DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miss Flora Cardi

Prjónuð peysa með gatamynstri, laskalínu og stuttum ermum úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-16
DROPS Design: Mynstur fl-027
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300-300 g litur 19, kórall

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 8 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Hægri kantur að framan er prjónaður þannig (þ.e.a.s. fyrstu 8 lykkjur í umferð þegar prjónað er frá réttu): 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið.
Vinstri kantur að framan er prjónaður þannig (þ.e.a.s. síðustu 8 lykkjur í umferð þegar prjónað er frá réttu): 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.
Haldið áfram með kant að framan með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Ef ekki er óskað eftir að hafa gatamynstur uppi meðfram miðju að aftan er prjónað sléttprjón yfir 32-34-38-32-34-38 lykkjur í A.2 við miðju að aftan.

LEIÐBEININGAR (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 67 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 6,7.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis ca á eftir 6. og 7. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum á er prjónuð ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. Ekki er aukið/fækkað yfir kanta að framan.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 6 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri í hverri úrtökuumferð). Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð).
1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 2, 9, 16, 22, 29, 36, 42 og 48 cm.
M: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 50 cm.
L: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 52 cm.
XL: 2, 9, 16, 24, 31, 38, 46 og 54 cm.
XXL: 2, 10, 18, 25, 33, 41, 48 og 56 cm.
XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm.
ATH: Fellt er af fyrir síðasta af þessum 8 hnappagötum í fyrstu umferð frá réttu eftir að prjónaðar hafa verið upp lykkjur fyrir kant í hálsi eins og útskýrt er í uppskrift.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.
Síðan eru fram- og bakstykki og kantar í ermum sett saman og berustykkið er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið aðeins laust upp 292-292-292-384-384-384 lykkjur (meðtaldar 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 12-12-12-16-16-16 mynstureiningar með 23 lykkjum) og endið með 8 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 208-220-244-272-288-320 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki 56-59-65-72-76-84 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 96-102-114-128-136-152 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur), 48-51-57-80-85-95 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur við miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR), 48-51-57-80-85-95 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 32-34-38-32-34-38 lykkjur) og endið með 8 lykkjur í kanti að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm þar sem stykkið er styst, fellið af 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2-2-4-4-4-4 cm millibili alls 3-3-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 196-208-236-264-280-312 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 22-20-20-22-20-20 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 5-6-6-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 216-232-260-284-304-336 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32 cm þar sem stykkið er styst í öllum stærðum.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 53-57-63-69-73-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur eins og áður, prjónið 90-98-110-122-130-144 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur fyrir handveg og prjónið þær 53-57-63-69-73-80 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið kanta á ermum.

KANTUR Á ERMI:
Fitjið upp 67-75-83-89-93-99 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Flora. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 77-85-93-99-103-109 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 37-41-45-48-50-53 lykkjur slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat), A.3 (= 3 lykkjur), 37-41-45-48-50-53 lykkjur slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-6-6-7-8 lykkjur, prjónið 67-75-81-87-89-93 lykkjur slétt og fellið af þær 5-5-6-6-7-8 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið kanta á ermi á sama prjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 330-362-398-434-454-490 lykkjur í umferð. Takið öll fyrri prjónamerki úr stykkinu. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og kanta á ermum (= 4 ný prjónamerki).
Byrjið frá réttu, haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og A.2 eins og áður og með 8 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður. Að auki er haldið áfram með A.3 yfir miðju 3 lykkjur á hvorri ermi.
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA í næstu umferð frá réttu – sjá útskýringu að ofan.
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-5-4-4-6-7 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 17-22-27-30-30-31 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm setjið ystu 21-21-23-26-28-33 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, þ.e.a.s. þetta er gert í byrjun á 2 næstu umferðum, en til að sleppa við að klippa frá eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn.
Haldið áfram fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun í hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni. Síðan er felld af 1 lykkja í byrjun á hverri umferð á hvorri hlið þar til úrtaka fyrir laskalínu er lokið. Eftir allar úrtöku/affellingar fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 92-92-92-98-98-108 lykkjur eftir í umferð.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 146-146-150-162-166-186 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 2,5.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 136-136-140-150-154-160 lykkjur, þ.e.a.s. fækkað er um ca 10-10-10-12-12-26 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING og munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagatinu í þessari umferð.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kanti að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður brugðið, hinn er látinn falla niður
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman
symbols = Hnútur: prjónið þessar 4 lykkjur án þess að sleppa þeim af vinstri prjóni þannig:
4 lykkjur brugðið saman, 4 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur brugðið saman, 4 lykkjur slétt saman, sleppið síðan lykkjunum af vinstri prjóni
symbols = Hnútur: prjónið þessar 3 lykkjur án þess að sleppa þeim af vinstri prjóni þannig:
3 lykkjur brugðið saman, 3 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur brugðið saman, 3 lykkjur slétt saman, sleppið síðan lykkjunum af vinstri prjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Helle Eriksen wrote:

I mønsterdiagram A1 står følgende: = lav 2 omslag mellem 2 masker, på næste pind strikkes det ene omslag vrang, det andet slippes ned Hvad betyder `slippes ned` - skal man lade masken løbe.

23.05.2023 - 07:25

DROPS Design answered:

Hej Helle, ja det stemmer, du slipper masken af pinden, den vil dog ikke løbe men du vil få et hul :)

23.05.2023 - 08:46

country flag Patsy3cats wrote:

In the sleeve instructions it mentions A3. I can’t find a chart or diagram explanation as to what A3 is. Can you help please?

20.04.2018 - 16:47

DROPS Design answered:

Dear Patsy3cats , A.3 is a small diagram you will find on the left side of diagram A.1 to size L + XXXL and is worked over 3 sts and 6 rows. Happy knitting!

23.04.2018 - 10:57

country flag Nathalie Vergobbi wrote:

Bonjour, Pour 250 grammes de laine ,est-ce qu'il faut 5 pelotes de laine(taille xl)?.

17.03.2018 - 17:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vergobbi, tout à fait, DROPS Flora fait 50 g la pelote (cf nuancier), il vous faudra donc 5 pelotes en taille XL. Bon tricot!

19.03.2018 - 09:55

country flag Bjoerg Haarseth wrote:

Dette er den eneste muligheten jeg har til å uttrykke min skuffelse over at genseren med blå og hvite felt, ca 20-25 cm, ikke ble stemt inn. Det fatter jeg ikke for genseren var nydelig. Er det noen mulighet for at jeg kan få eller få kjøpt mønsteret likevel??? Ønsker så veldig å strikke denne.

25.01.2018 - 11:50

country flag Betty wrote:

If using different models for the photoshoots, then models of all ages should be used not only very young or granny models. Some clothing simply does no suit everyone due to bodytype and /or age

20.01.2018 - 11:43

country flag Ormi wrote:

Me hat absolut recht. Endlich mal ne ältere Frau in einer großen Größe. Da kann man eher entscheiden, ob das Modell zu einem passt. Man sieht auch direkt, dass die Ärmelchen länger sein müssen!

16.01.2018 - 21:55

country flag Jane Höglund wrote:

En underbar sommarkofta. Längtar efter att få sticka den då mönstret kommer ut.

13.01.2018 - 10:29

Me wrote:

How nice to see a real woman for a change! Yes, some patterns are only suited to the very young - but many are not.

09.01.2018 - 12:16

country flag Linda Brabant wrote:

Jolie et pratique pour les soirée au bord de l'eau

09.01.2018 - 03:06