Joane skrifaði:
Is het patroon aan de achterzijde hetzelfde als bij het voorpand? Of worden de 10 naalden steeds herhaald?
25.06.2018 - 10:49DROPS Design svaraði:
Dag Joane, Het patroon is op het voor- en achterpand hetzelfde. Dus nadat je de 10 naalden vanaf de ster hebt gedaan, herhaal je het patroon vanaf de eerste naald van het telpatroon. (Je start dus alleen bij de ster, maar daarna pak je wel steeds het hele telpatroon in de hoogte)
25.06.2018 - 10:59
Ann skrifaði:
Ik begin net met de trui en in de beschrijving van het achterpand staan 4 naalden beschreven voor de schouder. Na deze 4 naalden staat dat het werk 4 cm zou zijn? En bij de andere schouder zijn er ineens 9 naalden ipv 4. Hier is iets vergeten...
24.06.2018 - 21:31DROPS Design svaraði:
Dan Ann, Er stond inderdaad een foutje in de Nederlandse vertaling. Het is nu gecorrigeerd en deze zin is toegevoegd na naald 2: Herhaal de 1e en 2e naald nog 3 keer (= 4 keer in totaal) = 8 naalden.
25.06.2018 - 11:06
Maria Elisdotter skrifaði:
Hej! Jag ser varken beskrivningen till tröjan eller förklaring till diagrammet. Kan ni vara så snälla och lägga upp det på nytt! Tack ! Mia
21.03.2018 - 11:13DROPS Design svaraði:
Hei Maria. Oppskriften og diagramteksten er nå lagt ut. God Fornøyelse!
21.03.2018 - 12:08
Pia Sanne Pedersen skrifaði:
På 186-14 er der da ikke en fejl i beskrivelse på Hvad den sorte "prik" på linie 13 betyder. Det passer slet ikke med masketal og øvrigt samme beskrivelse som den med "trekanten" betyder?
09.03.2018 - 17:32DROPS Design svaraði:
Hej Pia, så er diagramforklaringen lagt ud. Tak for info og god fornøjelse!
14.03.2018 - 16:35
Corbel Jocelyne skrifaði:
Peut on avoir les explications j ai achete la laine pour le faire merci
26.02.2018 - 12:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Corbel, les explications seront bientôt disponibles, revenez vite! Bon tricot!
26.02.2018 - 12:58
Corbel skrifaði:
Peut on avoir les explications
10.02.2018 - 15:51
Ledien Dominique skrifaði:
Très belle encolure!
30.01.2018 - 18:44
Anne Savage skrifaði:
Beautiful design. Can't wait to make this! 😊
26.01.2018 - 18:49
Tanja skrifaði:
Apart model
30.12.2017 - 12:06
Lisa skrifaði:
Beautiful neckline contour.
19.12.2017 - 22:11
Key West Sweater#keywestsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Peysa með gatamynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-14 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er framstykkið og bakstykki prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka niður að handvegi, síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp 16-17-17-18-19-20 lykkjur á hringprjón 4,5 með Belle. UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), 10-11-11-12-13-14 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (= að handveg). UMFERÐ 2: 3 lykkjur garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til eftir eru 3 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þrisvar sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) = 8 umferðir. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni að hálsi – lesið ÚTAUKNING-1 = 17-18-18-19-20-21 lykkja. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu og geymið stykkið. Stykkið mælist ca 4 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar aukið er út um 1 lykkju við hálsmál er aukið út um 1 lykkju á undan 3 lykkjum í garðaprjóni að hálsmáli í 9. umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú vinstri og hægri öxl saman þannig: Snúið stykkinu (= vinstri öxl) og prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 35-35-37-37-39-39 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar, síðan eru prjónaðar 17-18-18-19-20-21 lykkja frá hægri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-79-81 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmál við miðju að aftan eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur á bakstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir nýjar lykkjur fyrir hálsmáli er mynstur prjónað jafnframt því sem aukið er út fyrir handveg þannig: - LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Byrjið frá réttu og prjónið mynstur þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 13-14-15-16-18-19 lykkjur í sléttprjóni, A.1 (= 7 lykkjur), prjónið frá umferð með stjörnu í A.2 (= 23 lykkjur), A.1, 13-14-15-16-18-19 lykkjur í sléttprjóni, 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka (þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er hún endurtekin á hæðina til loka). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-14-14-12-11-9 cm frá uppfitjunarkanti á öxl er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-5-7-10-12-16 sinnum = 75-81-87-95-103-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. Stykkið mælist 18-18-19-20-20-21 cm frá öxl og niður. Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp 16-17-17-18-19-20 lykkjur á hringprjón 4,5 með Belle. UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsi), 10-11-11-12-13-14 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (= að handveg). UMFERÐ 2: 3 lykkjur í garðaprjóni, brugðnar lykkjur þar til eftir eru 3 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 átta sinnum til viðbótar (= alls 9 sinnum) = 18 umferðir. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni að hálsmáli alveg eins og á bakstykki = 17-18-18-19-20-21 lykkja. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu og geymið stykkið. Stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið hægir öxl þannig: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar aukið er út um 1 lykkju að hálsi er aukið út um 1 lykkju á undan 3 lykkjum í garðaprjóni að hálsmáli í 19. umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið nú hægri og vinstri öxl saman þannig: Snúið stykkinu (= hægri öxl) og prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 35-35-37-37-39-39 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar, prjónið síðan 17-18-18-19-20-21 lykkju frá vinstri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-79-81 lykkjur. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur á framstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir nýjar lykkjur fyrir hálsmáli er prjónað mynstur jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir handveg þannig: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Byrjið frá réttu og prjónið mynstur þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 13-14-15-16-18-19 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 7 lykkjur), prjónið frá 1. umferð í A.2 (= 23 lykkjur), A.1, 13-14-15-16-18-19 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona (þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er hún endurtekin á hæðina til loka). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-14-14-12-11-9 cm frá uppfitjunarkanti á öxl er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-5-7-10-12-16 sinnum = 75-81-87-95-103-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. Stykkið mælist 18-18-19-20-20-21 cm frá öxl og niður. Prjónið nú frá réttu þannig: Snúið og prjónið yfir allar lykkjur á framstykki, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja (= 2-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 75-81-87-95-103-113 lykkjur frá bakstykki inn á sama hringprjón og fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt í þessar nýju lykkjur (= 2-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-174-190-210-230-254 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjón. Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, en yfir miðju 10-12-14-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5-6-7-8-9-10 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) er prjónað sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir lykkjur inn í hvorri hlið er haldið áfram í sléttprjóni, A.1 og A.2 eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin á stykki – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í 7.-7.-7.-7.-8.-8. hverri umferð alls 13 sinnum = 210-226-242-262-282-306 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-39-40-41-43-44 cm (alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. ERMI: Fitjið upp 48-50-52-54-56-60 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-9-9-7-11-9 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 20.-14.-10.-8.-6.-6. hverja umferð 5-6-8-10-11-12 sinnum, síðan þegar stykkið mælist 37-36-36-35-34-34 cm (= slétt eftir síðustu útaukningu) aukið út í annarri hverri umferð 6 sinnum = 70-74-80-86-90-96 lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-41-40-39-39 cm. Fellið nú af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-4-4-5-5-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 5 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-5-6 sinnum, 2 lykkjur 4-5-5-5-5-5 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 18-16-20-22-22-24 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 50-51-52-52-52-53 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki undir kanti í garðaprjóni. Saumið saum undir ermum. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #keywestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.