DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Narvik Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð 2-12 ára. Prjónuð húfa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri og dúski.

DROPS Children 32-11
DROPS Design: Mynstur u-075-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Höfuðmál: 48/50 - 50 /52 - 52/54 - 52/54 - 54/56 - 54/56 cm
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-400-450 g litur 44, ljós grár
100-100-100-100-100-150 g litur 01, natur
50-50-100-100-100-100 g litur 48, vínrauður

GARN Í PEYSU:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-300-300-350-400 g litur 44, ljós grár
50-100-100-100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 48, vínrauður

GARN Í HÚFU:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/8 - 9/12 ára
Höfuðmál: ca 48/50 - 50/52 - 52/54 - 54/56 cm
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50-50 g litur, 44, ljós grár
50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50 g litur 48, vínrauður

-------------------------------------------------------
FYLGIHLUTIR FYRIR STYKKIÐ:

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, viður NR 513: 5-6-6-7-7-8 st.

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

----------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í byrjun á umferð (= miðja að aftan).
Byrjið frá réttu með ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-16 lykkjur framhjá lykkju með prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-29-31-33 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-43-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-57-61-65 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-71-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-85-91-97 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.2 á einungis við um stærð 2 og 3/4 ára). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Í umferð þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er einnig prjónað með lit í rönd eða grunnlit í mynsturbekk yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um norrænt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 21) = 3,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um húfu):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 17. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 16. og 17. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-3 (á við um húfu):
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati á hægri kant að framan (þegar stykkið er mátað). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-6-6-7 næstu hnappagötum með ca 8-7½-8-7½-8-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 92-95-98-101-104-107 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með vínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið (ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist ca 2-2½ cm er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 21-24-27-30-33-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 113-119-125-131-137-143 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónaðu UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og ÚTAUKNING.
Ör-1: Aukið út um 10-12-14-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 123-131-139-147-155-163 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Ör-2: Aukið út um 24-32-32-40-32-40 lykkjur jafnt yfir = 147-163-171-187-187-203 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-19-20-22-22-24 mynstureiningar með 8 lykkjum – ATH: Passið uppá að fá með útaukningar á milli ör-2 og ör-3 sem eru teiknaðar í mynsturteikningu).
Ör-3: Nú eru 181-201-211-231-231-251 lykkjur í umferð. Aukið út um 22-18-24-20-32-30 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 203-219-235-251-263-281 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14-15-14-15 mynstureiningar með 16-16-16-16-18-18 lykkjum).
Ör-4: Aukið út um 18-26-16-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 221-245-251-257-269-287 lykkjur (nú er pláss fyrir 35-39-40-41-43-46 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 15-16-17-18-19-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er hægt að prjóna sléttprjón með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið að réttu máli.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu með ljós grár þannig: Prjónið 37-40-42-43-45-48 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 63-69-73-75-79-85 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 37-40-42-43-45-48 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 149-161-169-177-185-193 lykkjur. Prjónið síðan þannig:

STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA:
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðarpjóni, prjónið síðan A.2A hringinn þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 23-25 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með ljós grár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 17-20 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með ljós grár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið miðju að framan þar til stykkið mælist 23-26-29-32 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan.

STROFF:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-33-34-35-39-43 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 179-194-203-212-224-233 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 42-48-47-48-50-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-6 lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi = 48-54-53-56-58-59 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-6 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi.

STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA:
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 1 umferð slétt með ljós grár. Síðan er prjónað A.2A hringinn (= 8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með ljós grár eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára:
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ljós grár. Haldið áfram eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-3½-4-4-4½ cm millibili alls 6-8-7-7-8-8 sinnum = 36-38-39-42-42-43 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 19-22-26-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-1-3-3-6-5 lykkjur jafnt yfir = 36-39-42-45-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 23-26-30-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fitjið upp 102-105-114-117 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-9-6-9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA-2 = 96-96-108-108 lykkjur. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 8-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með ljós grár til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18 cm setjið 8-8-9-9 prjónamerki í stykkið með 12 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3 (= 8-8-9-9 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum í öllum stærðum = 48-48-54-54 lykkjur eftir á prjóni * Prjónið 1 umferð slétt, í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar = 12-12-14-14 lykkjur eftir á prjónum. Klippið frá, dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 20-21-22-23 cm ofan frá og niður.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk með natur ca 4-5 cm að þvermáli og festið á toppinn á húfunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.02.2021
UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):..Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-71-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-85-91-97 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = natur
symbols = vínrauður
symbols = byrjið í þessari umferð í þinni stærð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Narvik

Aleksandra, Norway

Narvik Jacket

Ama La Lana, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Deb wrote:

Disregard earlier question. Misread the chart!

10.08.2023 - 23:32

country flag Deb wrote:

There are 147 stitches after inc @ arrow 2. (Size 2) "Arrow 3: There are now 181 stitches on the row." I found 2 increases between arrows 2 & 3. Where was the increase of 32 stitches made?

