DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 187-26
DROPS Design: Mynstur z-811
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd meðfram hlið þar sem lykkjur eru fitjaðar upp: ca 170 cm
Hæð frá uppfitjunarkanti að affellingarkanti á þeirri hlið á sjali þar sem það er breiðast: 55 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 100, natur
100 g litur 2923, sinnepsgulur
50 g litur 2915, appelsínugulur
50 g litur 2921, kirsuber

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 39 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
Skipt er um lit í byrjun á umferð frá röngu:
Prjónið rendur þannig:
Prjónið 1 umferð með natur frá réttu, * Prjónið 2 umferðir með natur, 2 umferðir með sinnepsgulur*, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 55 umferðir. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu, í þessari umferð er fækkað um 15 lykkjur í byrjun á umferð.
* Prjónið 2 umferðir með natur, 2 umferðir með appelsínugulur *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 54 umferðir. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu, í þessari umferð er fækkað um 15 lykkjur í byrjun á umferð.
* Prjónið 2 umferðir með natur, 2 umferðir með sinnepsgulur *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu.
* Prjónið 2 umferðir með natur, 2 umferðir með kirsuber *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 48 umferðir. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu, í þessari umferð er fækkað um 15 lykkjur í byrjun á umferð.
* Prjónið 2 umferðir með natur, 2 umferðir með appelsínugulur*, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 54 umferðir.
* Prjónið 2 umferðir með natur, 2 umferðir með appelsínugulur *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sjalið hefur ósamhverfa lögun og prjónað er eftir mynsturteikningu. Það er úrtaka í annarri hliðinni og útaukning í hinni.

SJAL:
Fitjið upp 15 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum natur.
Prjónið eftir A.1 – sjá ör sem sýnir byrjun.
Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Í 7. umferð eru fitjaðar upp 15 nýjar lykkjur í lok umferðar = 30 lykkjur. Haldið áfram með A.1. Í 6. hverri umferð eru fitjaðar upp 15 nýjar lykkjur í lok umferðar. Í byrjun á 55. umferð er lykkjum fækkað yfir fyrstu 15 lykkjur, síðan er lykkjum fækkað í 54. hverri umferð eins og útskýrt er undir dálknum rendur. Haldið áfram með mynstur eins og í A.1 með útaukningu og úrtöku þar til rendur með litnum natur og kirsuber hafa verið prjónaðar til loka – nú hefur fækkað 3 sinnum í hlið og fitjaðar upp nýjar lykkjur 27 sinnum = 375 lykkjur í umferð. Haldið nú áfram án útaukninga og úrtöku þar til allar rendur hafa verið prjónaðar til loka. Fellið síðan af allar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2018
RENDUR:
Skipt er um lit í byrjun á umferð frá röngu:
Prjónið rendur þannig:
Prjónið 1 umferð með natur frá réttu, * Prjónið 2 umferðir með natur, 2 umferðir með sinnepsgulum *, endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið 55 umferðir. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu, í þessari umferð er fækkað um 15 lykkjur í byrjun á umferð.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = fitjið upp 1 nýja lykkju
symbols = fellið af 1 lykkju
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Luisa wrote:

Chiedo scusa ma non mi é chiaro come funziona lo schema. Io monto 15 m con il primo colore, ogni settimo ferro aggiungo 15 m fino ad arrivare a 55 ferri, a questo punto aggiungo 15m con il secondo colore con cui lavoro 54 f, al 55esimo aggiungo 15m del terzo colore e lavoro 6 f etc? Giusto?

12.07.2022 - 00:14

DROPS Design answered:

Buongiorno Luisa, dal 55 ferro deve iniziare ad intrecciare le maglie come indicato. Per il cambio colori deve fare riferimento a quanto riportato nel paragrafo "Strisce". Buon lavoro!

13.07.2022 - 00:09

country flag Luisa wrote:

Buongiorno se voglio farlo più grande, come faccio? Lavoro 2 schemi di seguito?

11.07.2022 - 20:11

DROPS Design answered:

Buonasera Luisa, se vuole lavorarlo più grande può aggiungere delle ripetizioni al motivo. Buon lavoro!

11.07.2022 - 21:58

country flag Torunn Mikkelsen wrote:

Jeg forstår ikke om det skal klippes tråd eller ikke etter økning av 15 masker - det står litt ulikt i kommentarene. Så lurer jeg på om det er kun 2 pinner natur i starten eller er det tre siden det står en pinne før stjernen?

