DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Relax

Hekluð peysa með gatamynstri og háum kraga, hekluð frá miðju og út í ferning. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr 2 þráðum DROPS Air.

DROPS 183-19
DROPS Design: Mynstur ai-061
Garnflokkur C + C eða E
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-650-750-800 g nr 03, perlugrár
150-150-150-200-200-200 g nr 01, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 8 tvíbrugðnir stuðlar með 2 þráðum verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Stykkið er heklað fram og til baka, en heklað er saman í lok umferðar.

A.1 ER HEKLAÐ SAMAN ÞANNIG:
Í umferð 1 (= frá réttu) með stuðlum byrjar umferðin með 3 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu.
Hver umferð með fastalykkjum og loftlykkjum (= frá röngu) byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu.
Hver umferð með tvíbrugðnum stuðlum (frá réttu) byrjar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju, síðan 4 loftlykkjur (kemur í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu og heklið frá röngu.

A.4 ER HEKLAÐ SAMAN ÞANNIG (á við um ermar og hálsmál):
Hver umferð með tvíbrugðnum stuðlum (= frá réttu) byrjar með 4 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju, snúið stykkinu og heklið frá röngu.
Hver umferð með fastalykkjum og loftlykkjum (= frá röngu) byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju, snúið stykkinu og heklið frá réttu.

ÞEGAR STYKKIÐ ER HEKLAÐ FRAM OG TIL BAKA ÁN ÞESS AÐ HEKLAÐ SÉ SAMAN OG ÞRÁÐURINN ER KLIPPTUR FRÁ EFTIR HVERJA UMFERÐ, BYRJAR HVER UMFERÐ ÞANNIG:
Hver umferð með tvíbrugðnum stuðlum (= frá réttu) byrjar með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju og 4 loftlykkjur (kemur í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul), þegar síðasta lykkjan hefur verið hekluð er þráðurinn dreginn í gegnum síðustu lykkju á heklunálinni.
Hver umferð með fastalykkjum og loftlykkjum (= frá röngu) byrjar með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju og 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju), umferðin endar með 1 fastalykkju í síðustu lykkju, dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálnni.

LITASKIPTI:
Til þess að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni inn í loftlykkjuna í byrjun á umferð, sækið þráðinn með nýja litnum og dragið í gegnum lykkjurnar á heklunálinni.

RENDUR:
Hver umferð með stuðlum/tvíbrugðnum stuðlum er hekluð með litnum perlugrár – LESIÐ LITASKIPTI.
Hver umferð með fastalykkjum og loftlykkjum er hekluð með litnum natur. Passið uppá að það herðist ekki á þræðinum þegar hann er tekinn upp aftan á stykkinu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 tvíbrugðinn stuðul með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta tvíbrugðna stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað út frá miðju og út í ferning.

BAKSTYKKI:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 9 með 2 þráðum í litnum perlugrár og gerið 1 hring með 1 keðjulykkju i fyrstu loftlykkju. Heklið A.1 og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka, en hver umferð er hekluð saman – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið umferð 5 og 6. Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er aukið út um 4 tvíbrugðna stuðla í hverri af hliðum á ferningi (= alls 16 tvíbrugðnir stuðlar fleiri í umferð). Í hverri umferð með fastalykkjum er aukið út um 2 fastalykkjur í hverri af hliðum á ferningi (= alls 8 fastalykkjur fleiri í umferð). Þ.e.a.s. heklaðar eru fleiri og fleiri lykkjur á milli horna í hverri umferð.
Þegar stykkið mælist 58-60-62-66-68-72 cm, stillið af að síðasta umferð sé umferð með fastalykkjum. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkjuna á síðustu heilu hlið sem heklað var yfir (prjónamerki merkir miðju í hálsmáli). Klippið frá og festið enda. Nú verður að klippa frá þráðinn eftir hverja umferð.

STÆRÐ S-M-L-XL:
Nú er einungis heklað yfir hlið með prjónamerki í (þ.e.a.s. umferðin byrjar við eitt horn og endar við næsta horn). Heklið A.4 fram og til baka yfir hlið með prjónamerki, í fyrstu umferð eru heklaðir 2 tvíbrugðnir stuðlar um hvert horn, síðan er A.4 heklað yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69 cm cm á hæðina er hvor öxl hekluð til loka fyrir sig þannig:
Heklið vinstri öxl þannig (fyrsta umferð = frá réttu):
Umferðin byrjar nú í 6.-6.-8.-8. hverri lykkju (= 1 loftlykkja) eftir prjónamerki. Heklið A.2, síðan er A.4 heklað yfir þær lykkjur sem eftir eru, snúið stykkinu. Klippið frá og festið enda þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir af A.2.
Heklið hægri öxl þannig (fyrsta umferð = frá réttu):
Heklið A.4 þar til eftir eru 10-10-12-12 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki, heklið A.3, snúið stykkinu. Klippið frá og festið enda þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir af A.3. Stykkið mælist 66-68-70-72 cm á hæðina.