10.08.2023 - 20:43

DROPS Design answered:

Dear Deb, between arrow-2 and arrow-3 there are 2 increases worked in the diagram (see yarn over at the beg of diagram + at the end of diagram) so that you will increase a total of 2 sts x 17 times (17 repeats), and you will have: 147+(2sts x 17 repeats)= 181 stitches. Happy knitting!

11.08.2023 - 09:51

country flag Alicia wrote:

Muchas gracias. Me di cuenta de mi error de interpretación del patrón.

27.12.2022 - 22:23

country flag Alicia wrote:

Muchas gracias.

27.12.2022 - 19:07

country flag Alicia wrote:

Buenos días. Presento mis disculpas por haber enviado dos veces la misma pregunta. lo hice porque me pareció que la primera no había sido enviada. Otra vez mis disculpas.

23.12.2022 - 13:35

country flag Alicia wrote:

Buenas tardes. Estoy tejiendo este modelo para talle 5/6. Al llegar a los aumentos de la flecha 3 dice que tenemos 211 puntos. Pero al terminar la flecha 2 tenemos 171, más dos de entre las flechas 173.¿ Cuántos aumentos hay que hacer en flecha s 3 y 4. Gracias

22.12.2022 - 18:56

DROPS Design answered:

Hola Alicia, tienes que trabajar los aumentos en un lado de cada repetición de A.1A. Como tienes 20 repeticiones de A.1A, entonces aumentas 20 puntos. La siguiente vez que haya aumentos en A.1A, antes de la flecha 3, tienes que hacer lo mismo, aumentar después de cada repetición, por lo tanto, trabajas 20 aumentos más. 171 + 40 = 211.

25.12.2022 - 23:57

country flag Alicia wrote:

Buenas tardes. Estoy tejiendo el canesú de este modelo ( talla 5/6)y al llegar a la flecha 3 hay cantidad de puntos que no me dan. Al terminar los aumentos de la flecha 2 tengo los 171 puntos que dicen .Luego hago los dos aumentos indicados, son 173. Y a continuación en flecha 3 , no se indican aumentos . Dice que debemos tener 211 puntos. Agradezco me expliquen cuántos debe aumentar en flecha 3 y 4. Muchas gracias

22.12.2022 - 18:51

DROPS Design answered:

Hola Alicia, tienes que trabajar los aumentos en un lado de cada repetición de A.1A. Como tienes 20 repeticiones de A.1A, entonces aumentas 20 puntos. La siguiente vez que haya aumentos en A.1A, antes de la flecha 3, tienes que hacer lo mismo, aumentar después de cada repetición, por lo tanto, trabajas 20 aumentos más. 171 + 40 = 211.

25.12.2022 - 23:56

country flag Stephanie wrote:

Guten Tag, ich habe eine Frage zu der tollen Jacke: ich möchte sie gerne mit Erhöhung anfertigen. Laut Anleitung wird diese in ausschließlich hellgrau gestrickt. Aber ich erhalte immer eine asymmetrische Erhöhung, da auf der rechten Seite in der ersten Reihe von Reihenbeginn gestrickt wird und in der letzten Reihe bis Reihenende. Auf der linken Seite wird das Reihenende gar nicht erreicht. Habe ich einen Denkfehler?

27.11.2020 - 18:52

DROPS Design answered:

Liebe Stephanie, es sieht so aus, daß die Erhöhung ja unsymetrisch ist, unser DesignTeam wird das mal prüfen - danke für den Hinweis - gerne können Sie entweder nach der Rückreihe über 49-65 M noch eine Hinreihe über die übrigen Maschen + die Rückreihe über alle Maschen stricken - oder dann noch eine zusätzliche verkürtze Reihe stricken. Viel Spaß beim stricken!

30.11.2020 - 08:04

country flag Will V D Heerik wrote:

Ik wil dit patroon graag hebben ik kan helaas niet copiejirren kan ik hem ook op ge stuurt krijgen laat het me asjeblieft wat wetten groetjes wvd heerik

04.04.2020 - 13:05

DROPS Design answered:

Dag Will,

Onderaan bij de materialenlijst vindt je een afdrukknop waarmee je het patroon kunt printen. Je kunt evt ook je verkooppunt vragen of ze de brochure nog hebben liggen waar dit patroon in staat. Of je kunt een kennis vragen om een afdruk te maken.

04.04.2020 - 18:41

country flag Claudette Grenier wrote:

Merci pour vos bonnes explications. Ce qui m'avait trompé c'était que vous disiez: au tour suivant diminuer une maille après chaque marqueur- voir diminutions-3 (=on diminue 8-8-9-9-mailles). C'est là mon erreur j'ai fait une diminution de 9 fois sur ce rang-là et j'ai continué 6 fois de plus. Merci et bonne journée à vous et votre belle équipe.

31.01.2020 - 21:06