Alexandra Tolk skrifaði:
Når arbeidet måler 9-13-17 cm - er det med eller etter halsen? Mvh Alexandra
09.03.2024 - 16:00DROPS Design svaraði:
Hej Alexandra, det er hele arbejdet som skal måle 9-13-17 cm :)
13.03.2024 - 15:15
Maria skrifaði:
Hej! Jag har kört fast efter att ha stickat de 23 maskorna och lagt på tråd till framstycke. Jag kan inte förstå hur jag gör med frambenen??!!
16.09.2022 - 12:07DROPS Design svaraði:
Hei Maria. Du har 23 masker på 1 tråd og 83 masker på pinnen (str. M), så skal du nå strikke frem og tilbake over de 83 maskene (ryggstykke) til arbeidet måler 27 cm. Deretter skal magestykket strikkes. Sett de 23 maskene fra tråden tilbake på pinnen og strikk mønster frem og tilbake – like mange pinner som på ryggstykket. Sette alle maskene på samme rundpinne igjen og nå strikkes det rundt igjen. Det er 2 hull til forbeina som skal strikkes ferdig senere. Ta en titt her, lignende teknikk: Översikt hur hundtröjan i DROPS 102-43 stickas - steg för steg mvh DROPS Design
19.09.2022 - 09:47
Joy Fink skrifaði:
With the dog jumper. I see where you cast off for the front legs but cannot find where you do the same for the back leg. Can you help please? Thank you
02.03.2022 - 10:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Fink, there is no cast off for back legs, only for the both front legs - this video shows (for another pattern) how to work a dog coat, it might help you. Happy knitting!
03.03.2022 - 10:49
Sven skrifaði:
Ich suche jemand, der mir als Auftragsarbeit diesen Pullover für meinen Hund fertigen kann - natürlich bezahle ich das. Bei Interesse gerne melden. LG Sven
24.11.2021 - 18:40DROPS Design svaraði:
Lieber Sven, gerne können Sie sich entweder an einem DROPS Laden wenden, oder in unserem DROPS Worskhop fragen.
25.11.2021 - 08:47
Frankie skrifaði:
Comment faire le jaquard si j’ai seulement 47 mailles et il y a 12 mailles ?
09.07.2021 - 21:13
Frankie skrifaði:
J’ai 47 mailles pour le dos ( xs) le jacquard est de 12 mailles . Je fais quoi avec le jacquard pour commencer
09.07.2021 - 21:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Frankie, continuez le jacquard comme avant au-dessus de ces 47 m, autrement dit, vous commencez ces 47 m par la 2ème maille du 2ème motif (les mailles du premier motif sont en attente) et terminez le rang comme avant, sur l'envers, lisez le diagramme de gauche à droite, le dernier motif se terminera par les 11 m du diagramme (lues de gauche à droite). Bon tricot!
12.07.2021 - 07:11
Kristin skrifaði:
Hei! Skal det være 11 masker på magestykket i både størrelse ekstra small og small?
08.11.2020 - 22:44DROPS Design svaraði:
Hei Kristin, Ja, det skal være 11 masker i begge størrelser. God fornøyelse!
09.11.2020 - 09:51
Kristin skrifaði:
Er det riktig at det skal være 11 masker på magestykket på både på ekstra small og small?
08.11.2020 - 22:17
Caroline Larose skrifaði:
J’aimerais savoir comment faire le Jacquard en taille S pour le dos si j’ai 71 mailles au lieu de 72 car le motif A1 a 12 mailles donc 6x le motif
17.10.2020 - 05:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Larose, vous tricotez désormais A.2 comme avant en commençant le 1er A.2 du rang par la 2ème maille du diagramme, et répétez les autres motifs comme avant. Sur l'envers, lisez bien les rangs de gauche à droite et terminez les rangs envers par l'avant-dernière maille de A.2. Bon tricot!
19.10.2020 - 10:31
Miele skrifaði:
Bonjour, Merci pour votre réponse. Mais pour que je sois sûre, la taille XS et S sont identiques;5cms et la taille M; 10 cms? Merci encore et votre site est génial!!
08.09.2020 - 11:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Miele et merci :) Dans les 2 tailles vous avez 11 mailles pour le devant = le dessous, côté ventre, vous aurez donc bien 5 cm pour les 2 tailles (sur la base des 22 m = 10 cm de la tension) - en revanche, vous avez plus de mailles pour le dos: 47 en XS et 71 en M. Bon tricot!
08.09.2020 - 12:46
Narvik Woof#narvikwoofdogsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð XS - M.
DROPS 185-34 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 6,5. Í þessu dæmi þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Þegar A.1 er lokið á hæðina er prjónað áfram með litnum ljós grár og sléttprjóni til loka. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna frá hálsmáli á og niður að opi fyrir framfætur. Stykkið skiptist síðan við framfætur og bakstykki og magastykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan er prjónað í hring niður yfir bak- og magastykki, síðan er prjónað fram og til baka niður að skotti. Kantur í kringum op fyrir framfætur er prjónaður í lokin í hring á sokkaprjóna. PEYSA FYRIR HUND: Fitjið upp 52-72-92 lykkjur á sokkaprjón 3 (hringprjón í stærð M) með litnum rauður Merino Extra Fine. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6-8-10 cm = hálsmál. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 (hringprjón í stærð M) og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 8-12-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 60-84-108 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 (= 5-7-9 mynstureiningar með 12 lykkjum) – lesið MYNSTUR og LEIÐBEININGAR að ofan. Þegar stykkið mælist 9-13-17 cm fellið af fyrir opi fyrir framfætur þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 9-9-21 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, setjið þessar 11-11-23 lykkjur á þráð (= magastykki) og prjónið umferðina út (= bakstykki). BAKSTYKKI: = 47-71-83 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka á sokkaprjóna/hringprjóna þar til stykkið mælist 15-21-27 cm, endið eftir eina umferð frá röngu. Opið fyrir framfætur mælist nú ca 6-8-10 cm – setjið lykkjurnar á þráð. MAGASTYKKI: Setjið til baka 11-11-23 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið mynstur fram og til baka – prjónaðar eru jafn margar umferðir og á bakstykki. PEYSA: Setjið aftur allar lykkjur á sama sokkaprjón/hringprjón og fitjið að auki upp 1 nýja lykkju hvoru megin á milli bak- og magastykkis = 60-84-108 lykkjur. Haldið áfram með mynstur, þegar mynsturteikning A.1 er lokið á hæðina er haldið áfram með litnum ljós brúnn. Þegar stykkið mælist alls 19-27-35 cm fellið af miðju 9-13-17 lykkjur mitt undir maga og stykkið er nú prjónað fram og til baka = 51-71-91 lykkjur. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-2-3 sinnum, 1 lykkju 8-9-10 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 21-31-41 lykkjur eftir í umferð. Stykkið mælist ca 27-37-47 cm. FRÁGANGUR: Prjónið upp lykkjur í kringum affellingarkant með litnum ljós brúnn á sokkaprjón/hringprjón 3 þannig að það verða ca 84-108-140 lykkjur í kringum neðri kant á peysu. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½-3-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Prjónið upp ca 36-44-52 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum ljós brúnn í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4-6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #narvikwoofdogsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.