DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Quartier Latin

Hekluð peysa með röndum, gatamynstri, langri klauf og ¾ ermum, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.

DROPS 187-24
DROPS Design: Mynstur w-676
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-150-200-200-200 g litur 30, gráblár
150-150-150-200-200-200 g litur 26, dökk beige
150-150-150-150-200-200 g litur 17, natur
100-100-150-150-150-150 g litur 60, dökk bleikfjólublár
100-100-100-150-150-150 g litur 41, sinnep
100-100-100-100-150-150 g litur 59, ljós bleikfjólublár
50-50-100-100-100-100 g litur 35, vanillugulur
50-50-50-100-100-100 g litur 32, ljós bláfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
Umferðin endar með 1 stuðli í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð (fer eftir því hvort fyrri umferð byrjaði með 3 eða 2 loftlykkjum).
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrsta lykkjan skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendur eru útskýrðar að neðan – umferðirnar eru merktar með númeri í A.1, A.2 og A.3.
1-4: gráblár
5: ljós bleikfjólublár
6: dökk bleikfjólublár
7: natur
8: sinnep
9: vanillugulur
10-11: dökk beige
12: natur
13: ljós bleikfjólublár
14: ljós bláfjólublár
15: gráblár
16: vanillugulur
17: dökk beige
18: dökk bleikfjólublár
19: sinnep
20: ljós bleikfjólublár
21-22: natur
23: dökk beige
24: sinnep
25: ljós bláfjólublár
26-30: gráblár
31: dökk beige
32: dökk bleikfjólublár
33: sinnep
34: ljós bleikfjólublár
35-36: natur
37: dökk beige
38: sinnep
39: ljós bleikfjólublár
40: dökk bleikfjólublár

RENDUR ERMI:
Rendur eru útskýrðar að neðan – umferðirnar eru merktar með númeri í A.1, A.2 og A.3.
7: natur
8: sinnep
9: vanillugulur
10-11: dökk beige
12: natur
13: ljós bleikfjólublár
14: ljós bláfjólublár
15: gráblár
16: vanillugulur
17: dökk beige
18: dökk bleikfjólublár
19: sinnep
20: ljós bleikfjólublár
21-22: natur
23: dökk beige
24: sinnep
25: ljós bláfjólublár

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er þræðinum brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn í gegnum síðustu lykkjuna með nýja litnum, síðan er heklað áfram með nýja litnum.

FESTIÐ ENDA (á við um fram- og bakstykki frá handveg og niður og ermar):
Til þess að sleppa við að sauma inn marga enda eftir litaskipti eru 2 fyrstu stuðlarnir/fastalykkjurnar heklaðar í byrjun á hverri umferð með nýjum lit með tvöföldum þræði (í sama lit). Þetta er gert þannig: Passið uppá að hafa langan enda (ca 20-25 cm) þegar skipt er um lit, heklið endana saman með þræðinum frá dokkunni. Síðan eru endarnir lagðir meðfram lykkjunum frá fyrri umferð og heklað er utan um þá þannig að þeir verða faldir innan í lykkjunum. Að auki á sá endi sem þú ert með í lokin á umferð einnig að leggjast meðfram lykkjum þegar þú snýrð stykkinu þannig að hann sé einnig heklaður utan um þennan enda. Með þessari aðferð þá getur þú fest endana án þess að nota nál.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 2 síðustu lykkjur í hvorri hlið.
Fækkið lykkjum með því að hoppa yfir síðustu lykkju í hvorri hlið á undan 2 síðustu lykkjum. Það er erfitt að segja til um hvar úrtakan lendir í mynstri, þess vegna er engin mynsturteikning með úrtöku, en prófið að stilla þær af í umferð með stuðlum/loftlykkjum (ekki í stórum loftlykkjubogum).

ÚTAUKNING (á við neðst á ermum):
Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka í stykkjum. Fyrst er hægri öxl hekluð fram með útaukningu fyrir hálsmáli, síðan er vinstri öxl hekluð fram með útaukningu fyrir hálsmáli áður en stykkið er sett saman og heklað er fram og til baka til loka. Bakstykki er heklað alveg eins. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður.