STÆRÐ XXL-XXXL:
Umferðin byrjar nú í 8. lykkju (= 1 loftlykkja) eftir prjónamerki í hálsi í annarri hlið og fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2, heklið síðan áfram eins og áður í kringum bakstykki (þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út við hvert horn og mynstur er heklað eins og áður, eftir A.1) þar til 12 lykkjur eru eftir á undan loftlykkju með prjónamerki, heklið A.3 yfir næstu 5 lykkjur, snúið stykkinu. Klippið frá og festið enda þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir af A.2 og A.3. Stykkið mælist 74-78 cm á hæðina og á breiddina.

FRAMSTYKKI:
Heklið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 58-60-62-62-50-54 cm, stillið af að síðasta umferðin er 1 umferð með fastalykkjum. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju á síðustu heilu hliðinni sem heklað var yfir (prjónamerki merkir miðju í hálsmáli). Klippið frá og festið enda. Nú verður að klippa þráðinn frá í hverri umferð.

STÆRÐ S-M-L:
Umferðin byrjar nú í 6.- 6.- 8. hverri lykkju (= 1 loftlykkja) eftir prjónamerki. Heklið nú hægri öxl þannig (fyrsta umferð = rétta):
Heklið A.2, síðan er heklað A.4 að fyrsta horni, heklið 2 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjubogann í horni, snúið stykkinu. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað A.4 yfir allar lykkjur. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 66-68-70 cm á hæðina.
Hekli vinstri öxl þannig (fyrsta umferð = rétta):
Heklið 2 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjubogann í horni, heklið A.4 þar til eftir eru 10-10-12 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.3, snúið stykkinu. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4 heklað yfir allar lykkjur. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 66-68-70 cm á hæðina, stillið af með hægri öxl.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Umferðin byrjar nú í 8. lykkju (= 1 loftlykkja) eftir prjónamerki.
Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2, síðan er heklað áfram eins og áður í kringum framstykki (þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út við hvert horn og mynstur er heklað eins og áður eftir A.1) þar til eftir eru 12 lykkjur á undan loftlykkju með prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 5 lykkjur, snúið stykkinu.

STÆRÐ XL:
Heklið svona þar til stykkið mælist 66 cm á hæð, nú er hvor öxl hekluð til loka fyrir sig. Heklið hægri öxl þannig (þ.e.a.s. lykkjur á milli háls og fyrsta horni).
Heklið A.2 áfram eins og áður, heklið síðan A.4 að fyrsta horni, heklið 2 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjuboga í horni, snúið stykkinu. Haldið áfram með A.2 og A.4 yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað A.4 yfir allar lykkjur. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 72 cm á hæðina, stillið af að endað sé með 1 umferð með fastalaykkjum.
Heklið vinstri öxl þannig (þ.e.a.s. lykkjur á milli horns og háls):
Heklið 2 tvíbrugðna stuðla um hornið, heklið A.4 og A.3 eins og áður. Haldið áfram með A.3 og A.4 yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað A.4 yfir allar lykkjur. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 72 cm á hæðina, stillið af með hægri öxl.

STÆRÐ XXL-XXXL:
Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka er A.4 heklað yfir þessar lykkjur, yfir þær lykkjur sem eftir eru í kringum framstykki er heklað og aukið út eins og áður eftir A.1. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 74-78 cm á hæð og breidd, stillið af þannig að endað sé með 1 umferð með fastalykkjum.

