DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Season Greetings

Prjónuð peysa / jólapeysa með hringalaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 183-5

#seasongreetingssweater

DROPS Design: Mynstur u-821
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 18, rauður
250-250-300-300-350-350 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 148 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 9,3.
Í þessu dæmi er aukið út á eftir ca 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum er prjónuð ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Það er hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þá verður berustykkið hærra að aftan. Hægt er að sleppa við þessa upphækkun, þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Fram- og bakstykki skiptis við klauf og prjónað er síðan fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 148-148-152-156-160-164 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum rauður. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-20-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 164-168-172-178-184-190 lykkjur.
Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka eða farið áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Prjónið 13-13-14-14-15-15 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið til baka.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 39-39-42-42-45-45 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 52-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið til baka. Haldið áfram með að prjóna yfir 13-13-14-14-15-15 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 104-104-112-112-120-120 lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur aftur fram að miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
= 164-168-172-178-184-190 lykkjur.
Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 og aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör í mynsturteikningu eins og útskýrt er að neðan – lesið MYNSTUR, LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Ör-1: Aukið um 28-28-32-34-40-44 lykkjur = 192-196-204-212-224-234 lykkjur.
Ör-2: Aukið um 24-28-32-32-40-42 lykkjur = 216-224-236-244-264-276 lykkjur.
Ör-3: Aukið um 20-24-28-34-36-40 lykkjur = 236-248-264-278-300-316 lykkjur.
Ör-4: Aukið um 20-24-24-26-36-36 lykkjur = 256-272-288-304-336-352 lykkjur.
Ör-5: Aukið um 28-28-24-20-24-20 lykkjur = 284-300-312-324-360-372 lykkjur.
Ör-6: Aukið um 22-24-18-24-18-18 lykkjur = 306-324-330-348-378-390 lykkjur.

STÆRÐ S - M:
Lesið áfram frá ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ L - XL:
ÖR-7: Aukið um 12-18 lykkjur = 342-366 lykkjur.

STÆRÐ XXL:
ÖR-7: Aukið um 18 lykkjur = 396 lykkjur.
ÖR-8: Aukið um 12 lykkjur = 408 lykkjur.

STÆRÐ XXXL:
ÖR-7: Aukið um 18 lykkjur = 408 lykkjur.
ÖR-8: Aukið um 18 lykkjur = 426 lykkjur.
ÖR-9: Aukið um 14 lykkjur = 440 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið til og með síðustu umferð í þinni stærð. Stykkið mælist ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti (ef þessu máli hefur ekki verið náð er haldið áfram án útaukninga að réttu máli – en ekki lengra en að næst síðustu umferð í A.1 – stillið af að næsta umferð sem á að prjóna eftir að réttu máli hefur verið náð sé prjónuð einungis með einum lit).
Prjónið næstu umferð í A.1 þannig: Prjónið 47-48-50-56-63-68 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-72-72-78-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= hlið), prjónið 93-96-99-111-126-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-72-72-78-84 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur (= hlið) og prjónið síðustu 46-48-49-55-63-68 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 198-204-210-246-276-296 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-12-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 99-102-105-123-138-147 lykkjur á fram- og bakstykki) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið síðan áfram til og með síðustu umferð í A.1 í öllum stærðum. Þegar A.1 er lokið á hæðina er prjónuð 1 umferð með litnum rauður þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 196-206-216-246-272-292 lykkjur.
Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 þannig: ** Prjónið A.2a (= 5 lykkjur), * A.2b (= 18 lykkjur), A.2c (= 1 lykkja) *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, prjónið A.2b (= 18 lykkjur), prjónið * A.2d (= 5 lykkjur), A.2e (= 5 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 1-2-2-4-1-2 sinnum, prjónið A.2d (= 5 lykkjur) alls 1-0-1-0-1-1 sinni, prjónið A.2f (= 18 lykkjur), prjónið * A.2c (= 1 lykkja), A.2f (= 18 lykkjur) * prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum og prjónið A.2g (= 4 lykkjur) **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram þar til A.2 er lokið á hæðina.
Prjónið 1 umferð með litnum rauður og jafnið lykkjufjöldann til 198-204-210-246-276-294 lykkjur með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir.
Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (= 33-34-35-41-46-49 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í umferð merktri með ör er lykkjufjöldinn jafnaður til 196-204-212-248-276-296. Haldið áfram þar til A.3 er lokið á hæðina (= 49-51-53-62-69-74 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Héðan er prjónað sléttprjón með litnum rauður. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-33-33 cm frá prjónamerki er stykkinu skipt upp í hlið fyrir klauf og fram- og bakstykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 99-102-105-123-138-147 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-43-43 cm, skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 23-24-25-31-32-35 lykkjur jafnt yfir = 122-126-130-154-170-182 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið svona í 2 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4,5 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 42-43-44-45-45-45 cm.