HÆGRI ÖXL FRAM (séð þegar flíkin er mátuð):
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITASKIPTI!
Heklið 36-36-36-44-44-44 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum gráblár.
Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 26-26-26-32-32-32 stuðlar í umferð.
Heklið síðan RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er heklað mynstur eins og útskýrt er að neðan.
Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig (með litnum gráblár): Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 18-18-18-24-24-24 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1C (= 6 lykkjur). Haldið svona áfram með rendur og mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Geymið stykkið og heklið vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Heklið 36-36-36-44-44-44 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum gráblár. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 26-26-26-32-32-32 stuðlar í umferð.
Heklið síðan RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI, JAFNFRAMT er heklað mynstur eins og útskýrt er að neðan.
Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig (með litnum gráblár): Heklið A.1D (= 7 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 12-12-12-18-18-18 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram með rendur og mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 13-19-25-19-25-31 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Heklið nú stykkin saman að framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu með hægri öxl fram, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli (heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju) og heklið síðan yfir lykkjur á vinstri öxl fram þannig: Heklið A.2A (= 2 lykkjur), heklið A.2B yfir næstu 60-66-72-78-84-90 lykkjur (= 10-11-12-13-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.2C (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram með rendur og mynstur fram og til baka. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið A.3 1 sinni á hæðina alveg eins. Heklið síðan aftur A.2 þar til eftir eru 2 cm til loka eins og útskýrt er aðeins neðar í uppskrift.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-20-20-22-22 cm frá uppfitjunarkanti er sett 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg. Heklið síðan 2 síðustu lykkjur í hvorri hlið með tvöföldum þræði til loka – lesið FESTIÐ ENDA!
Heklið síðan eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm. Skiptið yfir í litinn dökk bleikfjólublár og heklið 1 umferð með stuðlum – ATH: Veljið umferð frá einni mynsturteikningunni sem passar við þar sem þú ert í mynstri þannig að það verða 69-75-81-87-93-99 stuðlar í umferð. Klippið frá og festið enda. Framstykkin mælast ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Heklið 36-36-36-44-44-44 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum gráblár. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 26-26-26-32-32-32 stuðlar í umferð. Geymið stykkið og heklið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Heklið 36-36-36-44-44-44 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum gráblár. Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig:
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 26-26-26-32-32-32 stuðlar í umferð. Í lok þessara umferðar eru heklaðar 17-23-29-23-29-35 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Heklið nú stykkin saman að bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu á hægri öxl að aftan, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og síðan yfir lykkjur á vinstri öxl að aftan þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 60-66-72-78-84-90 lykkjur (= 10-11-12-13-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram með rendur og mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað A.2 alveg eins. Eftir A.2 er heklað A.3 alveg eins þar til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið síðan aftur A.2 þar til 2 cm eru eftir til loka – stillið af eftir framstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-20-20-22-22 cm frá uppfitjunarkanti er sett 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg. Heklið síðan 2 síðustu lykkjur í hvorri hlið með tvöföldum þræði til loka eins og á framstykki.
Heklið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm – stillið af eftir framstykki. Skiptið yfir í dökk bleikfjólublár og heklið 1 umferð með stuðlum – ATH: Veljið eina umferð með stuðlum frá einni mynsturteikningunni sem passar við hvar þú ert í mynstri þannig að það verða 69-75-81-87-93-99 stuðlar í umferð. Klippið frá og festið enda. Bakstykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Munið eftir FESTIÐ ENDA! Heklið 61-61-69-69-77-77 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum ljós bleikfjólublár. Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 45-45-51-51-57-57 stuðlar í umferð.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli + 1 loftlykkju), hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar í bilið á undan 3 næstu stuðlum, 1 loftlykkja * heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, hoppið yfir 2 stuðla og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul = 45-45-51-51-57-57 lykkjur í umferð.
Heklið síðan RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT heldur mynstur áfram eins og á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í byrjun á A.2 (umferð 7) og heklið A.2. Þegar A.2 er lokið eru 2 fyrstu umferðirnar heklaðar í A.3, síðan er jafnvel A.2 heklað áfram til loka (í flestum stærðum kemur lengd á ermum að nást áður en A.2 er lokið í fyrsta skipti).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 7-7-9-9-10-10 sinnum í hvorri hlið = 31-31-33-33-37-37 lykkjur í umferð. Þegar ermin mælist ca 33-31-30-28-27-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) heklið síðan með gráblár til loka. Heklið 1 umferð með fastalykkjum frá röngu þar sem aukið er út um 2-2-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 33-33-39-39-45-45 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 24-24-30-30-36-36 lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.1E (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram en endið eftir 3. umferð í A.1. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 39-37-36-34-33-32 cm ofan frá og niður. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með litnum gráblár. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðar sauma í eitt – byrjið neðst niðri á ermi og saumið í ystu lykkjuna, en endið sauminn þegar eftir eru ca 34 cm fyrir klauf í hvorri hið á fram- og bakstykki.

HÁLSMÁL:
Byrjið á öxl og heklið fyrstu umferð með heklunál 5,5 með litnum dökk bleikfjólublár þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð/loflykkjuboga *, heklið frá *-* í kringum allan hálsinn, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, heklið 3 loftlykkjur, * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 3 STUÐLAR SAMAN Í LYKKJU: Heklið 2 stuðla í næstu fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul í sömu lykkju og dragið þráðinn að lokum í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.
symbols = 3 STUÐLAR SAMAN UM LOFTLYKKJU/LOFTLYKKJUBOGA: Heklið 2 stuðla um loftlykkju/loftlykkjuboga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul í sömu loftlykkju/loftlykkjuboga og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = fyrsta umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og þetta sýnir eingöngu hvernig hekla á næstu umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Vasileia wrote:

Hello from sunny Athens! I use a 3,50mm hook in order to get 13 double crochets in width BUT WITH 8 cm and 8 rows vertically WITH 10 cm. Please let me know my mistake. Many thanks in advance.

