Avril McKoy skrifaði:
Hello, I am struggling to understand the increasing stitches for the raglan. I understand there are four markers that denote each sections of the jumper. I am at the stage where I have 52 stitches on the needle. Do I increase within the 6 stitches that are now for my sleeve (size xxxl) or is the increase on the body pieces? Many thanks Do you have a video that may help with how to do the increase?
05.08.2020 - 14:54DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McKoy, you have inserted before 4 thread markers, and you will increase on each piece on each side of the thread markers are explained under RAGLAN, this means start when 2 sts remain before thread marker, make 1 YO (= increase), work the next 4 sts (= the thread marker is in the middle of these 4 sts), make 1 YO (= increase) and repeat at each marker = you increase 8 sts on every round. Happy knitting!
05.08.2020 - 16:47
Katrine Hyldig Lindenhann skrifaði:
Jeg skal gøre opskriften 2 størrelser større og og 14 cm længere ca. så den går ned til midt på låret. Hvor meget ekstra garn skal jeg bestille ? Mvh Katrine
14.03.2019 - 09:28DROPS Design svaraði:
Hej Katrine, åh det er svært at gætte sig til... det kommer helt an på hvor meget større du vil have den i bredden også... tag hellere et par ekstra nøgler, så kan man altid strikke et par skønne sokker eller en hue som passer til :)
14.03.2019 - 11:06
R.Stein skrifaði:
Hallo, danke, dass die Anleitung nun etwas größer geschrieben ist. Es hilft ungemein beim Nacharbeiten. Außerdem ist sie klar gegliedert und das Nacharbeiten ist einfach. Weiter so!!
14.06.2018 - 12:57
Ebba#ebbasweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með háum kraga og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað ofan frá og niður úr DROPS Snow.
DROPS 183-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður frá miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KRAGI: Fitjið upp 40-40-48-48-48-56 lykkjur á sokkaprjóna 9 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn (= 5-5-6-6-6-7 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar kraginn mælist 12 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-4-8-8-4-8 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 10. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerkið er sett eftir fyrstu 7-7-8-8-9-10 lykkjurnar (= hálft bakstykki), 2. prjónamerki er sett eftir næstu 4 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett eftir næstu 14-14-16-16-18-20 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 4 lykkjur (= ermi). Nú eru 7-7-8-8-9-10 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1 lykkju í hverja og eina af 2 miðju lykkjum á hvorri ermi (aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt fram og til baka í sömu lykkju) = 40-40-44-44-48-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.1 hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-15-16-18-19-21 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur eru komnar á prjóninn. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 144-160-172-188-200-220 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.1 án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-26-29-31-34 cm frá miðju að framan (án stroffs í hálsi – stykkið mælist ca 25-27-29-32-34-37 cm frá öxl og niður). Næsta umferð er prjónuð þannig: 20-22-24-26-28-31 lykkjur slétt, setjið næstu 32-36-38-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-48-52-56-62 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 32-36-38-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 20-22-24-26-28-31 lykkjur sem eftir eru slétt. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 88-96-104-112-124-136 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. mitt í 4-4-4-4-6-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið). Látið prjónamerkin fylgja með áfram niður. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 21-21-21-20-20-19 cm skiptis stykkið upp við prjónamerki og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 44-48-52-56-62-68 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjr í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 33-33-33-32-32-31 cm frá skiptingu við ermar er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-4-8-4-6-8 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 4 kantlykkjur í hvorri hlið) = 52-52-60-60-68-76 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið stroff þannig (1. umferð er prjónuð frá röngu): 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 4 lykkjur brugðið, 4 lykkjur garðaprjón *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 4 lykkjur brugðið og 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm er fellt LAUST af með sléttum lykkjum frá réttu – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Prjónið alveg eins og bakstykki. ERMI: Setjið 32-36-38-42-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 10 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-4-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-40-42-46-50-54 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi – látið prjónamerkin fylgja með áfram niður. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 5-4-4-3-2-2 cm millibili alls 7-8-8-9-10-11 sinnum = 22-24-26-28-30-32 lykkjur. Þegar ermin mælist 35-34-33-32-30-30 cm frá skiptingu er skipt yfir á sokkaprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-6-4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 24-24-32-32-32-32 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón). Þegar stroffið mælist 8 cm (ermin mælist ca 43-42-41-40-38-38 cm frá skiptingu) fellið LAUST af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ebbasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.