DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunset at Sea

Prjónuð peysa í garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.

DROPS 187-31
DROPS Design: Mynstur as-094
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100-125-125-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 17, ljós fjólublár
25-50-50-50-50-50 g litur 15, ljós sægrænn
25-25-25-25-25-50 g litur 06, kórall
25-25-25-25-25-50 g litur 13, gallabuxnablár
25-25-25-25-25-25 g litur 18, kirsuber
ATH: Ef prjóna á flíkina með einum lit þá þarf 175-200-225-225-250-275 g Brushed Alpaca Silk.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 28 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11,5.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 11. og 12. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. 1 umferð í mynsturteikningu = 2 umferðir með garðaprjóni, þ.e.a.s. 2 sléttar umferðir.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2, þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.1 til loka.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Öll peysan er prjónuð fram og til baka í stykkjum og er saumuð saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið aðeins laust upp 92-100-104-112-124-136 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 6-6-6-8-8-8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-10-8-8-12-14 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 84-90-96-104-112-122 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan RENDUR í garðaprjóni – sjá útskýringu að ofan. ATH: Rendur byrja með sléttum lykkjum frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkja fyrir saum) = 86-92-98-106-114-124 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 59-61-63-63-65-67 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu), setjið miðju 38-38-40-42-44-44 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir fyrstu 24-27-29-32-35-40 lykkjur, þ.e.a.s. fram að lykkjum á þræði, snúið stykkinu, fellið af 1 lykkju og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Snúið stykkinu, prjónið 23-26-28-31-34-39 sléttar lykkjur, snúið stykkinu, fellið af 1 lykkju og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 22-25-27-30-33-38 lykkjur eftir á öxl. Setjið axlasaumana á þráð.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir þær 24-27-29-32-35-40 lykkjur sem eftir eru í hinni hlið á hálsmáli, snúið stykkinu, prjónið sléttar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, snúið stykkinu, prjónið 23-26-28-31-34-39 lykkjur slétt, snúið stykkinu, prjónið sléttar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og snúið stykkinu = 22-25-27-30-33-38 lykkjur eftir á öxl.
Setjið nú allar lykkjur til baka á hringprjón 6 (meðtaldar lykkjur af þræði) = 82-88-94-102-110-120 lykkjur. Skiptið yfir í litinn natur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT í þessari umferð eru prjónaðar upp 2 lykkjur í hvorri hlið á hálsi þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli = 86-92-98-106-114-124 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 6-8-6-6-10-12 lykkjur jafnt yfir = 92-100-104-112-124-136 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6-6-6-8-8-8 cm, stykkið mælist nú ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Fitjið aðeins laust upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6-6-6-8-8-8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan RENDUR í garðaprjóni alveg eins og á fram- og bakstykki (rendur byrja með sléttum lykkjum frá röngu). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-3½-3½-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-11-13-13-14 sinnum = 56-60-62-66-68-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-45-43-41-39 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkanti, en skiljið eftir ca 27-27-28-29-30-31 cm fyrir hálsmáli við miðju að framan og við miðju að aftan. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjuboga þannig að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru 6-6-6-8-8-8 cm neðst niðri í hvorri hlið á fram- og bakstykki (= klauf).

Mynstur

symbols = litur gallabuxnablár
symbols = litur ljós fjólublár
symbols = litur natur
symbols = litur ljós sægrænn
symbols = litur kórall
symbols = litur kirsuberjarauður
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Marie Stette wrote:

Hvilken størrelse er det på genseren som blir brukt av modellen på bildet?

29.04.2022 - 21:12

DROPS Design answered:

Hei Marie. Det er str. S eller M. For å finne riktig str til deg, ta en titt på målskissen og ut fra de mål velger du riktig str. mvh DROPS Design

02.05.2022 - 11:51

country flag Susanne wrote:

Er der en grund til at blusen ikke er strikket på rundpind?

19.01.2019 - 06:45

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Akkurat denne modellen er designet for å strikkes frem og tilbake. Men det er ikke noe i veien for at du tilpasser den slik at den kan strikkes rundt om du heller ønsker det. God fornøyesle.

21.01.2019 - 07:35

country flag Chantal LAGOUTTE wrote:

Bonsoir,le fil est -il tricoté seul ou en double ? est ce que le fait de le tricoter seul ne va pas faire un pull trop lâche, et large ?merci pour votre réponse.Bien cordialement Mme LAGOUTTE

16.11.2018 - 20:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lagoutte, on tricote ici avec 1 seul fil Brushed Alpaca Silk sur la base de 15 m x 28 rangs point mousse = 10 x 10 cm pour obtenir l'effet en photo et les mesures du schéma. N'hésitez pas à réaliser votre échantillon pour vérifier les mesures et la texture qui doit être souple. Bon tricot!

19.11.2018 - 07:59

country flag Melody wrote:

In de streep telpatronen, staat 1 blokje dan voor 1 naald? Of staat een blokje voor een ribbel (2 naalden)? Alvast bedankt!

07.06.2018 - 19:22

DROPS Design answered:

Dag Melody, 1 blokje staat voor 1 ribbel (dus voor 2 naalden)

08.06.2018 - 10:55

country flag Jola wrote:

Witam właśnie jestem w trakcie robienia tego sweterka, czy liczba oczek na przód i tył w rozmiarze L została podana właściwie czy nie powinno być 108?. I kolejne pytanie, zbliżając się do dekoltu dodajemy oczka dla rozm. M 8 oczek, co nam daje 100 oczek a co z tymi dwoma na szwy, czy nie powinno się dodać jeszcze 2 oczek? Z góry dziękuję za pomoc, pozdrawiam Jola

24.03.2018 - 13:58

country flag Josée Poirier wrote:

Superbe pour les journées et soirées fraîches. J'adore les couleurs et le style.

16.01.2018 - 17:48

country flag Kathleen St-Onge wrote:

Très beau modèle, j'espère qu'il sera choisi

22.12.2017 - 23:38