DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 183-7
DROPS Design: Mynstur la-034
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 150 g DROPS Lace og 150 g DROPS Kid-Silk.

HÁLSKLÚTUR:
Mál:
Lengd: ca 154 cm.
Breidd ca 50 cm.

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 3620, rauður
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 14, rauður

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 56/58 cm

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 3620, rauður
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 14, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Hálsklútur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.13 til A.15.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring í ferning á sokkaprjóna/hringprjón með byrjun frá miðju á hálsklút. Þegar ferningurinn hefur verið prjónaður til loka á breiddina þá er hálsklúturinn tilbúinn og fellt er af í tveimur hliðum. Síðan er prjónað áfram fram og til baka út að hvorri af hinum tveimur hliðunum.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjón 3 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat) = 16 lykkjur.
Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 4 sinnum í umferð – lesið MYNSTUR að ofan. Skiptið yfir á hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka eru 128 lykkjur í umferð.
Setjið 4 prjónamerki án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun umferðar, 2. prjónamerki eftir 32 lykkjur, 3. prjónamerki eftir 32 lykkjur og setjið 4. prjónamerkið eftir 32 lykkjur, láið síðan prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) * , prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 60 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 240 lykkjur í umferð).
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 56 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 88 lykkjur á milli prjónamerkja (= 352 lykkjur í umferð).
Prjóni nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur til og með 12. umferð (= umferð með ör í mynsturteikningu). Nú eru 102 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 408 lykkjur í umferð).
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * haldið áfram með 13. umferð, umferð í A.2/A.3/A.4 fram að næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 9 lykkjur), A.6 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.7 (= 9 lykkjur), prjónamerki*, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur þar til 2 umferðir eru eftir í mynsturteikningu. Prjónið næstu umferð í mynstri, en hoppið yfir fyrstu 2 uppslætti í A.2 og hoppið yfir síðasta uppslátt í A.4 (sjá stjörnu í mynsturteikningu).
Síðasta umferð i mynstri er prjónuð þannig:
ATH: Hoppið yfir 2 fyrstu rúður í A.2 og hoppið yfir síðustu rúðu í A.4.
Prjónið frá 1. og 2. prjónamerki og setjið 113 lykkjur á þráð (= hluti-1).
Prjónið að 3. prjónamerki og setjið 113 lykkjur á þráð (= hlið).
Prjónið að 4. prjónamerki og setjið 113 lykkjur á þráð (= hluti-2).
Prjónið að 1. prjónamerki = 113 lykkjur í umferð (= hlið).
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni hvoru megin við þessar lykkjur í 1½ cm.
Fellið laust af – lesið AFFELLING að ofan. Setjið 113 lykkjur frá hinni hliðinni (= frá 2. og 3. prjónamerki) á hringprjón 3. Byrjið frá röngu og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni hvoru megin við þessar lykkjur í 1½ cm. Fellið laust af. Ferningurinn mælist ca 50 cm á breidd og 47 cm á hæð.

HLUTI-1:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.
Setjið 113 lykkjur af hluta 1 á hringprjón 3 og setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið upp 4 lykkjur í kant í garðaprjóni í hlið, prjónið A.8 (= 14 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.9 (= 15 lykkjur) og prjónið upp 4 lykkjur í hlið í garðaprjóni í hlið = 121 lykkjur. Þær 4 lykkjur sem eru í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 47 cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu á hæðina.
Prjónið nú mynstur þannig frá réttu: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, A.10 (= 14 lykkjur), A.11 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.12 (= 15 lykkjur og 4 lykkjur garðaprjón. Þegar mynstureining hefur verið prjónuð til loka á hæðina prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið laust af. Stykkið mælist ca 52 cm.

HLUTI-2:
Stykkið er prjónað alveg eins og hluti-1. Þ.e.a.s. setjið 113 lykkjur frá hluti-2 á hringprjón 3 og setjið 1 prjónamerki. Byrjið á að prjóna upp lykkjur í hlið í garðaprjóni og prjónið mynstur eins og hluti-1.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring í ferning á sokkaprjóna/hringprjón, ofan frá og niður.

HÚFA.
Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjón 3 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat) = 16 lykkjur. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 4 sinnum í umferð – lesið MYNSTUR að ofan. Skiptið yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur hafa verið auknar út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka eru 128 lykkjur í umferð. Nú er mynstrið prjónað þannig: Prjónið * A.13 (= 3 lykkjur), A.14 (= 14 lykkjur) og A.15 (= 15 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 168 lykkjur í umferð. Færði byrjun á umferð til um 1 lykkju til vinstri. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið A.14 yfir allar lykkjur (= 12 mynstureiningar með 14 lykkjum). Prjónið mynsturteikningu til loka 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 46 lykkjur jafnt yfir = 122 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 3 cm og fellið laust af – lesið AFFELLING að ofan. Stykkið mælist ca 24 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.01.2019
Leiðrétting: HÁLSKLÚTUR:..Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * haldið áfram með 13. umferð, umferð í A.2/A.3/A.4 fram að næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 9 lykkjur), A.6 yfir næstu 84 lykkjurnar (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.7 (= 9 lykkjur), prjónamerki*, prjónið frá *-* alls 2 sinnum.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.09.2023
Leiðrétting í mynsturteikningu A.13 og A.15 frá 12. umferð.