04.05.2021 - 15:56

DROPS Design answered:

Hej Torunn, Hvor i opskriften skriver vi at det skal klippes tråd? Ja du strikker 1.pind med natur fra retsiden og så 2 pinde mere siden du bytter tråd på begynnelsen av en pinne fra vrangen :)

06.05.2021 - 15:45

country flag Eveline wrote:

What you suggest, to change color at RS (this would be row 3 / 5 /7 etc) is not what the pattern tells us to do. It clearly state to change color on wrong side. Knit first 3 rows off white, row 4 golden, row 6 off white, so I should start row 8 with golden. Only then there's no golden tread at the end of the new casts ons.. So maybe what you suggest to change on the RS will make it possible. Do you believe this is a mistake in the pattern? Or am I reading it wrong?

27.01.2021 - 15:29

DROPS Design answered:

Dear Eveline, you are right, my mistake sorry. Colour changes should be from WS - that means you will have to cut the yarn when casting the new stitches, you can cast on either with the colour of the last row from RS worked or then with the colour of the next colour that will be worked from WS. Happy knitting!

28.01.2021 - 08:46

country flag Eveline wrote:

Hello, can you explain how I have to switch form off white to golden rod from row 7 to row 8? On row 7 I have to cast on 15 more stiches working in off white, but have to change to golden rod on row 8. Is there a way or do I have to cut cords every 15 stiches? That would be so terrible. .

26.01.2021 - 16:01

DROPS Design answered:

Dear Eveline, you are working each time 2 rows with the same colour: work row 7 to the end of the row, cast on the new stitches, turn and work row 8 with the same colour. Turn change colour and work the next 2 rows. Colour changes should be at the right side of piece, seen from RS, ie at the beg of row from RS. Happy knitting!

26.01.2021 - 16:41

country flag Yvette wrote:

Ik snap iets niet aan dit patroon. Ik heb de eerste 7 naalden gebreidt (3 naturel, 2 oker, 2 naturel) en moet nu 15 steken aan het eind toevoegen. Maar als ik dan omkeer om rij 8 te breien moet ik overgaan op de okerkleur, echter die zit dan niet daar aan het eind van die nieuwe 15 steken.. Hoe doe je dit? Omdat dit een sjaal is wil ik de draad niet aan de andere kant meenemen, dus iets klopt niet. Hopelijk maak ik mezelf zo duidelijk en kunt u het uitleggen. Vr. gr.

19.01.2021 - 21:33

DROPS Design answered:

Dag Yvette,

Na het opzetten van de 15 steken zul je steeds de draad af moeten knippen om met de andere kleur te beginnen.

23.01.2021 - 10:58

country flag Carol Ibbetson wrote:

Hello again. Just checked the chart key again and realised it is non standard. i.e. a blank square is knit on BOTH sides. This could easily cause issues to a UK knitter who would be used to seeing a 'dot' for a stitch that is knit on the WS. Rest of my comments hold true though - many thanks

15.04.2019 - 16:50

country flag Carol Ibbetson wrote:

From a UK tech editor working on this pattern for a magazine. - chart shows stocking st instead of garter st - Color changes must be made on RS rows in garter st, not WS - Photo should be flipped vertically to match pattern Happy to check any patts if required. Just msg me. Thanks C

15.04.2019 - 16:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ibbeston, the diagram key is correct to this pattern: all stitches should be worked in garter stitch = knit from right side and from wrong side. Happy knitting!

23.04.2019 - 16:01

country flag DS Meyer wrote:

It might be helpful to clarify the chart. The 15 stitches are as folliws, K2tog, knit 5, yo, knit 1, yo, knit5, SKP. I misread the chart before sending my earlier comment.

22.03.2019 - 19:25

country flag DS Meyer wrote:

With both a K2tog and a SKP on every right side row, the original 15 stitches decrease 2 stitches every row; with 1 yarnover, then the stitchs before and after the yarnover change each row. How do you keep 15 stitches and create the chevron look?

22.03.2019 - 18:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Meyer, you will keep 15 sts until row 7 then cast on 15 new sts at the end of row 7- since the number of decrease is compensated by the number of YOs you will keep the same number of sts. Happy knitting!

25.03.2019 - 08:34