Mariann Bårdsen skrifaði:
Hei, vil bare gjøre dere Obs på at feil knute-video er lagt til mønsteret. Videoen viser hvordan en strikker opp nye masker til knute i en maske ikke i tre eller fire masker som mønsteret viser. Fant rett video under teknikker og bobler. Håper dere kan endre videoen til dette mønsteret.
11.07.2023 - 22:00
Turid Karlsen skrifaði:
Kan ikke se at symbolene i A2 og A3 er forklart???
22.03.2021 - 15:28DROPS Design svaraði:
Hei Turid. Det er 4 forskjellige ikon. Forklaringene / teksten finner du over diagrammene. mvh DROPS design
22.03.2021 - 15:49
Magda Nowak skrifaði:
Przepiękna bluzeczka. Wzor trochę dla mnie skomplikowany, ale dałam radę. Efekt po założeniu bluzeczki nagrodził mój trud.
09.04.2020 - 11:26
Merete Sandø Wils skrifaði:
Jeg kan ikke få det til at passe.... Prøv at kigge på hvor mange masker der skal slås op. Mønster A1 er sammen for alle størrelser pånær een enkelte maske pr mønster, men man skal ende med forskelligt antal masker på de forskellige størrelser. Der er ikke andre indtag anført i opskriften. Tænker fejlen ligger i mængden af masker der skal slås op. Vil i være søde at tjekke, så jeg kan komme igang med min nye bluse 😊
22.10.2019 - 08:32DROPS Design svaraði:
Hej. Det ska vara riktigt. Det skiljer sig i antal maskor per rapport i slutet av de olika diagrammen. Tex strl S har 16 m per rapport på sista pinne i A.1; 12 rapporter x 16 m = 192 m. Strl M har 17 m per rapport på sista pinne i A.1; 12 rapporter x 17 m = 204 m osv... Lycka till!
23.10.2019 - 08:10
Linda Aytan skrifaði:
I, for one, was extremely pleased to find you had used a "larger" model as it is often difficult to assess whether the pattern is suitable for someone who isn't skinny! Please continue to show some of your patterns using someone who probably better matches the average person.
17.06.2019 - 14:21
Käthe Christians skrifaði:
Hallo, was bedeutet im Garnumrechner die Bezeichnung "1 Faden"? K. Christians
16.09.2018 - 10:25DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Christians, wenn Sie ein anderes Garn benutzen möchten, können Sie je nach der Modellen/Anleitung/gestricktem Garn mit mehr als 1 Faden ersetzen (= z.B 2 Fäden Garngruppe A = 1 Faden Garngruppe C - siehe Garnalternativen). Hier wird nur mit 1 Faden Garngruppe A gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
17.09.2018 - 09:06
Käthe Christians skrifaði:
Ich habe den Pullover in Gr. L nach Anleitung gestrickt. Sie war gut zu lesen und der Pullover passte genau. Die Wolle ist super zu verarbeiten.
10.09.2018 - 16:43Daisie skrifaði:
This model is beautiful but please include photos of regular sized models please. It is very difficult to "imagine" what the garment would look like on an average/small body. Thank you kindly.
19.08.2018 - 14:46
Miss Flora Top#missfloratop |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri, laskalínu og stuttum ermum úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-15 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Ef ekki er óskað eftir að hafa gatamynstur uppi meðfram miðju að aftan er prjónað sléttprjón yfir 32-34-38-32-34-38 lykkjur í A.2 við miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 16. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar 15. og 16. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri í hverri úrtökuumferð). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og kantur á ermum sett saman og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að úrtöku fyrir hálsmáli. Síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjón upp að kanti í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 276-276-276-368-368-368 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 12-12-12-16-16-16 mynstureiningar með 23 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 192-204-228-256-272-304 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 96-102-114-128-136-152 lykkjur (= í hliðum – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 32-34-38-48-51-57 lykkjur í sléttprjóni, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur við miðju að framan), 64-68-76-96-102-114 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur við miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR) og endið með 32-34-38-48-51-57 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm þar sem það er styst, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2-2-4-4-4-4 cm millibili alls 3-3-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 180-192-220-248-264-296 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-20-20-22-20-20 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 5-6-6-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 200-216-244-268-288-320 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32 cm þar sem það er styst í öllum stærðum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-98-110-122-130-144 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-98-110-122-130-144 lykkjur eins og áður (= bakstykki) og fellið af síðustu 5-5-6-6-7-8 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið kanta á ermum. KANTUR Á ERMI: Fitjið upp 67-75-83-89-93-99 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 77-85-93-99-103-109 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 37-41-45-48-50-53 lykkjur slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat), A.3 (= 3 lykkjur), 37-41-45-48-50-53 lykkjur slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur, prjónið 67-75-81-87-89-93 lykkjur slétt og fellið af þær 5-5-6-6-7-8 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kanta á ermum á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 314-346-382-418-438-474 lykkjur í umferð. Takið frá öll fyrri prjónamerki í stykkinu. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og kanta á ermum (= 4 ný prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.2 eins og áður, að auki er haldið áfram með A.3 yfir miðju 3 lykkjur á hvorri ermi. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA í næstu umferð – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 6-5-4-4-6-7 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 17-22-27-30-30-31 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm setjið miðju 26-26-30-36-40-50 lykkjurnar við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram fram og til baka eins og áður með úrtöku fyrir laskalínu í hverri umferð frá réttu. Að aukið er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þar til laskaúrtöku er lokið. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 90-90-90-96-96-106 lykkjur eftir á prjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 128-128-132-144-148-168 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 120-120-124-134-138-144 lykkjur – lesið ÚRTAKA-2. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #missfloratop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.