FRAMSTYKKI:
= 99-102-105-123-138-147 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring.
Setjið til baka lykkjur af þræði á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi (haldið áfram með mynstureiningu A.1 eins og áður) = 66-72-78-84-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (= mitt í 6-6-6-12-12-12 lykkjum sem prjónaðar voru upp mitt undir ermi) – hér byrjar næsta umferð.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-14-16-18-20-22 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Haldið áfram hringinn eftir A.1 yfir allar lykkju þar til mynstureiningin er lokið á hæðina.
Setjið 1 prjónamerki mitt ofan á ermi = miðju lykkja. ATH: Prjónið nú mynstureiningu A.4, en vegna fækkun lykkja mitt undir ermi verður að stilla mynstrið af, það er gert þannig: Teljið út lykkjur hvoru megin við miðjulykkju ofan á ermi og stillið af hversu margar lykkjur eru í fyrstu mynstureiningu af A.4a í umferð og hversu margar lykkjur eru í síðustu mynstureiningu í umferð af A.4c. Þ.e.a.s. prjónið mynstur þannig: Prjónið þann fjölda lykkja sem er pláss fyrir í A.4a, prjónið A.4a (= 19 lykkjur), A.4b (= 9 lykkjur, sjá stjörnu í mynsturteikningu = miðjulykkja), A.4c (= 19 lykkjur) og prjónið þann fjölda lykkja sem er pláss fyrir í A.4c.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 – stillið af að fyrsta lykkja í mynsturteikningu verði mitt ofan á ermi. Þegar A.3 er lokið á hæðina er haldið áfram í sléttprjón og með litnum rauður. Þegar stykkið mælist 38-38-38-37-35-34 cm frá prjónamerki mitt undir ermi er skipt yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónuð er 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-42-41-39-38 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.09.2018
Leiðrétting á mynsturteikningu A.3

Mynstur

natur = natur
rauður = rauður
útaukningsumferð = útaukningsumferð
síðasta umferð áður en prjónuð er 1 umferð að skiptingu á fram- og bakstykki + ermar = síðasta umferð áður en prjónuð er 1 umferð að skiptingu á fram- og bakstykki + ermar
miðjulykkja á ermi = miðjulykkja á ermi
Diagram for DROPS 183-5
Diagram for DROPS 183-5
Diagram for DROPS 183-5

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Ashley skrifaði:

For the sleeves, shouldn’t I be starting with A4 to match the body?

30.11.2019 - 19:50

DROPS Design svaraði:

Dear Ashley, on the body you first finished A.1 then work A.2 (the reindeers), on the sleeves, you first finish A.1 then work A.4 (the reindeers). Happy knitting!

02.12.2019 - 09:45

country flag Wendy skrifaði:

Which yarn alternative would you suggest for a person allergic to wool?

22.01.2019 - 21:43

DROPS Design svaraði:

Dear Wendy, try our yarn converter to see all alternatives - you can then click on each yarn to read more and choose colours. Happy knitting!

23.01.2019 - 09:26

country flag Brigitte skrifaði:

Auf der deutschen Drops Facebook Seite habe ich ein Foto gepostet mit den Raporten in der Reihenfolge wie es in der Anleitung steht. Völlig falsch. Die Raporte 2 d und 2 e kommen so auf dem Bild gar nicht vor. Stricken lassen und korrigieren. Habe mir alles zusammgebastelt damit es so aussieht wie auf dem Bild.

23.11.2018 - 13:34

DROPS Design svaraði:

Liebe Brigitte, in allen Grössen haben Sie auf beiden Seiten A.2d und A.2e und 2. A.2d (vor A.2f) nur nicht in den 2. und 4. Grösse. Diese Diagramme kann man auf dem Bild hier nicht sehen, da sie auf die Seiten sind. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2018 - 15:33

country flag Brigitte skrifaði:

Hallo,habe diesen Pullover endlich beendet. Leider ist die Anleitung nach der Ärmeltrennung mit dem Raport Hirsch und Tannenbäume völlig falsch. Habe das Gefühl das ihr die Anleitungen nur ins deutsche übersetzten lässt aber nicht gleichzeitig von der gleichen Person Probestricken lässt. Denn dann würden ihr von den Fehlern wissen. Ihr habt wirklich schöne Anleitungen. Leider habe ich bisher nur Anleitungen von Euch mit Fehlern gehabt.

22.11.2018 - 17:30

DROPS Design svaraði:

Liebe Brigitte, können Sie uns bitte mehr darüber sagen, welche Grösse Sie gestrickt haben, und wo genau es falsch sein sollte, damit wir die Anleitung neu mal schauen - haben Sie auch gesehen, daß A.3 im September korrigiert wurde?

