Rikma skrifaði:
Thank you for your quick response. I will give it another try.
20.09.2018 - 21:05Rikma skrifaði:
Having trouble with instructions. I do well down to the yoke. First paragraph states knit 10 for 1/2 of back. looks like then knit 1 sleeve using the A.2 chart which is 16 stitches then knit 20 for front repeat sleeve for 16 then 10 more for the back total is 72 stitches but I have 106 stitches on my needle. could you explain that 1st paragraph please. find all the A.2, notations confusing. If I double the front and back stitches then I end up with 112stitches needed.
20.09.2018 - 13:25DROPS Design svaraði:
Dear Rikma, first round on yoke will be worked as follows (from mid back): Knit 10 (= half back piece), A.2 (= 16 sts), knit 1 (= sleeve), A.2, knit 20 (= front piece), A.2, knit 1 (= sleeve), A.2, knit 10 = 10 + 16+1+16+20+16+1+16+10= .106 sts. At the same time, increase for raglan with 1 YO on each side of each A.2 = 8 sts increased = 114 sts after first increase round. Happy knitting!
20.09.2018 - 13:31
Celia skrifaði:
Me gustaria saber cuantas madejas necesito para la talla XL y sustituir la lana de este patrón por lana merino extra fino de drops
31.08.2018 - 12:51DROPS Design svaraði:
Hola Celia. Para la talla XL vas a necesitar aprox 13 ovillos de merino extra fino del grupo de lanas B.
31.08.2018 - 20:38
Anki skrifaði:
Hej Hur mycket garn går det åt av Drops Air i storlek XL? Så jag får en aning om hur mycket jag behöver beställa... Ser fram emot detta ☺
18.08.2018 - 23:44DROPS Design svaraði:
Hej, Se här hur du gör: Räkna om garnmängden från en kvalitet till en annan Det vill säga: 8x167m = 1336m/150= 8,9 = 9 nystan DROPS Air.
22.08.2018 - 13:31
Karin Kirsch skrifaði:
Hallo, ich habe glaube ich ein Problem.... ich habe nach dem Kragen bei Größe XL 110 Maschen auf der Nadel. Der Raglan mit Muster A.2 in der ersten Reihe benötigt nur 76 Maschen? Was mache ich mit dem Rest? :( Wo ist da mein Denkfehler? Lieben Dank für eine schnelle Antwort
27.06.2018 - 09:54DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kirsch, diese 110 M stricken Sie so: 11 Maschen rechts (= halbes Rückenteil), A.2 (= 16 Maschen), 1 Masche rechts (= Ärmel), A.2 (= 16 M), 22 Maschen rechts (= Vorderteil), A.2 (= 16 M), 1 Masche rechts (= Ärmel), A.2, (= 16 M), 11 Maschen rechts. das sind: 11 + 16 + 1 + 16 + 22 + 16 + 1 + 16 + 11 = 110 M. Viel Spaß beim stricken!
27.06.2018 - 16:28
Inger Christensen skrifaði:
Sidste punkt i ' forhøjning i nakken' skal vel være: strik ret til midt bagpå? Det giver for mig ikke mening at strikke vrang på retsiden der.
28.02.2018 - 12:54DROPS Design svaraði:
Hej Inger, du har helt ret og det er rettet. God fornøjelse!
06.03.2018 - 15:57
Leclair skrifaði:
Hallo,ik brei voor de eerste keer van boven naar beneden en alles met de rondbreinaald. Ik heb nu de kraag en het raglandeel. Het aantal steken en de hoeveelheid meerderen (25x )klopt allemaal. Enkel de hoogte klopt helemaal niet. Volgens proeflapje zijn 23 naalden 10 cm. Nu begreep ik 25 naalden te moeten breien maar moet dan 23 cm hebben. Ikkom maar op 13. 10cm verder breien zonder meerderen lijkt me geen goed idee. Wat doe ik verkeerd?
27.02.2018 - 09:04DROPS Design svaraði:
Hallo Leclair, Heb je van te voren ook een proeflapje gebreid? En komt deze overeen met de afmetingen van het proeflapje aangegeven in het patroon? Heb je de breedte van je werkstuk ook gecontroleerd? En komt deze overeen met de maten die aangegeven zijn op de tekening onderaan het patroon? Als het proeflapje in de breedte wel overeenkomt, maar niet in de hoogte, dan kun je af en toe in het raglandeel een aantal extra naalden breien, zonder te meerderen, maar deze moet je wel wat verdelen in het raglandeel anders raakt je trui uit vorm.
