Milaine skrifaði:
Bonjour Nathalie Je me permets de vous contacter car j'ai commencé le poncho mais je bloque au niveau des augmentations sur le schéma A1 flèche 1 je dois augmenter 6 brides ( car taille XL ) à intervalles réguliers le long de chaque long côté je ne comprends pas ce que cela veut dire et où je dois faire les augmentations ? pouvez vous m'aider svp ? j'attends votre réponse avec impatience pour pouvoir continuer merci beaucoup Nathalie bonne journée
22.05.2018 - 09:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Milaine, au rang avec la flèche 1 dans A.1 vous suivez les diagrammes mais en même temps, vous allez crocheter 6 brides en plus à intervalles réguliers entre chacun des 2 coins c'est-à-dire par exemple qu'au lieu de crocheter 8 brides dans chaque A.1c, vous crochèterez 9 brides (= vous aurez augmenté 1 maille). (cf comment répartir des augmentations). Pour la flèche 2 et la flèche 3, répétez de la même façon: suivez bien le diagramme et en même temps, augmentez 12 brides à intervalles réguliers (= crochetez 12 x 2 brides dans la même maille) de chaque côté des 2 coins. Bon crochet!
22.05.2018 - 10:05
Anne skrifaði:
Vad betyder symbolen som ser ut som en rosa diamant på vissa mönster?
20.04.2018 - 19:08DROPS Design svaraði:
Hej Anne, det betyder bara att denna modellen är med på framsidan :)
24.04.2018 - 11:22
Dehorter skrifaði:
Jolis motifs
05.01.2018 - 15:02
Mamma Mia#mammamiaponcho |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho með gatamynstri og kögri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.
DROPS 191-11 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. HEKLLEIÐBEININGAR: A.1a, A.2a, A.3a, A.4a, A.5a, A.6a og A.7a sýna hvernig umferðirnar byrja og enda. Þessar lykkjur eru heklaðar sem viðbót við tilheyrandi mynsturteikningu og eru ekki taldar með í lykkjufjölda. ÚTAUKNING: Heklið 2 stuðla í sömu lykkju. Þegar aukið er út jafnt yfir, aukið út jafnt yfir meðfram hvorri langhlið þ.e.a.s. frá miðju boga að miðju boga. MÆLING: Öll mál á lengd er mæld frá uppfitjunarkanti – mælt lóðrétt frá öxl og niður, ekki frá miðju boga. ÚRTAKA: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Fyrst er aukið út hvoru megin á öxl og við miðju að framan/miðju að aftan, síðan er einungis aukið út við miðju að framan og við miðju að aftan. PONCHO: Heklið 146-146-146 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum millibleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja af fyrstu 2-2-2 loftlykkjurnar, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 24-24-24 sinnum í umferð, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 122-122-122 stuðlar + 3 loftlykkjur í umferð. Nú er mynstur heklað í hring eftir mynsturteikningu – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA, þannig: HEKLIÐ A.1 ÞANNIG: Byrjun á umferð = mitt á öxl. Heklið A.1b, A.1c, A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1d (= miðja að framan), A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1c, A.1b alls 2 sinnum á breidd (öxl er staðsett mitt á milli þessa 2 mynstureininga), A.1c, A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1d (= miðja að aftan), A.1b alls 3 sinnum á breidd, A.1c, endið með A.1b – JAFNFRAMT er aukið út í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu – lesið ÚTAUKNING, þannig: ÖR-1: Aukið út 0-6-12 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 0-12-24 stuðlar fleiri). ÖR-2: Aukið út 6-6-18 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 12-12-36 stuðlar fleiri). ÖR-3: Aukið út 6-6-12 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 12-12-24 stuðlar fleiri). Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 108-114-138 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 216-228-276 stuðlar í umferð + 2 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 8 cm – lesið MÆLING. HEKLIÐ A.2 ÞANNIG: Heklið A.2b alls 9-10-12 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 18-19-23 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 9-9-11 sinnum á breidd. Þegar A.2 er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4 mynstureiningar í umferð. HEKLIÐ A.3 ÞANNIG: Heklið A.3b alls 10-11-13 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 20-21-25 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 10-10-12 sinnum á breidd. Þegar A.3 er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4 mynstureiningar í umferð. Stykkið mælist ca 24 cm. Heklið síðan eftir A.3 í stærð L/XL og XXL/XXXL þannig: Heklið 2-4 síðustu umferðir í A.3 þannig: Heklið A.3b alls 12-14 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 23-27 sinnum, A.3c yfir miðju boga, A.3b alls 11-13 sinnum á breidd. Þegar þessar 2-4 umferðir hafa verið heklaðar til loka á hæðina hafa verið auknar út alls 4-4 mynstureiningar í umferð. Stykkið mælist ca 27-30 cm. ALLAR STÆRÐIR: HEKLIÐ A.4 ÞANNIG: Heklið A.4b alls 11-13-15 sinnum, A.4c yfir miðju boga, A.4b alls 22-25-29 sinnum, A.4c yfir miðju boga, A.4b alls 11-12-14 sinnum á breidd. Þegar A.4 er lokið á hæðina hafa verið auknar út 4 mynstureiningar í umferð. Nú eru 144-162-186 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 288-324-372 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð). HEKLIÐ A.5 ÞANNIG: Heklið A.5b alls 12-14-16 sinnum, A.5c yfir miðju boga, A.5b alls 24-27-31 sinnum, A.5c yfir miðju boga, A.5b alls 12-13-15 sinnum á breidd – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í umferð merktri með ör í mynsturteikningu – lesið ÚRTAKA, þannig: Fækkið um 0-6-6 stuðla jafnt yfir meðfram hvorri langhlið (= alls 0-12-12 stuðlar færri). Þegar A.5b er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4-2-2 mynstureiningar (með 6 lykkjum) í umferð. Nú eru 156-168-192 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 312-336-384 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð). HEKLIÐ A.6 ÞANNIG: Heklið A.6b, A.6c alls 6-7-8 sinnum, A.6d yfir miðju boga, A.6c alls 13-14-16 sinnum á breidd, A.6d yfir miðju boga, A.6c alls 6-6-7 sinnum á breidd, A.6e. Þegar A.6 er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 2 mynstureiningar (með 12 lykkjum) í umferð. Nú eru 168-180-204 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 336-360-408 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð). Stykkið mælist ca 37-40-48 cm. HEKLIÐ A.7 ÞANNIG: Í stærð L/XL og XXL/XXXL er klippt frá, byrjið næstu umferð með 1 keðjulykkju í 6. stuðul (= mitt á öxl). Heklið A.7b alls 14-15-17 sinnum, A.7c yfir miðju boga, A.7b alls 28-30-34 sinnum, A.7c yfir miðju boga, A.7b alls 14-15-17 sinnum á breidd. Þegar A.7 er lokið á hæðina hafa verið auknar út 4 mynstureiningar (með 6 lykkjum) í umferð. Nú eru 180-192-216 stuðlar á milli loftlykkjuboga við miðju að framan og við miðju að aftan (= alls 360-384-432 stuðlar + 2 loftlykkjubogar í umferð). Stykkið mælist ca 42-45-48 cm. HEKLIÐ A.2 ÞANNIG: Heklið A.2b alls 15-16-18 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 30-32-36 sinnum, A.2c yfir miðju boga, A.2b alls 15-16-18 sinnum á breidd. Þegar A.2b er lokið á hæðina hafa verið auknar út alls 4 mynstureiningar (með 6 lykkjum) í umferð. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 45-48-51 cm (ca 54-57-60 cm meðfram miðjubogum). KÖGUR: Klippið 4 þræði í litnum millibleikur og 2 þræði í litnum natur ca 25 cm. Leggið þá saman tvöfalda, þræðið inn lykkjuna frá réttu í loftlykkjuboga í einum stuðlahóp í síðustu umferð. Þræðið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið eitt kögur í loftlykkjuboga í hvern stuðlahóp. Til að kögrið hangi fallega verður að bleyta það aðeins, hrissta það til og þurrka. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mammamiaponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.