DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Narvik

Settið samanstendur af: Peysu með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Húfa með marglitu norrænu mynstri og dúsk. Settið er prjónað úr DROPS Karisma.

DROPS 183-2
DROPS Design: Mynstur u-834
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca:
450-500-550-600-650-700 g litur 44, ljós grár
150-150-150-150-200-200 g litur 01, natur
50-50-50-100-100-100 g litur 48, vínrauður

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-450-500-550-600-700 g litur 44, ljós grár
100-100-150-150-150-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 48, vínrauður

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50 g litur 44, ljós grár
50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 48, vínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæðina.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæðina.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,4.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist göt.
Ef fækka á lykkju þá er prjónuð ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka á peysu):
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum vínrauður og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-16-17 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-30-32-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-45-48-51 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-75-80-85 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-90-96-102 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef að það herpist saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjiið upp 96-99-105-108-111-117 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 28-33-39-40-41-43 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 124-132-144-148-152-160 lykkjur.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að ofan.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR! Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 31-33-36-37-38-40 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð merktri með ör í A.1 eins og útskýrt er að neðan – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð með ör-1 er aukið út um 28-32-36-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 152-164-180-184-188-200 lykkjur.
Í umferð með ör-2 er aukið út um 24-28-36-32-36-36 lykkjur jafnt yfir = 176-192-216-216-224-236 lykkjur.
Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 200-216-244-244-256-272 lykkjur.
Í umferð með ör-4 er aukið út um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 224-240-272-272-288-304 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 prjónað hringinn (= 14-15-17-17-18-19 mynstureiningar með 16 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 280-300-340-374-396-418 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 og aukið jafnframt út 2-6-2-4-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð með ör-5 í A.2 = 282-306-342-378-396-420 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 47-51-57-63-66-70 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð með ör-6 í A.3 er aukið út um 6-14-6-2-4-4 lykkjur jafnt yfir = 288-320-348-380-400-424 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23-23-23-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina er þetta mál náð í stærð S þegar A.3 hefur verið prjónað til loka).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-56-60-65 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-112-120-130 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-50-56-60-65 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-220-244-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum og prjónið síðan sléttprjón með ljós grár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð (ca 3. hverjum cm) alls 9 sinnum í hvorri hlið = 220-236-256-280-300-324 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-46-50-56-60-66 lykkjur jafnt yfir = 264-282-306-336-360-390 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju JAFNFRAMT er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 3-2-2-3-2-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-8-6-7-8-6 lykkjur jafnt yfir = 51-54-54-57-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Ermin mælist ca 43-42-40-39-38-36 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 111-117-123 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-5-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-112-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.4 (= 27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.4 er fækkað um 0-4-2 lykkjur jafnt yfir = 108-108-114 lykkjur. Prjónið síðan A.3 hringin (= 18-18-19 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 16-17-17 cm. Haldið áfram í sléttprjóni og í litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 18-19-20 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið með 18-18-19 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 10 sinnum í öllum stærðum = 12 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-26-28 cm ofan frá og niður.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 8 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn efst á húfuna.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat.
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Narvik

Marie, Germany

Narvik and Narvik Woof

Laura M Levesque, United States

Narvik

Pam, United Kingdom

Narvik

Runa, Norway

Narvik

Olivia, Sweden

The Narvik jumper

@oliviaenroth, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Helene Gartmann wrote:

Jeg har strikket mange Narvik-gensere i herre- og barnestørrelser. Kan ikke huske at det har vært så stor økning i vidden nedover bolen som det er på dame-modellen. Det ble som en veldig kort tunika. Ble ikke fint. Må rekke opp og strikke bolen på nytt.

09.04.2023 - 21:31

country flag Helene Gartmann wrote:

Sorry! Nå kom målskissen fram.

11.12.2022 - 16:45

DROPS Design answered:

Så bra. mvh DROPS Design

12.12.2022 - 14:31

country flag Helene Gartmann wrote:

Jeg finner ikke målskissen til dette mønsteret. Da blir det vanskelig å finne rett størrelse.