04.03.2018 - 19:42
Maria skrifaði:
Posso lavorare con ferri diritti?
05.02.2018 - 13:31DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maria. Il capo è lavorato in tondo dall'alto verso il basso, difficilmente adattabile ad una lavorazione con ferri dritti. Buon lavoro!
05.02.2018 - 14:27
Bente Krogh skrifaði:
Tak for mange gode opskrifter, men her bliver jeg nødt til at spørge. Jeg er startet på "Woodland Walk" den lukkede model og jeg har vanskeligt ved at dele arbejdet i for-/bagstykke og ærmer. Der er en masse kommaer. Kunne I måske bruge +, hvis det hører sammen. Det korte af det lange er: hvor mange masker skal det være i de fire felter (str. m), men ønsker egentlig bare princippet. Venlig hilsen Bente
19.11.2017 - 09:56DROPS Design svaraði:
Hej Bente, når du starter med bærestykket har du 90 m på pinden. Du starter da midt bagpå med 6 + 16(A.2) + 1 + 16(A.2) + 12 + 16(A.2) + 1 + 16(A.2) + 6. De 16 m i A.2 er selve raglan-overgangen og udtagningerne sker på hver side af A.2 (ialt 8 gange pr udtagnings-pind). God fornøjelse!
05.12.2017 - 14:49
Woodland Walk#woodlandwalksweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, háum kraga og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk.
DROPS 183-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8. Í þessu dæmi eru prjónaðar 7. og 8. hver lykkja slétt saman þegar lykkjum er fækkað. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 þannig (= 8 útauknar lykkjur í hverri umferð með útaukningu). Prjónið fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í sléttprjón. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru efir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðiið svo ekki myndast göt. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður frá miðju að aftan. Það er hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þá verður stroffið aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í neðar í uppskrift. Eftir berustykki er prjónað fram- og til baka í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna ofan frá og niður. KRAGI: Fitið upp 96-96-99-102-105-111 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið A.1 (= 3 lykkjur) hringinn í umferð þar til stykkið mælist 16 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-8-5-3-2-3 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 84-88-94-99-103-108 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-12-11-11-10 lykkjur jafnt yfir = 86-90-106-110-114-118 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Nú er hægt að prjóna upphækkun í hnakka eða að fara beint í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið að miðju að aftan. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Prjónið mynstur þannig: 5-6-10-11-12-13 lykkjur (= hálft bakstykki), A.2 (= 16 lykkjur), 1 lykkja slétt (= ermi), A.2, 10-12-20-22-24-26 lykkjur slétt (= framstykki), A.2, 1 lykkja slétt (= ermi), A.2, 5-6-10-11-12-13 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í annarri hverri umferð 21-24-25-27-30-32 sinnum = 254-282-306-326-354-374 lykkjur. Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu heldur stærð S áfram með 2 umferðir sléttprjón og mynstur án útaukninga fyrir laskalínu, síðan er prjónað áfram í öllum stærðum þannig: Stykkið mælist nú 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur eins og áður, án þess að auka út fleiri lykkjum þar til stykkið hefur náð réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 36-40-42-46-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið næstu 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermum), prjónið þær 36-40-42-46-50-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-220-240 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og haldið áfram með A.2 yfir 10-10-7-8-8-9 lykkjur í mynstri sem eru eftir á framstykki/bakstykki, en í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn í ytri hlið í hverju A.2 (= við miðju að framan og við miðju að aftan) og prjónaðar eru 2 lykkjur slétt saman innan við hvert A.2 (= að hliðum). Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjur í A.2 koma smá saman að fækka og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni. Þegar allar lykkjur í A.2 eru horfnar er prjónað áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 14.-14-.14-.14-.12-.12. hverri umferð 4-4-4-4-5-5 sinnum = 172-188-200-216-240-260 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-36-37-37-37-37 cm er aukið út um 14-10-13-15-12-16 lykkjur jafnt yfir = 186-198-213-231-252-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið A.1 hringinn í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 55-61-69-71-77-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 61-67-77-79-87-91 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn, jafnframt er lykkjum fækkað í A.2 alveg eins og á fram- og bakstykki (lykkjufjöldinn er sá sami). Þegar lykkjurnar í A.2 hefur fækkað og horfið er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-3.-3.-3.-2. umferð alls 12-13-18-18-20-22 sinnum = 37-41-41-43-47-47 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-35-34-33-32-31 cm er aukið út um 5-4-4-2-1-1 lykkjur jafnt yfir = 42-45-45-45-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-41-40-39-38-37 cm, fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodlandwalksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.