Mynstur

symbols = sl?tt fr? r?ttu, brug?i? fr? r?ngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = 2 lykkjur brugðnar saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = vísað er í síðustu 2 umferðirnar í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Coal hot

Marina, Italy

Hot Coal

Sonja, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Anna wrote:

Jag avser, som det står i min fråga, diagram 3, 8 och 9 där antalet maskor enligt rad 21 inte stämmer med rad 22.

13.03.2024 - 17:16

country flag Anna Christina Logren wrote:

När jag stickar del 1 får jag inte ihop mönstret på rad 22 (diagram 8 + 3 + 9) utan har en rätmaska för mycket i vardera sidan. Maskantalet på varv 21 stämmer, men om jag sedan stickar varv 22 enligt diagrammen så förskjuts hela mönstret "ett steg åt sidan" - jag har helt enkelt en rätmaska för mycket i varje sida. Är det bara jag som inte ser en grov miss eller borde det minskas ytterligare två maskor totalt på varv 21?

07.03.2024 - 21:37

DROPS Design answered:

Hej Anna, hur många maskor har du og vilket diagram stickar du? Så skall vi titta på varv 21 och 22 :)

13.03.2024 - 15:35

country flag Rikke wrote:

Der er en fejl i diagram A8 og A9, omgang 21. Tæller du det samlede antal masker sammen, så har du to masker for meget. Der burde være angivet to ret sammen i stedet for to ret i starten af omgang 21 i diag. A8 Ligeledes to ret drejet sammen i stedet for 2 ret i slutningen af omgang 21 i diag. A9. Følger du diagrammet, som det er nu, så har du for mange masker på de følgende pinde. Kan se at der er en norsk kvinde, der påpegede samme fejl tilbage i dec '21.

08.09.2023 - 15:38

country flag Anne wrote:

Bonjour, je crois qu'il y a une erreur au 21ème rang de A9 et A8. A la fin de ce rang, on obtient 123 mailles et non plus 121. Je pense qu'il manque une réduction (deux mailles ensemble au début de A8) et à la fin de la A9 (Un glissé d'une maille endroit passée ensuite).

25.04.2022 - 18:14

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, les diagrammes vont se chevaucher sur ce rang, ainsi, lorsque vous tricotez A.8, la dernière maille de ce rang va se tricoter avec les 2 premières mailles du motif suivant (A.3, 1ère partie), et les la dernière maille du dernier A.3 va se tricoter avec les 2 premières mailles de A.9, ainsi le nombre de mailles tombe juste. Bon tricot!

26.04.2022 - 10:14

country flag Vineeta Bhandari wrote:

Please can you send me written instructions preferably for knitting on two straight needles. Thank you

21.04.2022 - 05:50

country flag Lily wrote:

Når det står at kast skal hoppes over i A.2 og A.4, er det ikke da kast for mye i A.5 og A.7 (de 2 første i A.5 og siste i A.7 er vel feil) for at masketallet skal gå opp? Og, er det feil i A.8 og A.9? Burde det ikke vært 2 r sm istedet for 2 r i starten av A.8, (og tilsvarende 2 sammen i slutten av A.9) i omg 21? Og, burde det ikke noen av 2 vr sm i A.5-A.7 vært bytta ut med rett sammen (slik at det blir mer som i A.10-A.12)?

13.12.2021 - 19:43

DROPS Design answered:

Hej Lily, vi har ikke hørt at det skal være fejl i opskriften. Hvis du opdager en fejl, så skriv nøjagtig hvor du er i opskriften, hvor mange masker du har og hvilken pind i diagrammet som ikke stemmer. På forhånd tak !

27.01.2022 - 10:16

country flag Jette Krog wrote:

Hej Jeg forstår ikke starten på opskriften- der står man skal strikke rundt på strømpepinde - skal der ikke strikkes frem og tilbage? Det jo ikke et rør?

30.07.2021 - 16:29

DROPS Design answered:

Hej Jette, sjalet er strikket rundt fra midten og ud - se her: TØRKLÆDE: Arbejdet strikkes rundt i firkant på strømpepinde/rundpind med start fra midten af tørklædet. Når firkanten er færdig er bredden på halstørklædet nået, og der lukkes af i 2 af siderne. Derefter fortsættes der frem og tilbage ud mod hver af de 2 andre sider.

06.08.2021 - 14:21

country flag Liz wrote:

This pattern is very pretty and I would like to continue making it into a large square and not go back and forth, which graph would be best to follow, I can make adjustments as needed, thank you

31.05.2021 - 07:49

DROPS Design answered:

Dear Liz, if you like to get a large square, you just have to continue working A.2, A.3 and A.4, increasing the number of A.3 worked between A.2 and A.4 every time you have worked the diagrams in height. Happy knitting!

31.05.2021 - 08:16

country flag Martine ANNE CALLE wrote:

Bonjour, je vous remercie pour votre réponse Martine

09.03.2021 - 18:30

country flag Martine Callé wrote:

Bonjour je me permets de vous relancer sur le diagramme 13- 14 -15 du bonnet ( je vous avez écrit le 23/02) avez vous pu trouver le problème ? je dois donner le bonnet dimanche 14 aurais je le temps de le finir ? merci d'avance

08.03.2021 - 10:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Callé, au 11ème rang des diagrammes, ne faites pas le 1er jeté de A.13 ni le dernier de A.15 - au tour suivant, la dernière maille envers de A.15 va devenir la 1ère maille de A.13 - ainsi les diagrammes vont tomber juste - une correction sera faite plus tard. Merci pour votre patience et bonne continuation!

09.03.2021 - 13:25