11.12.2022 - 16:43

DROPS Design answered:

Hei Helene. Så bra at den dukket opp. Om nettleseren din har litt problemer / treigt nett kan det ta litt tid å laste ned om diagrammene er store. mvh DROPS Design

12.12.2022 - 14:31

country flag Lolo Sörelius wrote:

Hej igen Jag ställde en fråga den 19/2-22 angående mönstret , men har tyvärr inte fått något svar.

02.03.2022 - 10:18

country flag Lolo Sörelius wrote:

Hej jag stickar storlek M, jag har stickat oket klart och gjort ökat 4 maskor i sidorna 9 gånger = 235 m. Då är tröjan lagom i storlek. När jag sedan gör sista ökningen med 46 maskor jämnt fördelat blir tröjan jätte, jätte bred, dvs över 64 cm. Hur hänger det ihop? Mönstret har tidigare stämt så att tröjan passat bra som en medium!

19.02.2022 - 14:06

country flag Brisli wrote:

Bonjour, Pouvez-vous m’expliquer les diminutions « 6 fois tous les 2 tours et 10 fois tous les tours » pour terminer le bonnet modèle 183-2 en taille small. Est-ce que je dois faire 2 diminutions sur un même tour? Merci

18.12.2021 - 19:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brisli, pour le bonnet, vous devez diminuer 6 mailles (= 1 maille après chacun des fils marqueurs) ainsi: *tricotez 1 tour en diminuant, 1 tour sans diminuer*, répétez de *-* 6 fois au total, puis tricotez 10 tours en diminuant à chacun de ces tours. Bon tricot!

20.12.2021 - 07:29

country flag Gerd wrote:

Jeg strikker genseren i str L. Økningene er greit forklart helt til jeg kommer til A2. Da skjønner jeg ikke hvordan jeg skal få 342 masker. Er det økninger der det er markert med tykkere streker og det blir utvidelse i diagrammet?

01.09.2021 - 16:30

DROPS Design answered:

Hei Gerd, Økninger er 1 kast (sort runding) på siden av mønsteret (motsatt siden for hver gang). Du har 272 masker før du begynner A.2 og har 17 x A.2 på omgangen som betyr 17 nye masker hver øke-omgang. Du øker 4 ganger i A.2: 4 x 17 = 68, 272 + 68 = 340. Etter det øker du 2 masker jevnt fordelt og da blir det 342 masker. God fornøyelse!

03.09.2021 - 09:35

country flag Patricia wrote:

Je vous remercie pour votre réponse mais je pense que nous ne sous sommes pas comprises. Il s'agit de l'augmentation du 23 ème rang sur le shéma A2 taille S, M , L . Le rang se termine par 3 mailles en naturel suivi d'une augmentation (un jeté).

20.11.2020 - 15:49

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia et oops je vais retourner apprendre à compter... effectivement au rang 23 de A.2, taille S,M,L on tricote en naturel avec le motif en gris clair , les jtés vont se faire en naturel et ces jetés vont se tricoter en naturel au tour suivant - de même pour la toute dernière augmentation de A.2, vous faites 1 jeté en naturel (= avec la couleur du fond de ce motif). Bon tricot!

20.11.2020 - 16:12

country flag Patricia wrote:

Bonjour, L' avant dernière augmentation du schéma A2 pour taille S M L de quelle couleur se tricote t'elle svp ? en gris ou en naturel ?? Habituellement les jetés correspondants aux augmentations se font sur un rang de couleur unique .... Merci pour votre réponse

18.11.2020 - 21:55

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, comme on augmente avec des jetés sur un rang tricoté en gris clair, on va faire les jetés des augmentations en gris clair, au tour suivant, ces jetés seront tricotés torse à l'endroit en naturel. Bon tricot!

19.11.2020 - 10:06

country flag Anu wrote:

Hei, miksi kuvan puseron pääntie on erilainen kuin ohjeessa?Ohjeen mukaan pääntien reunuksen joustinneuleen jälkeen tulee 3 oikein kerrosta ( pääntien reunuksessa,kaarrokkessa ja A1 mallineuleessa).Näyttäisi siltä, että kuvassa on yksi oikein kerros + lisäykset ja sen jälkeen on aloitettu A1 mallineule.Olenko oikeassa?

03.03.2020 - 10:16