23.11.2018 - 11:14

country flag Sandra skrifaði:

Hallo, meine Maschenprobe glatt re gestrickt hat gepasst. Jetzt beim in Runden stricken und mit 2 Farben habe ich eine Maschenzahl von 21 und eine Reihenzahl von 23. Muss das so sein? Lieben Dank im voraus

25.10.2018 - 06:01

DROPS Design svaraði:

Liebe Sandra, die Maschenprobe muss dieselbe sein, versuchen Sie mit dickeren Nadelstärke, damit die Maschenprobe korrekt bleibt. Viel Spaß beim stricken!

25.10.2018 - 08:48

country flag Sandra skrifaði:

Hallo, wenn ich bei Größe S Ärmel nach den Abnahmen noch 42 M habe, welche Masche ist dann meine Mittelmasche für A4? Die Mitte wäre ja genau zwischen je 21 M und somit keine Masche die ich in A. 4b stricken kann? Lieben Dank im voraus für die schnelle Hilfe

22.10.2018 - 13:23

DROPS Design svaraði:

Liebe Sandra, Sie können die 21. Masche als Mittelmasche nehmen, bei der 2. Ärmel spiegleverkehr kalkulieren. Viel Spaß beim stricken!

22.10.2018 - 14:25

country flag LauraK skrifaði:

Hallo liebes Drops Team, ab wann sollte man denn zur langen Rundnadel 4,5 wechseln? Wozu braucht man die lange 3,5? Und wie ist das bei den Ärmeln zu verstehen? Um auf die 66 Maschen zu kommen muss man die kompletten 6 extra angeschlagenen Maschen mit aufnehmen, oder? Wie funktioniert das? Gibt es hierzu ein Video? Danke und LG

11.10.2018 - 09:16

DROPS Design svaraði:

Liebe Laura K, Sie fangen mit den 40 cm Rundnadel 4,5 für den Hals, dann werden Sie für die Rundpasse regelmäßig zunehmen - nach und nach bekommen Sie zuviele Masche für die 40 cm Rundnadel, dann wechseln Sie zu der längeren Nadeln. Die 80 cm Rundnadel 3,5 brauchen Sie für das Bündchen unten am Rücken- bzw Vorderteil. Für die Ärmel werden 60 M stillgelegt dann werden 6 neuen Maschen in den 6 am Rumpfteil angeschlagten Maschen aufgenommen = 66 M. Siehe hier (ca 6:35) wie man die Ärmel strickt. Viel Spaß beim stricken!

11.10.2018 - 10:12

country flag Henriette Nielsen skrifaði:

Men når jeg tager nye masker ud så bliver mønsteret skævt. selve diagrammet ser således ud: 1 omgang: 5 hvide og 1 grå. \\\\r\\\\n2. Omgang: 1 grå, 3 hvide, 3 grå osv og slut omgangen med 2 grå. (På denne omgang skal jeg tage 1 maske ud i første maske og 1 maske i anden sidste maske.\\\\r\\\\n3. Omgang: 2 grå, 1 hvid, 5 grå osv og slut med 3 grå. \\\\r\\\\n4.-6. Omgang: hele omgangen grå. Hvordan skal jeg strikke de nye masker?

16.03.2018 - 18:44

country flag Le Floch skrifaði:

Bonjour, ce n'est pas forcément sue ce modèle que je me pose des questions mai je cherche des modèles tricot aux aiguilles non circulaires.Y en a t'il sur votre site, je viens de le découvrir et le trouve fabuleux Merci

14.02.2018 - 21:18

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Le Floch, tout à fait, en fonction du modèle, on va tricoter en rond sur aiguille circulaire ou bien en allers et retours. Vous trouverez quelques informations utiles ici. Bon tricot!

15.02.2018 - 09:50

country flag SWer skrifaði:

Hallo, Ich stricke gerade diesen Pullover in Größe L und bin beim Muster A2 und frage mich ob das Muster nicht wie folgt lauten müsste: g,f,c,f,d,e,d,e,d,b,c,b,a und nicht wie folgt in der Anleitung geschrieben: a,b,c,b,d,e,d,e,d,f,c,f,g ?! Freue mich auf eine schnelle Antwort. Viele Grüße!

05.12.2017 - 21:32

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Swer, die Diagramme sind so richtig, Sie stricken von oben nach unten und von der Mitte am Rückenteil, so beginnt man mit a (Mitte am Ruckenteil) bis g (Mitte am Vorderteil) und noch einmal wiederholen von a bis g wie geschrieben. Viel Spaß beim stricken!

06.12.2017 - 09:30