Catriona skrifaði:
Is there any way of knowing what size the model in the photo is wearing? Thanks.
10.09.2023 - 22:57DROPS Design svaraði:
Dear Catriona, our model is usually wearing an M size. Happy knitting!
10.09.2023 - 23:11
Mari skrifaði:
Strikk den gjerne en eller to str større enn den du vanligvis bruker. Jeg er 167 cm høy, bruker normalt str s. Når denne var ferdig følte jeg at jeg hadde strikket et barneplagg. Strikket den litt lenger enn det som stod i oppskriften, men den ble likevel veldig kort. Det blir glipe mellom genser og bukse. Kanskje mest egnet for tenåringer?
14.11.2020 - 16:22
Jenny Strick skrifaði:
Die Farbangaben sind leider falsch, sodass ich falsche Wolle gekauft habe :-( Farbe 37 rostrot gibt es nicht. Ich habe Rost gekauft - das ist 65. Passt leider nicht zum Rest. 37 ist weinrot.
11.05.2019 - 14:25DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Strick, die Farbennumber sind alle korrekt, nur Farbenamen waren falsch, sorry. Eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim stricken!
14.05.2019 - 09:06
Inger skrifaði:
Hvor meget garn skal bruges hvis opskriften strikkes i en farve? Eller sagt på en anden måde, kan meterantallet angives pr. farve, så det ikke kun angives pr hele nøgler.
05.03.2019 - 22:02DROPS Design svaraði:
Hei Inger. Vi har dessverre ikke oversikt over nøayktig garnforbruk i hver farge i hver størrelse. Du kan eventuelt se på en annen, ensfarget genser i Paris for å se hva den ligger på i garnforbruk. God fornøyelse
11.03.2019 - 11:10Agen Bola Sbobet 50rb Terpercaya skrifaði:
Howdy just wanted to give you a quick heads up and let you know a few of the pictures aren't loading properly. I'm not sure why but I think its a linking issue. I've tried it in two different internet browsers and both show the same outcome.
11.02.2018 - 00:20DROPS Design svaraði:
Hello, we are sorry you have problems with the pictures, but from our side things seems to be working fine. It might have been a temporary connectivity problem perhaps?
11.02.2018 - 09:23
Momo skrifaði:
Waouhhh, mon modèle préféré de cette collection 2018, qui manque un peu de modernité et de couleurs vives ! Je le tricoterai certainement cet été, mais pas en Paris Merci
23.01.2018 - 10:55
Jennifer King skrifaði:
Love the idea of this one, it would fit so well in my wardrobe!
17.01.2018 - 11:42
Nadine skrifaði:
Vive la couleur !!!
12.12.2017 - 11:45
Lea skrifaði:
Joliement coloré
11.12.2017 - 21:17
Zanzibar#zanzibarsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með röndum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 187-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með litnum sinnep til loka. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus lykkjur með garðaprjóni í hlið (t.d. 6 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 6,5. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja saman. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig upp svo að það myndist klauf, síðan eru stykkin sett saman og prjónað er í hring upp að handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI: Fitjið upp 84-92-100-112-124-136 lykkjur á hringprjón 4 með litnum dökk þveginn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-14-18-20-22 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 72-78-86-94-104-114 lykkjur. Skiptið yfir í rústrauður og haldið áfram í sléttprjón og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 7 cm – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Geymið stykkið og prjónið framstykki á sama hátt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið bakstykki og framstykki á sama hringprjón 5 = 144-156-172-188-208-228 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið síðan sléttprjón með litnum rústrauður þar til stykkið mælist 7-8-9-8-9-11 cm. Prjónið síðan A.1, lesið MYNSTUR að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm skiptist stykkið við prjónamerkin. Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 72-78-86-94-104-114 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok fyrstu 2 umferða = 74-80-88-96-106-116 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm fellið af miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-25-28-32-36-41 lykkjur á öxl. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 72-78-86-94-104-114 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok fyrstu 2 umferða = 74-80-88-96-106-116 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar A.1 er lokið mælist stykkið 38-39-40-42-43-45 cm. Setjið nú miðju 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmái þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 22-25-28-32-36-41 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum sinnep. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 2 cm, skiptið síðan yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið nú 2 umferðir sléttprjón með natur. Prjónið síðan með litnum sinnep og sléttprjóni til loka. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 8-5-4-7-5-8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 14-16-16-17-18-19 sinnum = 68-72-74-78-82-86 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-37-36-35-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið laust af – lesið AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón. Prjónið upp ca 88-104 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 4) á stuttan hringprjón 4 með litnum sinnep. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #zanzibarsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.