikke beregnet hvor meget garn der går hvis man strikker den ensfarvet. Prøv at vælge en ensfarvet genser i garngruppe C, så kan du udgå fra den. God fornøjelse!

19.09.2018 - 14:29

country flag Sophie wrote:

Combien faudrait-il de pelotes pour tricoter ce pull en une seule couleur? Merci beaucoup!

10.08.2018 - 16:59

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, ce modèle est prévu ainsi avec des rayures et nous n'avons ainsi pas la quantité nécessaire en uni. Vous pouvez additionner chacune des couleurs, il vous en faudra probablement un peu moins. Consultez nos autres modèles similaires pour vous donner une idée, votre magasin DROPS saura également vous renseigner, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

13.08.2018 - 08:55