13.05.2023 - 15:48

DROPS Design answered:

Dear Vasileia, the most important measurement is the width, you should get a 10cm width with the 13 double crochet (US)/treble crochets (UK). The best thing to do is to use a bigger crochet hook (take into account that the recommended size is 5.5mm so you can use a bigger hook). Also, it seems you are working the double crochets too long; you should try to adjust them, so that you will be able to get 10cm in 8 rows with a bigger hook, Happy crocheting!

14.05.2023 - 17:57

country flag Susana Gonzalez Prieto wrote:

Bueno , aunque no exista video una pequeña explicación de como comenzar el jersey.

15.04.2023 - 10:00

country flag Sandra wrote:

Where can I find your diagram stitch explaining what it means. I am used to US terms and need to convert to your UK pattern. Please help.

30.04.2022 - 16:48

DROPS Design answered:

Dear Sandra, for each pattern we have defined whether it is written in UK or US terms - you can find this definition just on top of pattern instructions (under the material box). Explanation to stitches you can find right above the diagram. Happy crochetig!

30.04.2022 - 20:09

country flag Anne-Marie wrote:

Ik weet niet wat er bedoeld wordt met ; aan het begin en eind de 2 begin en laatste steken met dubbele draad, en wat is daar het nut van ? Ook een gehaakte trui in elkaar zetten, geen idee hoe dat moet kan ik hier antwoord op krijgen? Bedankt, en vriendelijke groet,

08.06.2020 - 10:08

DROPS Design answered:

Dag Anne-Marie,

In deze video wordt uitgelegd hoe je draadjes afwerkt tijdens het haken (de steek met dubbele draad gaat daarover)

Voor het in elkaar zetten wordt vaak de techniek gebruikt die ook gebruikt wordt voor het in elkaar zetten van 'oma-vierkantjes'. Je legt de goede kanten tegen elkaar aan en haakt dan vasten door beide lagen. Zie deze video.

18.06.2020 - 12:57

country flag Nel wrote:

O daar zit mijn fout , begon iedere tour aan de rechterkant , wel heel leuk afwisselend patroon , dankjewel voor de hulp 👍

05.05.2020 - 14:47

DROPS Design answered:

Dag Nel,

Fijn dat je nu verder kunt. Bedankt voor de terugkoppeling en veel haakplezier!

05.05.2020 - 15:32

country flag Nel wrote:

Dus als je tour 8 eindigt met 3 losse begin je tour 9e weer met 3 losse dan heb je aan het begin van tour 9 6 losse ?

05.05.2020 - 12:14

DROPS Design answered:

Dag Nel,

Toer 8 van A.2 begin je met 3 lossen, (op deze toer lees je de tekens van links naar rechts. Aan het einde van de toer haak je een stokje. Dan keer je het werk en begin je weer met 3 lossen om toer 9 te starten, lezend van rechts naar links.

05.05.2020 - 14:27

country flag Nel wrote:

Wat betekenen de horizontale puntjes in het telpatroon ? De laatste steken van de tour kloppen niet op de 2 beginsteken ?

04.05.2020 - 23:59

DROPS Design answered:

Dag Nel,

De horizontale en verticale streepjes zijn lossen.

Bij welke toer zouden de laatste steken niet kloppen? Op het begin van iedere toer met stokjes vervang je het eerste stokje door 3 losse, zie ook 'Informatie voor het haken bovenaan het patroon'.

05.05.2020 - 11:38

country flag Anna wrote:

Har en fråga angående diagram A.1B, varv 2. Jag förstår inte hur det ska göras. Kan ni vara snälla och förklara i vilken ordning de görs. Det börjar ju med två luftmaskor, men hur gör man sen? Är ju tecken för 2 st fasta maskor, sedan några lutande streck ovanför, (gissar att det är luftmaskor?), men i vilken ordning ska det vara? Har provat mig fram, men det blir inte rätt om jag jämför med den stickade bilden. Hoppas ni kan hjälpa mig.

15.09.2019 - 18:22

DROPS Design answered:

Hei Anna. Slik hekler du 2. rad i diagram A.1B: Hekle 2 luftmasker, 1 fastmaske i staven fra forrige rad, 2 luftmasker, 1 fastmaske i samme staven fra forrige rad, 2 luftmasker og 1 stav i fastmasken fra forrige rad, deretter gjentas dette over det antall masker det står i oppskriften. God Fornøyelse!

16.09.2019 - 10:48

country flag Linda wrote:

Ich möchte den Pullover in Größe M in nur einer Farbe häkeln. Wieviel Wolle brauche ich dann? Lg

21.08.2019 - 16:51

DROPS Design answered:

Liebe Linda, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuellen Anfrage anpassen, gern wird Ihnen aber Ihr DROPS Laden - auch telefonisch oder per E-Mail weiterhelfen. Viel Spaß beim häkeln!

22.08.2019 - 09:22

country flag Maria wrote:

Are there written instructions for this pattern please as I've never worked from a chart before.

04.07.2019 - 15:21

DROPS Design answered:

Dear Maria, you will find here how to read crochet diagrams here. Happy crocheting!

04.07.2019 - 16:19