ERMI:
Ermarnar eru heklaðar fram og til baka, en heklað er saman í lok hverrar umferð, ofan frá og niður. Heklið 33-34-37-39-40-42 loftlykkjur með heklunál 9 með 2 þráðum í litnum perlugrár og gerið 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja og eina af næstu 4-5-1-3-4-6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja og eina af 6 loftlykkjum *, heklið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar = 29-30-32-34-35-37 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan rendur og A.4 yfir allar lykkjur (fyrsta umferð í A.4 = ranga).
Þegar stykkið mælist 4 cm, stillið af að næsta umferð sé 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum, fækkið um 1 tvíbrugðinn stuðul í byrjun og í lok umferðar þannig: Heklið 4 loftlykkjur, heklið næstu 2 tvíbrugðna stuðla saman – LESIÐ ÚRTAKA, heklið eins og áður þar til eftir eru 2 tvíbrugðnir stuðlar, heklið síðustu 2 tvíbrugðnu stuðlana saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 8-8-8-6-5-4 cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 19-20-22-22-23-23 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 45-45-45-44-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), stillið af þannig að endað sé með 1 umferð með fastalykkjum og loftlykkjum.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með litnum perlugrár.

KRAGI:
Stykkið er heklað fram og til baka, en heklað er saman í lok umferðar. Byrjið við annan axlasauminn, heklið með 2 þráðum í litnum perlugrár frá röngu þannig: Heklið * 1 fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum allan hálsinn.
Heklið síðan 2 tvíbrugðna stuðla um hvern loftlykkjuboga. Heklið síðan mynstur A.4 yfir allar lykkjur. Þegar kraginn mælist ca 14 cm, stillið af þannig að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum og loftlykkjum, skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur. Heklið eina umferð með fastalykkjum og loftlykkjum. Klippið frá og festið enda. Kraginn mælist ca 15 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í með litnum perlugrár. Saumið hliðarsaum með litnum natur niður þar til eftir eru ca 12 cm (= klauf).

Mynstur

symbols = Heklið 4 loftlykkjur og gerið 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuhringinn
symbols = Tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = keðjulykkja
symbols = fyrsta umferðin er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Eileen wrote:

Kan man hækle den med 1 tråd alt for tyk?

09.10.2019 - 20:20

DROPS Design answered:

Hej Eileen, da vil målene ikke komme til at stemme... Den her er strikket i en tråd DROPS Air: 172-41 i DROPS Air

10.10.2019 - 14:23

country flag Lena Carlvsvärd wrote:

Tack, men som sagt, masktäthet och mått stämmer. Men allt ser tjockt och kompakt ut, och bilden ni har, där ser den betydligt luftigare ut...? Jag har använt dubbelt garn o rätt virknål. Är det säkert att det är garnet Air på modellen?

07.10.2019 - 13:42

DROPS Design answered:

Hei Lena. DROPS Air er et av de mest luftige garn vi har, så dersom det er brukt et annet garn (i garngruppe C), ville genseren på bildet ha sett mer kompakt ut. Men ta gjerne med deg genseren til din forhandler, slik at de kan se på den. mvh DROPS design

07.10.2019 - 14:06

country flag Lena Carlsvärd wrote:

Jag har nu virkat hela framstycket o har bara lite kvar på axlarna. Jag har rätt garn och rätt stlk på virknål, även rätt masktäthet. Dock upplever jag att det blir väldigt kompakt. Undrar nu, det står ju ”virkas med två trådar” och jag tolkar det som att jag ska virka med två gråa resp två naturfärgade garnnystan på samma gång, dvs dubbel tråd, vilket jag har gjort. Är det verkligen rätt? Tacksam för svar!

06.10.2019 - 12:04

DROPS Design answered:

Hei Lena. Det hekles med 2 tråder perlegrå ELLER 2 tråder natur. Slik står det i oppskriften: Varje varv med stolpar/dubbelstolpar virkas i pärlgrå. Varje varv med fastmaskor och luftmaskor virkas i natur. Prøv å mål skuldervidden og så mål ditt eget erme (se på bildet hvor skuldersømmen er), syns du fremdeles det blirt for lite/kompakt? mvh DROPS design

07.10.2019 - 11:49

country flag Susanne Laursen wrote:

Kan ikke få ærmerne til at passe med antal cm rund ved start på ærme . det passer med luftmasker og cm men lige så snart jeg arbejder på 1 rk bliver det noget større .. skal der hækles med 1 dobbeltstangmaske eller med 2 dobbeltstangmaske.

05.09.2018 - 13:24

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Du har 29-30-32-34-35-37 masker på omgangen (før du begynner å felle) – med den angitte heklefastheten stemmer dette overens med målene i målskissen. Det kan være utfordrende å overholde heklefastheten. Når du hekler etter A.4 hekles det annenhver omgang: fastmaske, luftmaske, fastmaske, luftmaske osv, og annenhver omgang: hopp over fastmasken, 2 dobbelstaver i luftmasken, hopp over fastmasken, 2 dobbelstaver i luftmasken, osv. God fornøyelse.

06.09.2018 - 11:28